Fálkinn - 10.10.1962, Blaðsíða 33
Leikföng, búsáhöld
og gjafavörur.
Okkar alkunna
þjónusta í fullum
gangi.
Við sendum heim
og í póstkröfu um
allt land.
VALVER
Laugavegi 48
Simi 15692
MÞUmI tÞiaí MÞitil MÞiui
atíí
• OjrJið daginn með DIAL
• Endið daginn með DIAL
HeHdsölub. KRISTJÁN Ó. SKA6FJÖRÐ
REYKJAVÍK
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl.)
Þér ætt.uð ekki að hafna þeirri hjálp, sem yður
býðst bráðlega. Það er nefnilega engin ástæða til að
ætla, að góður hugur standi ekki á bak við. Þeir, sem
byrja á einhverju nýju á næstunni, mega búast við
þvi, að þeim verði vel ágengt í öllum atriðum þess.
Nautsmerlcið (21. apríl—30. maí.)
Þér ættuð að rannsaka vel yðar innri mann og
reyna að sltilja sjálfan yður, því að’yður mun takast
mun betur í öllu, ef þér gerið svo. Þörf er á, að þér
frestið öllum mikilvægum áformum, unz- þér hafið
leitað ráða vina yðar. Gagnrýnið ekki samstarfsmenn
yðar.
Tvíburamerkiö (21. maí—20. júní)
Örlögin verða dálítið einkennileg í þessari viku,
en þegar undir lokin líður, munu þau verða yður hlið-
holl. Þér ættuð að grípa þau tækifæri, sem yður gef-
ast í þessari viku. Það er ekki endilega víst, að þau
komi seinna.
Krabbamerkiö (21. júní—20. júlí)
Langþráður draumur mun ef til vill rætast. í þess-
ari viku, ef þér setjið í yður kjark og talið við
rétta aðila. Allar líkur benda til þess, að ráðlegt
sé að leggja ráðin á um framtíðina í þessari viku,
og heldur fyrr en seinna.
Ljónsmerkiö (21. júlí—21. ágúst)
Þér teflið djarft um þessar mundir, en engin
ástæða er til að óttast, heppnin mun bæði verða
með yður í spilum og ástum. Samt sem áður ættuð
þér að vera svolítið umburðarlyndari gagnvart fólki,
sem þér umgangizt daglega.
Jómfrúarmerkiö (22. ágúst—22. sept.)
Persóna nokkur, sem hingað til hefur látið sem hún
sæi yður ekki, mun allt í einu fara að viðra sig upp
við yður. Þér skuluð ekki láta það á yður fá og reyna
að hafa sem allra minnst samskipti við persónu þessa.
Einhver ósk mun rætast í vikulok.
Vogarskálamerkiö (23. sepa.—22. okt.)
Utlitið er fremur gott þessa viku; vikan verður
róleg og ýmis smá atvik munu lífga hversdagsleik-
ann upp. Þér munuð að öllum líkindum vekja nokkra
athygli á yður í samkvæmi, og ættuð að nota það tæki-
færi til þess að koma yður áfram.
Sporödrekamerkiö (23. okt.—22. nóv.)
Ef þér komið reglu á fjárhaginn, er útlit fyrir, að
þér getið veitt. yður ýmislegan munað, sem yður hef-
ur lengi langað til að njóta. Ilaldið vel á spöðunum
í starfi yðar og sýnið umburðarlyndi heima fyrir.
Boamannsmerkiö (23. nóv.—20. des.)
I máli, sem þér eruð aðili að, njótið þér fullrar
samúðar viðstaddra manna. Frestið öllum ferðalög-
um, þangað til í næstu viku. Gætið þess, að persóna,
sem þér umgangizt nær daglega, hafi ekki of mikil
áhrif á fjármál yðar.
Steingeitarmerkiö(21. des.—19. jan.)
Þér ættuð ekki að rjúka upp yfir smámunum. Á
næstunni munuð þér fá verkefni, sem mun krefjast
mikillar vinnu, en ef þér náið árangri, mun gleði
yðar verða mikil. Nú er einmitt tækifæri til þess að
gera upp við gamlan vin.
Vatnsberamerkiö (20. jan.—18. febr.)
Margt mun bera við i þessari viku, enda þótt dag-
arnir verði hver öðrum líkir. Þetta eru allt saman
smáatvik, sem ekki koma venjulega fyrir. En munið,
að margt smátt. gerir eitt stórt. Happatala yðar er
7 í þessari biku.
Fiskamerkiö (19. febr.—20. marz).
Ýmisleg skringileg atvik munu koma fyrir í þess-
ari viku. í ástamálunum ættuð þér að gera hreint
fyrir yðar dyrum. Sennilega munuð þér fá allskemmti-
legt verkefni á næstunni, en það getið þér ekki leyst.,
nema þér takið á honum stóra yðar.
FÁLKINN
33