Fálkinn


Fálkinn - 04.10.1961, Side 12

Fálkinn - 04.10.1961, Side 12
RÆS!!!! Þetta orð þekkja allir, sem stunda sjó nú á dögum. Það lætur misjafnlega í eyrum og fer það eftir því hver móttak- andinn er. Viðbrögðin eru margvísleg, svo og svörin, eða spurningarnar, sem ræsandinn fær. Dæmi: — Hvað er klukkan? — Hvar erum við? — Hvernig er veðrið? — Er rigning? — Huuuuuuuaaaaaá-m! — Haltu kjafti — o. s. frv. Þegar „karlinn“ ræsir okk- ur í þetta sinn, er klukkan fimm að morgni, orðið bjart, sæmilegt veður, engin rigning, og við erum staddir út af Portlandi. Komnir úr Eyjum á 35 tonna bát, sem veltur eins og tunna í engum sjó, hvað þá í sjó. Við geispum, teygjum okk- ur eins og kojurnar leyfa, nuddum stírurnar úr augun- um og fleira. Síðan setjumst við framan á og smeygjum okkur í stígvélin. Hver okkar hefur sitt aukahlutverk um borð, þar sem við erum aðeins fimm skipverjar á þessum bát, á svoddan veiðarfærum, dragnót. Mitt aukahlutverk er elda- mennskan (aldeilis eldraun á stundum), sem er sennilega vanþakklátasta aukahlutverk, sem til er í landinu, að auka- hlutverkum sumra þingmanna vorra ekki undanskildum. Ég girði mig og helli upp á kaffikönnuna. Mótoristinn geispar ógur- lega, klórar sér hér og þar og fer síðan að róta í brauðbakk- anum. Stýrimaðurinn hefur kveikt í pípunni sinni, sem aldrei trekkir. Hann spýtir með jöfnu millibili í ruslaföt- una. Stýrimaðurinn er meist- ari í spýtingum og hittir allt- af. Mótoristi nr. 2 sefur enn, hann sefur venjulega fram að hífoppi, þá loks kemur hann á dekk, sprækur og hress. — Uppáhellingunni er lokið, þeir fá sér kaffi og brauð, stýri- maðurinn og mótoristinn. Ég drekk ekki kaffi til sjós, labba 12 FÁLKINN upp á dekk og síðan aftur í og leysi ,,karlinn“ af. — Stýrðu hérna í suð til aust, við erum að verða komn. ir, segir hann og fer fram í. Við erum hér einir báta í þþtta sinn, sem betur fer, „karlinn“ getur ekki verið innan um aðra báta — af hverju? — veit ekki, — hlé- drægni eða eitthvað svoleiðis. Eftir stutta stund kemur ,,karlinn“ aftur í og tekur stýrið. „Djöfull getur strákurinn sofið,“ segir mótoristinn og fær sér meira kaffi. ,>Þetta er óreykjandi and- skoti,“ segir stýrimaðurinn og slær grúnótóbakið úr pípunni sinni, þetta er patent-pípa með skrúfuðum haus og alltaf stýfluð. „Þú átt að reykja roley, maður,“ segi ég, — „það er langbezta tóbakið." Ég rétti honum punginn minn, hann tekur við honum og fer að troða í stertinn. Síð- an kveikir hann í roleytóbak- inu og nú trekkir. Hann tott- ar með löngum sogum. Reyk- urinn hverfist ofan í hann og gýs síðan út um nef og munn. Þegar stýrimaðurinn tottar, hverfa varirnar upp í hann. Það gerir tannleysið. Mótor- istinn heldur því fram, að stýrimannsfrúin hafi slegið tennurnar úr karlinum sínum með kökukeflinu, en það segir stýrimaðurinn að sé bölvuð lýgi bara. „Ég skal segja ykkur hvern- ig ég missti tennurnar,“ segir hann: „Það var í landlegu á ver- tíðinni í fyrra, að ég var að koma af balli í samkomuhús- inu og var svolítið íðí — hum.“ „Ha-a, það getur ekki ver- ið,“ skýt ég inn í, (hann er nefnilega dálítið rakur, stýri- maðurinn). „Hol kjeft,“ heldur stýri- maðurinn áfram, „ég var bara að koma gangandi í rólegheit- unum eftir gangstéttinni, þeg- ar á móti mér koma þrír gæj- ar. Ég ætla bara að ganga fram hjá þeim, en nei takk, þeir gera sér lítið fyrir og loka

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.