Fálkinn - 02.05.1962, Qupperneq 35
EGGERT KRISTJANSSON & CO HF
Hnítsmerkið (21. marz—20. apríl).
Það eru bjartir tímar framundan í lífi yðar, sér-
staklega hjá þeim, sem fæddir eru í kringum 21. til
27. apríl. Þér hafið sigrast á erfiðu tímabili í lífi
yðar og sýnt þolgæði og karlmennsku.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
í þessari viku komizt þér að raun um, að það getur
borgað sig að bregða skjótt við og taka ákvörðun
þegar í stað. Það er að vísu góðra gjalda vert að
hugsa sig vel um, en átti ekki við í þessu tilfelli.
Tvíburamerkið (21. maí—21. júní).
Þér skuluð ekki hætta á neitt í peningalegum efn-
um og tefla yfirleitt alls ekki í neina tvísýnu í þessari
viku. Gæfan verður yður ekki hliðholl nema á einu
sviði: ástarinnar og einkalífsins.
Krabbamerlcið (22. júní—22. júlí).
Þér skuluð hiklaust halda áfram að gera áætlanir
fyrir sumarið og ekki láta háðsglósur kunningja yðar
hafa áhrif á yður. Þér stefnið hátt, en ættuð að geta
náð takmarki yðar, ef þér farið rétt að.
Ljónsmerkið (28. júlí—22. ágúst).
Tilfinningar yðar í garð manneskju, sem lengi hefur
átt. hug yðar allan, gerast nú sterkari með hverjum
degi. Látið það ekki hafa áhrif á yður, þótt annar
aðili verði óhamingjusamur vegna velgengni yðar.
Jómfrúarmerkið (23. ágúst—23. sept.).
Stjörnurnar spá skjótum breytingum á högum yðar.
Ef þér hafið verið að svipast um eftir nýrri íbúð
eða dvalarstað, verður yður vel ágengt í því einmitt
í þessari viku.
Vógarskálarmerkið (23. sept.—22. okt.).
Þér hafið verið eirðarlaus og óþolinmóður að undan-
förnu og það hefur mestan part stafað af einu máli,
sem tvísýnt hefur verið að undanförnu. Stjörnurnar
geta glatt yður með því, að þetta mál ræðst nú í
vikunni.
Sporðdrekamerkið (23. okt.—21. nóv.).
Þér hafið lengi verið þeirrar skoðunar, að skortur
á tækifærum hafi háð yður. Um þessar mundir bjóðast
yður mörg góð tækifæri og ef þér viljið sýna hvað í
yður býr, skuluð þér notfæra yður þau út í ystu æsar.
Bogamannsmerkið (22. nóv.—22. des.).
Þetta verður róleg vika á sviði atvinnu yðar, en
hagur yðar mun því meir beinast. að einkalífinu: Þar
mun margt p-erast, sem kemur róti á tilfinningar yðar
og skapgerð.
Steingcitarmerkið (23. des.—20. jan.).
Leitizt við að vera jákvæður í starfi yðar, en stjórn-
ist ekki af eigin duttlungum og sálflækjum. Með því
móti munuð þér komast hjá margvíslegum árekst.rum
og erfiðleikum.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.).
Skap yðar hefur verið mjög óstöðugt að undan-
förnu. Einn daginn eruð þér glaður og bjartsýnn, en
niðurdreginn og vonlaus hinn daginn. Reynið að hafa
hemil á tilfinningum yðar og öðlast meira jafnvægi.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
Miklar kröfur verða gerðar til yðar í þessari viku.
Upp kemst um herfileg mistök, sem yður hafa orðið
á, og yður er bezt að játa hreinskilnislega. Eft.ir það
verða störf yðar undir smásjá um skeið.
FALKINN
35