Fálkinn - 28.12.1964, Page 14
Fálkinn hefur snúið sér til níu þjóðkunnra
manna og lagt fyrir þá alla sömu
þrautina: að teikna á blað mynd af
Jónasi í hvalnum. Enginn þessara manna
hefur nokkru sinni verið orðaður við
myndlist svo að okkur sé kunnugt og
stóðu því allir jafnt að vígi. Enginn þeirra
fékk umhugsunarfrest, öllum var gert
að rissa upp myndina jafnskjótt og við
birtumst með blað og penna. Aðeins einn
þeirra skoraðist undan. En hér birtum
við árangurinn af þessari skyndimyndlist
nímenningana. Eins og sjá má hafa þeir
allir brugðizt við hver á sinn hátt enda
fékk enginn að sjá myndir hinna, verk
þeirra allra eru algerlega sjálfstœð.
Þegar þeir höfðu lokið myndum sínum
fékk Kurt Zier, skólastjóri, þœr til handar-
gagns. Úr myndunum las hann margt
um skapgerð og viðhorf höfundanna og
athugasemdirnar eru hér birtar með
myndunum. Þess skal getið að Zier hafði
enga hugmynd um hverjir hefðu teiknað
myndirnar þegar hann fékk þœr í
hendur. Hann fékk einungis að vita að
þœr hefðu verið rissaðar upp í skyndi af
þjóðkunnum mönnum, en nöfnum þeirra
og stöðu var haldið leyndu. Og nú er
það lesenda að dœma hversu nœrri Kurt
Zier hefur farið um sálarlíf þessara
manna og lífsskoðun. Og jafnframt viljum
við þakka þessum níu heiðursmönnum
fyrir ágœta samvinnu, eins og áður er
getið féllust þeir allir fúslega á að leggjast
undir skurðhnífinn hjá Kurt Zier og
opinbera leyndardóma sálarinnar.
l Jökull Jakobsson.
Sagan af Jónasi hljóðar
svo í Gamla testamentinu:
Og orð Drottins kom til Jónasar Amittaísonar, svo-
hljóðandi: Legg af stað og far til Níníve, hinnar miklu
borgar, og prédika móti henni, því að vonzka þeirra
er uppstigin fyrir auglit mitt. En Jónas lagði af stað í
því skyni, að flýja til Tarsis, burt frá augliti Drottins,
og fór hann niður til Jaffa; þar hitti hann skip er ætl-
aði til Tarsis. Greiddi hann fargjald og steig á skip, í
því skyni að fara með þeim til Tarsis, burt frá augliti
Drottins. Þá varpaði Drottinn miklum stormi á sjóinn,
og gjörði þá svo mikið ofviðri á hafinu, að við sjálft
lá, að skipið mundi brotna. Skipverjar urðu hræddir og
hét hver á sinn guð. Og þeir köstuðu reiða skipsins í
sjóinn, til þess að létta á skipinu. En Jónas hafði gengið
ofan í negsta rúm í skipinu, lá þar og svaf vært. Þá
gekk stýrimaður til hans og sagði við hann: Hvað kem-
ur til, að þú sefur? Statt upp og ákalla guð þinn. Vera
má að sá guð minnist vor, svo að vér förumst eigi. Nú
sögðu skipverjar hver við annan: Komið, vér skulum
kasta hlutum, svo að vér fáum að vitar hverjum það
er að kenna, að þessi ógæfa er yfir oss komin. Þeir
köstuðu síðan hlutum, og kom upp hlutur Jónasar. Þá
sögðu þeir við hann: Seg oss, hver er atvinna þín og
hvaðan kemur þú? Hvert er föðurland þitt og hverrar
þjóðar ertu? Hann sagði við þá: Ég er Hebrei og dýrka
Drottin, Guð himinsins, þann er gjört hefir hafið og
þurlendið. Þá urðu mennirnir mjög óttaslegnir og sögðu
við hann: Hvað hefir þú gjört.! Mennirnir vissu sem sé,
að hann var að flýja burt frá augliti Drottins, því að
hann hafði sagt þeim frá því. Því næst sögðu þeir við
hann: Hvað eigum við að gjöra við þig, til þess að hafið
kyrrist fyrir oss? því að sjórinn æstist æ meir og meir.
Þá sagði hann við þá: Takið mig og kastið mér í sjó-
inn, mun þá hafið kyrt verða fyrir yður; því að ég
veit, að fyrir mína skuld er þessi mikli stormur yfir
yður kominn.
Þá lögðust skipverjar á árar og reyndu að komast
aftur til lands, en gátu það ekki því að sjórinn æstist
æ meir og meir. Þá kölluðu þeir til Drottins og sögðu:
Æ, Drottinn! lát oss eigi farast þótt vér glötum lifi
þessa manns, og lát oss ekki gjalda þess, svo sem vér
hefðum fyrirkomið saklausum manni; þvi að þú, Drott-
inn, hefir gjört það, sem þér þóknaðist. Þeir tóku nú
Jónas og köstuðu honum í sjóinn; varð hafið þá kyrt
14
FALKINN