Fálkinn - 11.01.1965, Qupperneq 7
CLEOPATRA
Það er rétt hjá ykkur þetta er
Cleopatra. En þetta er ekki Liz
Taylor í gervi þeirrar kunnu drottn-
ingar, heldur sænska leikkonan
Gunnel Lindblom. Gunnel Lindblom
er ein af efnilegustu kvikmyndaleik-
konum Svía um þessar mundir. Hún
gat sér gott orð fyrir leik sinn í
mynd Bergmans „Þögninni“ sem
verður væntanlega sýnd hér að
nokkrum mánuðum liðnum.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
EITT OG AIMIMAD
úr stjörnuhsiminum
☆☆☆☆☆☆☆☆
Brigitte Bardot hefur
fengið í sína þjónustu
einn af fremstu kokkum
Parísarborgar og á sá að
kenna henrii að matreiða.
Ástæðan er sú að núver-
andi viðhald, Bob Zaguri,
neitar að borða á veit-
ingahúsum.
—v—
Marlene Dietrich ætlar
að kaupa villu í austur-
ísku ölpunum handa eig-
inmanni sínum, Rudolf
Sieber, er hún hefur verið
gift í 40 ár. Rudolf er nú
um sjötugt og þolir ekki
aldurinn eins vel og hin
síunga Marlene Dietrich.
Heilsan er ekki upp á
það bezta hjá eiginmann-
inum og því vill Marlene
hafa hann í heilnæmu
loftslagi.
James Mason er skil-
inn við konu sína Pamelu
eftir 23ja ára hjúskap.
Anita Ekberg, sænska
kynbomban, hefur sótt
um ítalskan ríkisborgara-
rétt, því hún vill ekkert
með Svíana hafa lengur.
Hún leikur um þessar
mundir í ítölskum kvik-
myndum.
Jean Paul Belmondo, hinn
frægi franski leikari og kvenna-
gull, kvæntist 1953 henni Elo-
die sinni og á með henni 3 börn,
eins og myndin sýnir. Bömin
eru Paul 15 mánaða, Florence
5 ára og Patricia 11 ára.
Belmondo, sem hefur leikið
í 32 kvikmyndum við gífurleg-
ar vinsældir, hefur nú ákveðið
að leggja kvikmyndaleikinn á
hilluna og snúa sér í þess stað
að leikhúsunum í París. Enn
fremur hefur hann í hyggju að
eyða meiri tíma með fjölskyldu
sinnl, en hingað til hefur verið
mögulegt vegna anna.
Belmondo er góöur heimilisfaðir
IVIargaretha
Svíaprinsessa
Margaretha heitir unga
konan á myndinni, prins-
essan í Svíþjóð. Fyrir
nokkru giftist hún John
Ambler, enskum manni af
aðalsættum. Þessi mynd af
prinsessunni er tekin í stræt-
isvagni í London nokkru
fyrir brúðkaupið og þótt
fjöldi mynda hafi birzt af
henni í brezkum blöðum,
þegar verið var að ræða
væntanlegt brúðkaup, þá er
sagt, að enginn hafi borið
kennsl á hana þama í vagn-
inum.
MR
FALKINN 7