Fálkinn


Fálkinn - 04.10.1961, Page 33

Fálkinn - 04.10.1961, Page 33
mokar saman peningunum, maðurinn sá. Enginn veit hver hann er. Ég hef aldrei séð örið á honum, en mér hefur verið sagt frá því. Og Salomon fékk að heyra meira um demantana. Morguninn eftir las hann um þá í blöðunum. Þau voru full af frásögnum um þá. Demantarnir höfðu verið send- ir frú Slade daginn fyrir brúðkaupið — og ekki eitt einasta orð fylgdi sending- unni. Þetta vakti óhemju athygli og óteljandi tilgátur komu fram um það, hvernig í þessu lægi. Sjálf Edith Slade var meira en lítið hissa. Þegar hún opnaði böggulinn ljómuðu augu hennar af undrun. En hún gat ekki gefið sér langan tíma til að brjóta heilann um þetta. Hún hafði nóg með að hugsa um brúðkaupið. Brúðkaupið fór fram eins og brúð- kaup yfirleitt. Og nú var Edith að ganga milli kunningjanna og kveðja, glöð og hreykin yfir nýja titlinum. í um það bil mínútu stóð hún á ein- tali við Pryor, þann eina af vinum hennar, sem hún hafði aldrei þekkt til hlítar. ■—- Vertu sæl, Edith, sagði hann. — Héðan í frá ert þú lafði Cambell fyrir mínum sjónum. — Vertu sæll, sagði hún. — En allt í einu minntist hún síðasta talsins, sem þau höfðu átt saman. — Veiztu hver sendi mér demantana aftur, sagði hún og horfði beint í augun á honum. — Já, svaraði hann. Það gerði ég. Andartak stóðu þau þegjandi og horfðu hvort á annað. — Ég sagði þér að ég væri talsvert kunnugur í glæpamannaheiminum, Edith. Það er ég líka, það get ég svarið. Ég er þar heimamaður sjálfur og þess vegna þorði ég aldrei að nálgast þig . .. — Vertu sæll, sagði hún. Röddin var róleg, en henni var þungt fyrir brjósti. Hún hélt áfram til hinna, en stöðugt sá hún fallega andlitið á Pryor í huga sér — litla rauða örið yfir vinstra auga. Onassís og Ijós- ntyndarinn Ljósmyndarar eru oft illa séðir og óvinsælir í útlandinu. Fyrir skömmu var Aristoteles Onassis dæmdur í þungar sektir vegna þess, að hann hafði skipað bílstjóra sínum að aka á bifreiðar tveggja ljósmyndara, sem tekið höfðu einna flettar myndir af honum og Maríu Callas. Þess má geta, að bifreið Onassis stórskemmdi bíla ljósmyndaranna. iVi/i landbúnaðarbíllinn INTERNAHONAL SCOUT Á æ 11 u n a rv e r ð : SCOUT húslaus kr. 122,000,— SCOUT með stálhúsi kr. 131,000,— „SCOUT“ er bifreiðin, sem allir vilja eiga. Allar nánari upplýsingar hjá umboði fyrir INTERNATIONAL SCOUT bif- reiðar hentar mjög vel íslenzk- um staðháttum og hefur hlotið einróma lof og vinsældir i Bandaríkjunum. FALKINN 33

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.