Fálkinn - 30.11.1960, Síða 10
Það kom ekki oft fyrir, að furstinn
keypti eitt eintak af nokkrum hlut. Af
Rolls-Royce bifreiðum keypti hann jafn-
vel stundum hálfa tylft í einu.
Þetta var lítill maður og gildvaxinn,
úteygur og augun karamellubrún, en
fingurnir stuttir og gildir, brúnleitir og
silkimjúkir. Hann hafði viðkvæmt hör-
und með smágervum hrukkum. Hring-
arnir frægu voru sokknir í holdið. Hann
var svitagjarn og þó ekki illa þefjandi.
Alltaf fór klæðnaður hans ótrúlega vel.
Þjónar hans sátu við það tímunum
saman, að bursta reiðstígvél hans af
mikilli vandvirkni, og þrisvar á dag
skipti hann um silkiskyrtur. Hann átti
tuttugu og fjórar snyrtitöskur úr svína-
skinni, fullar af krystalsflöskum með
gulltöppum. í hár sitt notaði hann Row-
lands Macassarolíu, en Kölnarvatn í
vasaklútana. Þegar hann kveikti í vind-
lingi fyrir gesti sína, smellti hann upp
gullkveikjaranum, sem aldrei bilaði,
með snoturri sveiflu.
Reiðmaður var hann mikill að sjálf-
sögðu, og lék vel bæði póló og krikket,
því hann hafði stundað nám við háskól-
ana í Harrow og Cambridge. Hann var
ekki í tölu hinna fremstu fursta, sem
staðhæft var að ættu fullar sundlaugar
af perlum og gimsteinum. En hann átti
nægilegt af skartgripum til þess að fylla
venjulegt baðker upp á barma. Hann
var snjall í vetraríþróttum og fimur
að skjóta tígrisdýr af fílsbaki.
Furstinn var örlítið rangeygður á öðru
auga og það var blár blettur á nefi
hans eftir sprengingu. Hann var um
fimmtugt að aldri. Þegar hann tók ofan
vefjarhöttinn, mátti sjá að hár hans
var strítt eins og fax á hrossi.
Furstafrúin, sem var seinni kona hans,
var tuttugu og sjö ára. Hún var komin
af miðstéttarfólki í Seattle og hafði ver-
ið skritstofustúlka. Hafði hún kvænzt
honum til þess að geta orðið auðug
hefðarfrú, — og vegna Þess að hún hélt
að Indland væri eins og í Þúsund og
einni nótt. En er stundir liðu fram,
gerðist hún leið á öllu þar i landi, og
gat ekki stillt sig um að kvarta og
kveina.
Og nú var hún komin langt á leið.
Hún var skelfingu lostin.
Þau umgengust með brennandi hatri.
Nú var rómantík samlífsins fokin út
í veður og vind og hún fyrirleit ástar-
atlot hans, kardemommueiminn, sem af
honum lagði, fyrirleit litarhátt hans,
fyrirleit hann af því að hann bar ekki
nægilega „virðingu“ fyrir henni, af því
hann var húsbóndi hennar og herra.
Hún kveinkaði sér í innsta eðli, hvert
10 FÁLKiNN