Fálkinn


Fálkinn - 09.10.1959, Blaðsíða 13

Fálkinn - 09.10.1959, Blaðsíða 13
FALKINN 13 ingar, barnaleikvelli, barnaheimili, skrúðgarða, bœði opinbera og í ein- staklingseigu. Yzt á nesinu er ein öruggasta höfn á suðurlandi, og þar hjá og nokkru norðar verksmiðju- byggingar og geymsluhús fyrir út- gerðina. Til austurs er svipaða sjón að sjá, nema þar er ekkert haf. Þar er að- eins Kópavogur, — svo langt, sem augað eygir. Lengst í fjarska gnœf- ir Vífilsfell yfir Sandskeiðið, þar sem svifflugur leika sér í loftinu. Einnig þar er Kópavogur. Við Lögberg renna unglingar sér c. skíðum niður hlíðar, — og eru enn í Kópavogi. ★ Þetta eru engir fjarstæðukenndir draumórar. Þetta er dálítil augna- bliksmynd af því, sem forráðamenn Kópavogsbæjar — og vissulega fleiri ■-—- sjá í huganum, þegar þeir líta 10—20 ár fram í tímann, og máske er heldur ekki svo langt að bíða þess, að draumurinn rætist. Finnbogi Rútur Valdemarsson al- þingismaður og kona hans, Hulda Jakobsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs- bæjar, kalla þetta ekki draum. í þeirra skjölum heitir það áætlun. Fastákveðin og framkvæmanleg. Kirkjan er þegar komin af stað efst á svokölluðu Borgarholti. Samkomuhúsið er orðið að veru- leika að nokkru leyti, og byggingu þess er haldið áfram af fullum krafti. Líkan af samkomuhúsinu er á skrifstofu bæjarstjórans. Þar eru einnig teikningar af framtíðarskipu- lagi bæjarins. „Kópavogur er líklega yngsti bær landsins, frú Hulda?“ „Bæði yngsti og stærsti,“ segir frúin og brosir við. „Stærsti?" „Já. Þótt ótrúlegt megi virðast, er Kópavogur töluvert stærri að flatarmáli heldur en Reykjavík. Lögsagnarumdæmi okkar er í það minnsta 100 ferkílómetrar.“ „Ótrúlegt.“ „Já. Við eigum landssvæði hér langt austur. Vífilsfell, Sandskeið og Lögberg er allt í okkar umdæmi og mest af því í okkar eigu.“ „Hvernig stendur á þessu, að þið hafið svona stórt land, og hver er saga Kópavogs í stuttu máli?“ „Sagan verður allavega stutt, vegna þess að Kópavogur er svo ótrúlega ungur bær. Hann fæddist raunverulega fyrir tæpum 12 árum síðan, eða nánar tiltekið 1. janúar 1948. Þá varð hann sjálfstætt sveit- arfélag. Upphafið var það, að fram- farafélagið hérna í Kópavogi náði meirihluta í hreppsnefndarkosning- um í Seltjarnarneshreppi árið 1946. Á næsta ári var ákveðið að stofna hér sjálfstætt sveitarfélag, sem gert var í ársbyrjun 1948 eins og áður er sagt. Seltjarnarneshreppur var áður stór og mikill hreppur. Reykja- vík er hluti af honum, alveg eins og Kópavogur er nú. Við höfum frá öndverðu leitazt við eftir fremsta megni, en af lítilli getu fjárhags- lega, að gera íbúum Kópavogs eins hægt um hönd og mögulegt er, að koma sér upp eigin húsi og hreiðra um sig eftir beztu getu, og ekki lagt stein í neins manns götu. Við höfum haft mikla ánægju af að sjá alþýðufólk koma hingað suður eftir með tvær hendur tómar og byggja sér borgir með viljan einan og reku að verki. Hér má ganga um byggð- ina að kvöldi eða um helgar og sjá húsbónda og húsfreyju í vinnuföt- um og smíða hús, en börnin þeirra leggja sínar litlu hendur í sama leikinn. Þetta' er yfirleitt ungt fólk fullt af viljaþreki og framtíðar- draumum. Slíkt fólk er gull í kistu sérhvers bæjarfélags — og það er okkar eina gull. Þess vegna finnst okkur líka erf- itt að þurfa að neita nokkrum Framh. á bls. 17. ... og þar sér maður húsbónda og húsfreyju í vinnufötum, og smíða hús . . . Barnaskólar eru tveir, og verið að bæta við báða

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.