Fálkinn


Fálkinn - 09.10.1959, Blaðsíða 7

Fálkinn - 09.10.1959, Blaðsíða 7
FALKINN 7 að þarna hefði verið um dýnamít- sprengingu að ræða. Heima hjá Graham fannst byssan og skotfærin, sem Graham hafði sagt, að móðir hans hefði haft með sér. Frú Graham játaði einslega, að Graham hefði beðið hana um að minnast ekki á gjöfina, sem hann .ætlaði að gefa móður sinni. Og í jakkavasa Grahams fannst bútur af tundurþræði, sem venja er að nota við dýnamítsprengingar. Eitt af því, sem lögreglan athug- aði fyrst, var hverjir farþeganjia hefðu keypt sér slysatryggingu fyr- ir ferðina. Þeir voru óvenjulega margir, sem það höfðu gert — það var líkast og þá hefði grunað ófarir. Mikið af þessum tryggingum hafði verið keypt í sjálfum biðsölunum, sem eru á flestum flugvöllum Bandaríkjanna. Svo óheppilega vildi til, að upp- lýsingarnar, sem fengust hjá vá- tryggingarfélaginu um tryggingu frú King, voru ófullkomnar. Það var upplýst, að 37.500 dollara trygg- ing hafði verið keypt handa henni á flugvellinum, en ekki að til voru fyrir tvær jafnháar tryggingar, sem renna skyldu til sonar hennar að henni látinni. Ennfremur tvær lægri tryggingar, sem renna skyldu til hálfsystur frú King í Alaska og frænku í Missouri. Og lögreglan hafði kynnt sér ævi- feril Grahams. Hann hafði í æsku komizt sviksamlega yfir peninga frá firmanu, sem hann vann við. Síðar hafði hann verið í fangelsi í 60 daga fyrir bannlagabrot. Ennfremur hafði leikið grunur á tryggingarsvikum viðvíkjandi kaffihúsi, sem hann hafði rekið. Þetta þótti bendi á ann- að en að Graham væri saklaust barn. En eftir að hann giftist, hafði hann tekið sig á. Við húsrannsóknina fannst ýmis- legt smádót hjá Graham, sem móð- ir hans hafði ætlað að gefa ætt- ingjum sínum. Graham gaf þá skýr- ingu á þessu, að hún hefði skilið það eftir af því að hún hefið verið hrædd um að farangurinn yrði of þungur. En allt í einu yfirbugað- ist hann og játaði að hafa komið sprengju fyrir í vélinni til þess að bana móður sinni og fá tryggingar- féð fyrir hana. Og verða 43 öðr- um að bana um leið! FBI byrjaði rannsóknina á rétt- um enda og færðist smátt og smátt nær ráðningu gátunnar. Fyrst var að kanna, hvernig slysið hefði af- vikast, og það var í rauninni erfið- asta rannsóknin. Ef ekki hefði ver- ið beitt ströngustu vísindalegri ná- kvæmni, hefði aldrei uppgötvast um sprenginguna í geymsluhólfi nr. 4 ” og hvernig á henni stóð. Þegar það var sannað, að sprengiefni var fal- ið í geymsluhólfinu, var tiltölulega auðveldara að finna manninn, sem stóð bak við ódæðið mikla. Gra- ham varð tvísaga í yfirheyrslunni og hinar margföldu tryggingar frú King hlutu að vekja grun. Grahamsmálið er eitt af mörgum, sem sýna hvernig FBI starfar. Þar er nóg af æfðu liði og valinn mað- ur í hverju rúmi, enda eru Ameríku- menn jafnmontnir af FBI og Bret- ar af Scotland Yard. í næsta blaði: Eltingaleikurinn við Dillingar. ☆ °Z/r annáíum lliskujmin sieínt iilan Anno 1954 boðaði kóng Christián þriðji biskupana báða fram fyrir sig; á því sama sumri kom út svo látandi bréf: „Christian með guðs náð Dan- merkur, Noregs, Vendlands og Gott- lands kóngur. Vor gunst tilforna. Vita skuluð þér, að vér höfum að höndla og tala með yður um and- lega stjórnanina, og hugsum að láta undirvísa yður