Fálkinn - 04.10.1961, Side 7
úr þjóðlífinu, en við sleppum
þeim, því að þau gœtu valdið
deilum og úr orðið eitt alls-
herjar smábœjartíkarkjaftœði.
En hvað yður viðvíkur, þá er-
uð þér bara hún Gróa, og verð-
ið aldrei neitt annað.
★ Vandkvœði.
Kæri Fálki. — Mig langar
mikið til þess að vita, hvernig
vísa nokkur hljóðar, en hún
byrjar svona:
Stundum grætur éldri mey.
Strákarnir um borð fóru með
hana svona, en ég þótt ég sé
vitlaus, þá grunaði mig, að hún
væri röng. Hvernig er hún rétt
og eftir hvern er hún?
Stebbi.
SVAR:
Vísan er svona:
Stundum grœtur gömul mey,
glópsku sína og villlu,
þegar ung hún þóttist ei
þekkja gott frá illu.
Vísan er eftir Árna V. S'aœ-
varr. (Þetta er annars ágœt
vísa, einkum seinni partur-
inn).
★ Læri.
Kæri Fálki. — Það er sjald-
an, sem ég tek mér penna í
hönd, enda er ég fremur illa
skrifandi. Um daginn fór ég
á þessa fegurðarsamkeppni og
fannst fremur lítið til um. Mér
finnst þetta undarlegt að
nokkrar stúlkur vilji láta sýna
sig svona hér um bil allsberar,
þetta er eins og hrútasýning-
arnar í sveitinni í gamla daga.
En það sem ég ætlaði að skrifa
ykkur um er, að mér finnst
varla forsvaranlegt að selja
svo dýrt inn á sýningar þess-
ar og fá svo ekki einu sinni
borð og sæti. Ég ætlaði fyrst
að fá mér að borða á staðnum
og sitja svo og bíða, unz
keppninni lyki, en mér var þá
sagt, að ég yrði að kaupa miða
á sýninguna til þess að fá að
vera inni. Það er þetta> sem
ég ætlaði að segja ykkur og
svo var það ekki fleira að
sinni.
SVAR:
Lambakjötið lækkar í verði,
þó sérstaklega lærin. Samt eru
kvenmannslæri lang dýrust,
enda þótt menn horfi bara á
þau. Bráðum verður þetta lang
dýrasta vara í heimi, enda
mjög eftirsótt af háum og lág-
um. Við tökum því undir hið
gamla máltœki: Heimur versn.
andi fer.
★ Slœm þjónusta.
Kæri Fálki. — Ég var um
daginn úti að skemmta mér á
skemmtistað, sem mikið er
auglýstur fyrir gæði og hvað
þar sé kósý og notalegt. Þegar
þangað kom var manni ekki
hleypt inn strax fyrr en búið
var að henda álitlegum fjölda
út. Er inn fyrir kom fékk mað-
ur hvergi borð og varð að
híma upp við barinn stand-
andi. Er þetta forsvaranlegt af
svo fínum veitingastað eða
hvað finnst ykkur?
SVAR:
Auðvitað erum við algerlega
sammáila yður um það, að
þetta sé ákaflega léleg þjón-
usta og það stafar eingöngu af
því, að fólk er svo fíkið í að
skemmta sér að það lætur sér
þetta lynda. Þér skuluð bara
ekki sækja þennan stað oftar
og segja sem flestum vinum
yðar frá þessu svínaríi.
★ Merkimiðar.
Kæru Fálki. — Þannig er
mál með vexti, að ég hef ver-
ið í útlöndum lengi mjög og
hef ekki komið heim í marga
mánuði. Nú, þegar ég kom
heim, ætlaði ég að fá mér eina
svartadauðaflösku upp á gaml-
an og góðan máta, en þegar
ég leit á miðann, var kominn
ákaflega leiður og ljótur miði
í staðinn fyrir þennan
skemmtilega svarta. Svei mér
þá, ég hafði bara varla lyst
á drukknum . ..
SVAR:
Yfirleiitt er það nú vökvinn,
sem mestu máli skiptir, en
ekki útlitið á flöskunni. Þér
ættuð bara að gera yður í
hugarlund, að þér séuð að
drekka úr flösku með svörtum
miða, þá œtti allt vel að
ganga.
★ Svitalykt.
Kæri Fálki. — Ég er ungur
maður, fremur sjálfumglaður,
en það er eitt, sem amar að
mér. Ég anga allur af svita,
því hvað sem ég reyni á mig,
svitna ég alveg ógurlega. Hvað
skal gera við þessum fjanda?
Ég þoli þetta ekki lengur.
SVAR:
Gætið fyllsta hreinlætis
ungi maður og leitið lœkms
við þessu. Við höfum engin
engin ónnur ráð að leggja þér
til þess að fara eftir, enda er-
um við engir sérfræðingar í
þessum efnum.
Italskar harmonikkur
úrvalstegundir, t. d. Serenelli, Scandalli,
Artiste, Settimio Soprani, Tomboline,
Frama, Exselcior.
Hinar margeftirspurðu ítölsku harmon-
ikkur, Zero Sette model ’62, eru væntan-
legar næstu daga.
Austur-þýzkar harmonikkur, Royal Stand-
ard og Weltmester, allar stærðir seldar
með iniklum afslætti, einnig austur-þýzk
blásturshljóðfæri frá Marma, trompettar
o. fl. selt fyrir hálfvirði.
Gítarar, 6 gerðir, verð frá kr. 398 komn-
ir aftur.
Rafmagnsgítarar með miklum afslætti.
Enskar vörur nýkomnar. Harmonikku-
töskur, trommuburstar, trommukjuðar,
trom,muskinn, margar gerðir, plast og næ-
lon skinn á hring, trommugormar, tromp-
ett-demparar. Vandoren saxofón- og
klarinettblöð. Rumhukúlur frá kr. 150.00.
Saxofón-munnstykki 289.00. Trompett-
inunnstykki kr. 85.00. Trommupedalar,
Hi-Hats og simbalar.
Munnhörpur 12 gerðir, krómatískar og
tvöfaldar. Hljómsveitar-magnarar fyrir
fimm liljóðfæri, kr. 3.600.00. Saxófónar
frá 2.50Ó.00. Klarinett. Blokkflautur frá
kr. 72.00. Svanaflautur kr. 50.00. Mandolín
368.00. Banjo. Trommusett, stakar tromm-
ur 11.95.00'kr.
Dönsk og þýzk píanó nýkomin, úrvalsteg-
undir, t. d. Hindsherg, Wagner, Herman
Pedersen, Chopin o. fl.
PÓSTSENDUM.
VERZLUNIN RÍN
Njálsgötu 23 . Sími 17692
Þekktasta harmonikkuverzlun landsins.
Alls konar skipti á hljóðfærum
ávallt möguleg.