Fálkinn - 06.07.1964, Side 35
Límið með naglalakki.
Þegar við þurfum að líma
heima og ekkert lim er við
hendina, getur naglalakk komið
sér vel. T. d. er það ágætt til “
að festa miða á glös, loka léleg-
um umslögum . s. frv.
Flaskan dettur ekki
úr hendi okkar.
Flöskur og glös eiga það oft
til að renna úr hendi okkar ef
í þeim er t. d. fljótandi sápa,
hárþvottalögur eða fita. En góð
vörn við því er að bregða
teygju nokkrum sinnum um
ílátið. Auk þess verður tak okk-
ar miklu betra og við höfum
meira vald á ílátinu.
Það er alltaf
* {
gaman að breyta
m hárgreiðslu,
einkum þó á
vorin og sumrin
Hér fylgja myndir af nokkrum
hárgreiðslum, öllum mjög einföld*
um, jafnframt skýringamyndunum,
sem sýna hvernig vefja á hárið upp.
Þvoið hárið vikulega úr góðu hár-
þvottaefni. Munið að halda hárgreiðu
og hárbursta hreinum, annars er lítið
gagn af hárþvottinum.
Bezt er að leggja hárburstann
nokkrar mínútur í volgt sulfosápu-
vatn, greiða síðan gegnum burstann
með greiðu, sem hreinsast um leið,
skola hann síðan vel og slá hann
hálfþurran í handklæði. Láta hann
svo fullþorna á handklæði, hárin
látin snúa niður.
★
FALKINN 35