um eina kristilega reformeran og skikkan, sem vér höf- um með voru elskulega Danmerkur og Noregs ríkis ráði, eftir lærðra manna vilja og samþykki, hver skikkun vér viljum yfir öll vor lönd og ríki fast og óbirgðanlega haldist af öllum og sérhverjum við magt, og höfum nú uppá það sama skrif- að oss elskulega verðuga biskupi Jóni, Hólabiskupi, að hann skuli koma hér til vor á einu af þessum vorum skipum til vors staðar Kaup- inhafn, og vita vorn vilja; því biðj- um vér yður og viljum, að þér skikkið öllum yðar erindum þar eft- ir, og komið á einu þessu voru skipi hingað til vor til Kaupinhafn, þar að forheyra vorn vilja, sem vér þá öktum að láta yður kunngjöra; vér þekjum þá aptur að vorinu á voru einu skipi að skikka yður heim til íslands tilbaka ígjen. Hér vitið öld- ungis að rétta yður eptir, og bregð- ið því í engan máta. Bífalandi yð- ur guði. Skrifað á voru sloti Gott- orp, laugardaginn eptir Lætare (25. mars). Anno 1542. — Oss elskulega Herra Gizuri Einarssyni, S.S.s., yfir og uppá vort land ísland.“ Samstundis bjó herra Gizur sig til siglingar og þótti þetta engin harmasaga. Senjor biskup Jón sneiddi sig frá þeirri utanferð, og sendi út það sama sumar sinn son, síra Sigurð Jónsson, sem hélt Grenjaðarstað norður, og sinn dótturmann, sem hét ísleifur, og hélt fyrir höfuðból Grund í Eyjafirði, einn nafnfræg- an mann af persónulegri prýði, frama og fræknleik; þessir báru fyrir kóng afbötun þessa gamla biskups, og það hann vildi alla þá hlýðni halda, sem þeir sinna vegna játuðu, hverja hlýðni og hollustu þeir sóru kónginum uppá biskups Jóns vegna. Vorið eptir sigldu þeir aptur til íslands og fóru hvoru- tveggju til sinna heimkynna. í Sovjet-Rússlandi Ijúka um 30 þúsund konur verkfrœðiprófi á hverju ári. -AL ve(£ HISSA Feisal, krónprins Saudi-Arabíu, dvaldi í jyrrasumar í New York til þess að leita sér lœkninga, og var vestra í fimm mánuði og fór heim- leiðis með „Christopher Columbus“ nokkru fyrir jólin. í för með honum voru 26 lifverðir og ennfremur skrif- arar og þjónar, og farangurinn var 169 kistur. Þegar hann var í New York bjó hann í Waldorf Astoria Hotel, og gistihúsreikningurinn var 52 þúsund dollarar og þjórfé að auki.. ★ Nú hafa Kínverjar eignazt bíla- smiðju. Hún framleiðir að svo stöddu aðeins vöruflutningabíla. ★ Pezurskirkjan í Páfagarði í Róm er stœrsta kirkja veraldar. Hún er 611 feta löng og flatarmálið 18.110 fer-yards. Þvermál hvelfingarinnar í kirkjunni er 137 fet, og hæðin frá gólfi upp í miðja hvelfinguna 390 fet. En að utan er hœð kirkjunnar 45 7 fet yfir götubrún. Hæsti dóm- kirkjuturninn í heimi er í Ulm í Þýzkalandi. Hann er 528 fet. Byrj- að var á smíði þessarar kirkju ár- ið 1377, en turninn var ekki full- gerður fyrr en 1890. ★ í Bandaríkjunum hafa menn smíðað sjálfvirka vél til að rann- saka mannsblóðið. Hálfri þriðju mínútu eftir að blóðið er látið í vél- ina, skilar hún öllum þeim upplýs- ingum um eiginleika blóðsins, sem læknirinn þarf á að halda. ÞAÐ SÓPAR AÐ ÞESSUM. — Múhamed V. konungur í Marokkó liefur nýlega verið í París til skrafs og ráðagerða við de Gaulle. Hér sést hann ásamt fylgdarliði sínu á brautarstöðinni í Montreux í Sviss, að bíða eftir lestinni til Parísar. —

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.