Fálkinn - 10.06.1960, Side 10
10
FALKiNN
>f Skrítlur >f
Merkilegt — þetta lítur ekki út
fyrir að vera sú rétta.
-K
Unga frúin kemur fjúkandi vond
inn í búðina og hundskammar kaup-
manninn fyrir að hún hafi fengið
á sig málningarlínu á dyrastafnum
hjá honum.
— Já, en góða frú, sjáið þér ekki,
að það stendur NÝMÁLAÐ á hurð-
inni?
— Víst sá ég það, en ég er orðin
svo vön að sjá yður auglýsa ný egg,
nýbrennt kaffi og nýbökuð brauð,
að ég tók alls ekkert mark á þessu.
*
Það var hátíðlegur dagur í sveit-
inni, því að verið var að vígja ung-
mennafélagshúsið. Oddvitinn átti að
halda ræðuna, og hafði fengið sér
dável neðan í því áður, til þess að
skerpa gáfurnar. Því miður hafði
hann gleymt handritinu sínu, en
þóttist fær í flestan sjó samt. Svo
byrjaði hann:
— Heiðraða samkoma, góðir
gestir! byrjaði hann, en þá kom
hann auga á versta óvin sinn á
fremsta bekk og bætti þá við: —
.... og annað fólk!
*
Ung og yndisleg stúlka kemur
inn í lyfjabúð og snýr sér að lyfja-
fræðingnum og segir:
— Ég þarf að biðja yður um að
gera mér mikinn greiða. Að lesa
fyrir mig bréf. Það er frá unnust-
anum mínum, — hann er nefnilega
læknir, skal ég segja yður.
*
Hann Drési og hún Marta lentu
í fúlustu skömmum og loks snar-
aðist Drési út úr baðstofunni bölv-
andi. En það var kalt úti og eftir
nokkra stund kom Drési inn aftur.
Þar sat Marta ofurblíð á svipinn.
— Er þér runnin reiðin, Marta,
spyr Drési.
— Mér runnin reiðin? Ónei, ekki
alveg. Ég var bara að hvíla á mér
andlitið dálitla stund, meðan þú
varst úti.
*
Ég sá nú til yðar í gœrkvöldi . .
Eruð þér ekki að hugsa um að gefa
konunni yðar svo sem 20 rósir?
FEGURÐARBIKAR KISU. —
Þessi köttur hvílir bókstaflega á
lárberjunum sínum. Hann er pers-
neskur og hefur fengið bikarinn að
verðlaunum á kattasýningu í Lon-
don.
☆
Dýr útgerð það!
RITA HAYWORTH er dýrari í
rekstri en nokkur gamall trollari,
segja þeir sem verið hafa giftir
henni. Söngvarinn Dick Haymes,
fyrrverandi maður hennar, hefur
snúið sér til yfirvaldanna og beðið
um að láta gera sig gjaldþrota.
Skuldir hans eru 522.242 dollarar
og eignirnar 5.493 dollarar. Hann
skuldar meira og minna eitthvað
nálœgt 250 manns, þar á meðal 2
fyrrverandi konum sínum, Johanne
Dru og Noru Eddington. Það var
Rita, sem setti Dick Haymes á haus-
inn.
VITIÐ
ÞÉR
V.L. óf. J
V.D15
að 14 gluggafágarar starfa
hjá UNO í New York?
Þessir 14 eiga ekki aðeins að sjá
um 6.600 rúður í húsinu heldur líka
veggina sjálfa. Það er talið, að hver
maður geti hreinsað 70 glugga á
dag.
að múrsvalan sest aldrei á jörð
nema til að hvíla sig?
Allt sem hún þarf til að éta og
til að gera hreiðrið sitt úr, grípur
hún á flugi — í loftinu, og þegar
hún þarf að drekka flýgur hún við
vatnsflötinn og lætur renna upp í
ginið á sér um leið.
að hundaveðhlaup eru ein
elztu veðhlaup í heimii?
Það er sannað, að Egyptar höfðu
hundaveðhlaup að minnsta kosti 100
árum áður en farið var að halda
hesta-kappreiðar.
að bændur í Ameríku nota
smá-flugvélar mikið?
Þær eru notaðar til þess að úða,
sá í og bera á akra. En líka til þess
að skreppa í kaupstaðinn og sömu-
leiðis nota smalarnir þær, þegar
þeir eru að ná gripunum saman.