Fálkinn - 28.12.1964, Síða 10
HVAD SKEÐUR ARIÐ 1965
SKÁLDASPÁ
Einhver heiur komizt þannig að orSi, a3 skáldin vœru spámenn og
sjáendur sinnar tíðar. Kannski er það eklá fjarri sanni; það eru til
aðrir spámenn en stjömuspámenn — t. d. þriggjastjömuspámenn,
og hvar œtti þeirra að vera fremur að leita en í hópi skáldanna.
Og þar eð vér viljum einskis láta ófreistað að gera spá þessa sem
áreiðanlegasta, höfum vér leitað til helztu fulltrúa eldri og yngri
fulltrúa skáldlista vora og beðið þá að segja álit sitt á þessum ára-
mótum og hinu nýja árí. Fyrir valinu urðu miðaldra bóndi að norðan,
kunnur hagyrðingur í sinni sveit; atómskáld á Mokkakaffi, sem
virtist þó ekld sjáandi, þegar vér sáum hann; skáld á heimsmœli-
kvarða og loks kvenskáld á heimamœlikvarða. Fara svör þeirra
hér á eftir:
Norðanskáldið:
Árarokkinn kerling knýr,
kasta mæði hlýtur;
færir hnokka, hjóli snýr;
hnökra af þræði bítur.
Atómskáldið:
Flugeldar...
timinn
plokkar glóandi glyrnur andartaksins
úr hauskúpu hins liðna
grýtir
þeim upp í gapmyrkt gímald
hins ókomna
cg
glæringarnar
hrjóta undan bryðjandi
gerviforlagajöxlunum...
Skáldið á heimsmœli-
kvarða:
Ha, árið . . . ha, sko ... hverju
á maður að svara?
Að það verði þurrt eða vott ár?
Sko. . árin, þau eru jú ýmist
að koma eða fara,
og allt eru þetta ... ha .. flott ár.
Jú, það mætti segja mér .. svona
með fyrirvara,
að sennilega yrði það gott ár ...
Ha ... kannski bara ágætt... jú,
— ætli það ekki bara?
Kvenskáld á heimamœli-
kvarða:
Er nýtt ár komið? Ennþá einu sinni?
Almáttugur hvernig tíminn líður ...
Nýtt ár... sem ungur gumi,
glæstur, fríður
með glóbjart hár .. í næstu sögu minni
hann verður prins í draumi dalameyja,
á dansleikjum þær fullar um það slást
að fá að aka í jeppa hans úr hlaði...
Þér vitið jú, að kræf er konuást.
Svo kemur framhaldið í næsta blaði.
10 FÁLKINN