Fálkinn - 03.10.1962, Blaðsíða 35
um minning um hið skammvinna hjóna-
band hans. Þess vegna getur hann ekki
skilið hann við sig.
Hann hefur vísað flyglinum í útlegð
til hluta hússins, þar flagnar lakkið af
honum, nokkrir strengir hafa slitnað,
nóturnar hafa gulnað. Og þó er eins og
hijóðfærið bíði. Eftir hverju? Eftir að
hún komi aftur, sem eitt sinn lék á það?
Tónarnir hafa þagnað. Þau sitja og
hlusta drykklanga stund, en allt er
hljótt.
•—Páll Glomp kemur hingað í kvöld,
heldur faðir hennar áfram. — Og þeg-
ar þú hefur heyrt hvaða fréttir hann
færir, svarar þú játandi!
— Ég segi nei! svarar Kristín rólega.
— Ég segi nei, og ég verð hjá þér,
pabbi! Hérna hjá þér!
Það er einhver undirtónn í rödd
Kristínar, sem faðir hennar kemst ekki
hjá að taka eftir.
— Við hvað áttu? Verður hjá mér?
Hvar ættirðu svo sem að vera annars-
staðar?
Hann ætlar að rísa upp, en fellur aft-
ur niður á koddann, vegna þrautanna.
Kristín bíður þangað til verkjarsting-
urinn linast.
Svo segir hún undur hægt, en svo
skýrt, að hvert orð heyrist gerla:
— Mamma er stödd hérna — niðri í
þorpinu!
Steinhljóð. Mínútur líða. Vekjarinn
á náttborðinu tifar.
Kristín veit hvað er að brjótast um í
föður hennar á þessu stundarkorni. Allt
sem legið hefur greftrað undir gengnum
árum, rís upp á ný og vekur sársauka
og beiskju aftur til lífs.
— Hvernig veizt þú það? Orðin koma
sem ákall frá manni í djúpri neyð.
— Hún hefur gert mér boð! En þú
getur verið óhræddur, pabbi .... ég ....
Hún þagnar, stirðnar upp af angist
við að líta í andlit hans. Æðarnar á
gagnaugunum eru eins og gildir, bláir
hnútar. Hún sér að blóðið í þeim berst
með þungum, snöggum slætti. Hann
rykkir sér upp í rúminu.
— Svo hún hefur gert þér boð? hróp-
ar hann. — Bannsett tæfan! Er það þá
ekki nóg, sem hún er búin að eyðileggja?
Ætlar hún líka að taka þetta síðasta
frá mér? En látum hana bara koma!
Hann öskrar þetta svo hátt, að glamr-
ar í vatnsglasinu á náttborðinu. — Ég
skal reka hana burt af heimilinu með
svipu! Segðu henni bara að koma! f
dag! Undir eins! Ég skal mola hvert
einasta bein í hennar argvítuga búki!
Kristín leggur hönd sína róandi á
hinn ofsareiða mann. En hann hrindir
henni frá sér.
— Út með þig! Út með þig! æpir faðir
hennar. — Burt úr húsinu með ykkur
öll saman! Burt með ykkur! Ég hef ekki
neina þörf fyrir nokkurt ykkar! Ég hef
enga þörf fyrir nokkra manneskju!
Hann fálmar eftir glasinu og fleygir
því yfir í vegginn, svo það fer í mél.
Hann ýtir við náttborðinu svo það fer
Framhald á bls. 38.
Stjörnubíó spr á næstunni bandaríska
gamanmynd, sem gerö er eftir leikriti,
sem Isngi var sýnt á Broadway
Stjörnubíó sýnir á næst-
unni bandarísku gaman-
myndina „Bell, book and
candle“ (Galdur og ást)
eftir samnefndu leikriti
John Van Druten, en það
hefur verið sýnt á Broad-
way við mjög mikla að-
sókn.
Með aðalhlutverkin í
myndinni fara heimsfræg-
ir leikarar, og lofar það
góðu um ágæti hennar.
James Stewart sem leik
ur Shepert á langan feril
að baki. Hann lék meðal
annars aðalhlutverkin í
Hitchcock myndunum
„Glugginn á bakhliðinni“
og „Vertigo". í þeirri síð-
arnefndu lék hann á móti
Kim Novak, en hún fer
með aðalhlutverk Gillan
í „Galdur og ást“.
Jack Lemmon (Nicky)
mun mörgum minnisstæð-
ur úr „Eldur undir niðri“
(Fire down belowe) þar
sem hann lék á móti Ritu
Hayworth og Robert
Mitchum, og ef til vill
ekki síður úr gaman-
myndinni „Enginn er full-
korninn" (Some like it
hot), en þar léku þau
Marilyn Monroe og Tony
Curtis á móti honum.
Hann hlaut Oskarsverð-
laun fyrir hlutverk sitt
í „Róbert sjóliðsforingi“
(Mr. Roberts), en hún
var sýnd hér í Austur-
bæjarbíó fyrir tveim ár-
um.
Ernie Kovacs er talinn
mjög góður leikari, og
hann hefur leikið urmul
af smáhlutverkum, en af
einhverjum orsökum hef-
ur hann aldrei fengið að
spreyta sig við neitt veru-
lega stórt hlutverk. En
þegar þeir eru komnir
saman hann og Jack
Lemmon má fullyrða að
hafi mætzt tveir af beztu
skopleikurum Hollywood.
Það er Columbia-kvik-
myndafélagið sem fram-
leiðir myndina og hún er
tekin í Technicolor. Leik-
stjóri er Richard Quine.
Myndin hér að ofan er
af James Stewart, en að
neSan sjáum við svip-
mynd af „Galdur og ást“,
sem Stjörnubíó sýnir á
næstunni. Jack Lemmon
er í miðið, en Kim Novak
yzt til hægri.
FÁLKINN
35