Fálkinn


Fálkinn - 02.05.1962, Blaðsíða 35

Fálkinn - 02.05.1962, Blaðsíða 35
EGGERT KRISTJANSSON & CO HF Hnítsmerkið (21. marz—20. apríl). Það eru bjartir tímar framundan í lífi yðar, sér- staklega hjá þeim, sem fæddir eru í kringum 21. til 27. apríl. Þér hafið sigrast á erfiðu tímabili í lífi yðar og sýnt þolgæði og karlmennsku. Nautsmerkið (21. apríl—20. maí). í þessari viku komizt þér að raun um, að það getur borgað sig að bregða skjótt við og taka ákvörðun þegar í stað. Það er að vísu góðra gjalda vert að hugsa sig vel um, en átti ekki við í þessu tilfelli. Tvíburamerkið (21. maí—21. júní). Þér skuluð ekki hætta á neitt í peningalegum efn- um og tefla yfirleitt alls ekki í neina tvísýnu í þessari viku. Gæfan verður yður ekki hliðholl nema á einu sviði: ástarinnar og einkalífsins. Krabbamerlcið (22. júní—22. júlí). Þér skuluð hiklaust halda áfram að gera áætlanir fyrir sumarið og ekki láta háðsglósur kunningja yðar hafa áhrif á yður. Þér stefnið hátt, en ættuð að geta náð takmarki yðar, ef þér farið rétt að. Ljónsmerkið (28. júlí—22. ágúst). Tilfinningar yðar í garð manneskju, sem lengi hefur átt. hug yðar allan, gerast nú sterkari með hverjum degi. Látið það ekki hafa áhrif á yður, þótt annar aðili verði óhamingjusamur vegna velgengni yðar. Jómfrúarmerkið (23. ágúst—23. sept.). Stjörnurnar spá skjótum breytingum á högum yðar. Ef þér hafið verið að svipast um eftir nýrri íbúð eða dvalarstað, verður yður vel ágengt í því einmitt í þessari viku. Vógarskálarmerkið (23. sept.—22. okt.). Þér hafið verið eirðarlaus og óþolinmóður að undan- förnu og það hefur mestan part stafað af einu máli, sem tvísýnt hefur verið að undanförnu. Stjörnurnar geta glatt yður með því, að þetta mál ræðst nú í vikunni. Sporðdrekamerkið (23. okt.—21. nóv.). Þér hafið lengi verið þeirrar skoðunar, að skortur á tækifærum hafi háð yður. Um þessar mundir bjóðast yður mörg góð tækifæri og ef þér viljið sýna hvað í yður býr, skuluð þér notfæra yður þau út í ystu æsar. Bogamannsmerkið (22. nóv.—22. des.). Þetta verður róleg vika á sviði atvinnu yðar, en hagur yðar mun því meir beinast. að einkalífinu: Þar mun margt p-erast, sem kemur róti á tilfinningar yðar og skapgerð. Steingcitarmerkið (23. des.—20. jan.). Leitizt við að vera jákvæður í starfi yðar, en stjórn- ist ekki af eigin duttlungum og sálflækjum. Með því móti munuð þér komast hjá margvíslegum árekst.rum og erfiðleikum. Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.). Skap yðar hefur verið mjög óstöðugt að undan- förnu. Einn daginn eruð þér glaður og bjartsýnn, en niðurdreginn og vonlaus hinn daginn. Reynið að hafa hemil á tilfinningum yðar og öðlast meira jafnvægi. Fiskamerkið (20. febr.—20. marz). Miklar kröfur verða gerðar til yðar í þessari viku. Upp kemst um herfileg mistök, sem yður hafa orðið á, og yður er bezt að játa hreinskilnislega. Eft.ir það verða störf yðar undir smásjá um skeið. FALKINN 35

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.