Fálkinn - 24.08.1964, Blaðsíða 30
LITLA
SAGAIX)
EFTIR
WILLY
BREIIMH0LS1
Hinn stórkostlegi stökkmeistari
Þegar hinn stórkostlegi
stökkmeistari, Fratello stóð á
hátindi frægðar sinnar, mátti
sjá nafn hans með risastórum
bókstöfum á auglýsingaspjöld-
um hjá hinum nafntoguðustu
og víðreiitustu sirkusum álf-
unnar, Ringling Bros, Krón-
unni og Billy Smart og þess
ber að minnast að Fratello var
alltaf auglýstur sem sá
skemmtikraftanna, sem bjó yf-
ir hvað mestu aðdráttarafli,
hann var hátindurinn á hverri
dagskrá og i hvert sinn er hann
sýndi listir sínar ríkti grafar-
þögn meðal áhorfenda og tæp-
ast þorði neinn að draga and-
ann. Stiginn, sem hann stökk
úr var hærri en kirkjuturninn
í Landakoti og sundlaugin,
sem hann stökk ofan í var litlu
meiri um sig en þvottafata og
í he:mi var ekki meira vatn en
svo, að rétt nægði til að væta
frímerki — samt sem áður
tókst hinum stórkostlega Frat-
ello alltaf að bjarga lífi sínu. í
tignarlegu stökki hitti hann
beint ofan í fötuna og þessir
fáu vatnsdropar nægðu rétt til
að taka af honum fallið. Þegar
hann stóð upp, gekk hann fram
á sviðið og hneigði sig meðan
hann var ofsalega hylltur af á-
horfendum, neri framkvæmda-
stjórinn saman höndum því
Fratello var virður þyngdar
sinnar í gulli, hann var stökk-
'meistari allra alda — og það
sýndi fjármagn það, sem kom
í kassann á hverju kvöldi, sem
hann sýndi.
En hann komst á efri ár,
gránaði fyrir hærum, og smám
saman missti hann eitthvað af
sjálfstraustinu. Það fór fyrir
honum eins og svo mörgum
öðrum snjöllum fimleikamanni
— hann fékk taugar. Þegar
hann stóð þarna uppi á pallin-
um, varð hann óstyrkur, hann
fékk svima svo hann sá allt
tvöfalt — þarna voru tvö ker
í staðinn fyrir eitt og þegar
hann stökk, þá vissi hann í
rauninni ekkert í hvort þeirra
hann átti að lenda.
Þannig getur það ekki geng-
ið til lengdar.
Hann bjargaði sér lengi vel
með því móti að stytta stigann
undir pallinum en eftir því sem
stökkhæðin minnkaði, varð
framkvæmdastjórinn að sama
skapi þungur á brún og Frat-
ello varð sífellt að leita fyrir
sér í minniháttar og ómerki-
legri sirkusum eftir því sem
leið á ævina.
Síðasta staðan, sem hann
fékk var hjá minnsta risasirkus
heims, áður en hann settist í
helgan stein og setti upp litla
tóbaksbúð í fæðingarbæ sín-
um. Stiginn hans var ekki orð-
inn nema 4—5 metra að hæð
og auk þess hafði hann stækk-
að kerið að miklum mun. Það
lá við að allir skemmtikraft-
arnir í þessum litla sirkus
kæmust í kerið.
Framkvæmdastjórinn hélt
alltaf fyrir augun þegar Frat-
ello stökk, svo ömurlegt fannst
honum þetta númer og ómerki-
legt. Þessi viðbrögð fram-
kvæmdastjórans gerðu veslings
Fratello enn þá óstyi'kari og á
hverjum degi varð hann að
saga ofan af stiganum.
En kvöld eitt þegar hann
mætti til leiks með venjulega
eldhúströppu, þá var mælirinn
fullur svo út af flóði.
— Ef þessi heimskingi fer ^ð
breyta númerinu sínu enn þá
einu sinni, öskraði fram-
kvæmdastjórinn hástöfum og
tætti svarta yfirskeggið sitt, þá
sparka ég svoleiðis í rasgatið á
honum að hann sjáist ekki
meir. Hér verður hann ekki
lengur. j
Fratello heyrði þessi óskÖp
og varð óstyrkur — á síðustu
stundu breytti hann númeri
sínu. Fimm mínútum seinna
var honum sparkað við undir-
leik hornaflokks.
í stað þess að stökkva úr stig-
anum og niður í kerið — stökk
hann úr kerinu og upp!
Willy Breinholst.
30
falk.i nn