Fálkinn - 11.01.1965, Qupperneq 36
PL^,
FJELAGSPRENTSHIDJUNNAR
SPÍTALASTÍG 10 — (VIÐ ÓÐINSTORG)
ERU AFGREIDDIR MEÐ
DAGS FYRIRVARA
VAIMDAÐ EFIMI
Framleitt einungis úr úrvais
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIÐJAIM H.F.
Skúlagötu 57. — Sím5 23200.
Tilfinningasemi ...
Framhald af bls. 34.
bleiku blómunum, sem þrifust
svo vel hjá mér, og þröngu for-
stofuna með skrítna bréfakass-
anum. Og þegar hann svo
hringdi. Ég beið eftir honum
í rökkrinu og hélt að hann ætl-
aði aldrei að koma, en samt
var það indælt að bíða. Og svo
þegar ég opnaði dyrnar fyrir
honum-------Ó, ég má ekki
til þess hugsa. Nei, nei. Enginn
gæti afborið það, enginn.
Hvers vegna er ekið með mig
um þessa götu, engar pynting-
ar gætu verið hryllilegri. Ég
held að ég ætti að taka hend-
urnar frá andlitinu og litast
um. Ég þrái að sjá tréð og hús-
36
ið okkar einu sinni enn. Þá
brestur vesalings hjartað mitt
og ég dey. Ég ætla að horfa —
horfa.
Hvar er tréð? Er búið að
höggva það?--------tréð okkar?
Og hvar er gildaskálinn? og
hvar er blómabúðin? Og hvar
er húsið okkar? og hvar
er---------
Bílstjóri, hvaða gata er
þetta? 65ta? Ha, nei. Það var
ekkert, þökk fyrir. Ég — ég
hélt að það væri 63ja--------
Hver er hræddur . . .
Framhald af bls. 17.
uð Ijóð. Vinir hans segja, að
á þessum árum hafi Albee öðl-
azt reynslu, er kom honum að
góðu haldi síðar.
Tæplega þrítugur skrifar
Albee sitt fyrsta leikrit, Sögu
úr dýragarðinum, og þá var
vonleysið um það bil að ná full-
um tökum á honum. Leikrit
hans átti ekki upp á pallborðið
hjá löndum hans, fremur en
ljóðin, og ekkert leikhús fékkst
til að taka það til sýningar.
Vinur hans einn, er dvaldist
á Ítalíu, kom því á framfæri
í Evrópu og var það frumsýnt
í Vestur-Berlín árið 1959. Ári
síðar var það svo sýnt í Banda-
ríkjunum.
Þegar leikritið komst loks
fyrir almenningssjónir, vakti
það gífurlega athygli, og höf-
undur þess varð á svipstundu
frægur maður. Margir spáðu
honum nú miklum frama og
reyndust sannspáir.
Næsta leikrit Albee „The
Death of Bessie Smith“ er ein
þáttungur, eins og öll leikrit
hans að undanskildu „Hver er
hræddur við Virginíu Woolfe?“
og þar segir frá negrasöng-
konu, sem lendir í bílslysi og
er flutt deyjandi milli sjúkra-
húsanna, en fær hvergi inni,
því þau eru aðeins fyrir hvíta
menn. Síðan koma tveir ein-
þáttungar „The Sandbox" og
„The American Dream“ og er
fjölskylda Albee notuð þar sem
fyrirmynd, að því talið er.
Nú var röðin komin að „Hver
er hræddur við Virginíu
Woolfe?“ Albee hugsaði um
þetta leikrit í 6 mánuði. Þegar
hann svo settist niður til að
skrifa það, voru persónurnar
og bygging leiksins furðu mót-
uð. Hann gerði eitt uppkast,
strikaði út og bætti inn í með
blýanti og hreinskrifaði síðan
leikritið.
„Hver er hræddur við Virgi-
níu Woolfe?“ er í þrem þáttum
og fjórar persónur koma við
sögu: Hjónin Martha og Georg
(sem er söguprófessor) og hjón-
in Nick og Honey, en Nick er
að hefja kennslu við líffræði-
deild háskólans, þar sem Georg
kennir.
Leikritið gerist aðfaranótt
sunnudags í einbýlishúsi í ná-
munda við lítinn háskóla í
Nýja Englandi. Eldri hjónin
hafa boðið þeim yngri heim
eftir samkvæmi og þau setjast
að drykkju. Það er drukkið
stíft og brátt kemur að því að
persónurnar taka að særa
hver aðra og lestir þeirra og
brestir eru miskunnarlaust
dregnir fram. í leikslok eru
kynni okkar af þessu fólki orð-
in óhugnanlega náin.
Mörgum þykir Albee klúr og
víst mun einhverjum leikhús-
gesti þykja nóg um orðbragðið.
Albee notar ekki klám til
að krydda leikinn, heldur af
hreinni nauðsyn, svo hann geti
sýnt persónurnar eins og þær
eru. Hann sýnir persónum sín-
um enga vægð og gerir þær oft
broslegar á sorgar og alvöru-
stundum.
Blaðamaður Fálkans fylgdist
um stund með æfingum á leik-
ritinu og getur fullvissað
væntanlega leikhúsgesti um,
að hér er á ferð mjög gott
verk, sem mun áreiðanlega
enn auka hróður aðalleikend-
anna, Róberts Arnfinnssonar og
Helgu Valtýsdóttur, og leik-
stjórans Baldvins Halldórssoif-
ar. Þau Anna Herskind og
Gísli Alfreðsson fá þarna mjö£
skemmtilegt verkefni, sem
væntanlega færir þau fram um
nokkur skref á hinni erfiðú
braut, og gefur þeim jafnvel
tækifæri á að „slá í gegn.“
— Hann er sterkari en Art-
hur Miller, sagði Baldvin Hall-
dórsson um Albee og það var
auðfundið að hann var mjög
hrifinn af verkinu og höfund-
inum, sem reyndar hefur ver-
ið kallaður nýr O’Neill eða
ungi Strindberg. Og Tennessee
Williams segir skýrt og skorin-
ort: „Albee er eini mikli leik-
ritahöfundurinn sem Ameríkja
hefur eignazt." Og er þá eklii
lítið sagt.
Albee er ókvæntur og sagð-
ur upp á karlhöndina.
Að síðustu er ekki úr vegi
að segja frá tilsvari sem lýsir
Albee mjög vel: Það skeði ný-
lega í listasafni í New York
að leikkonan Jane Fonda kom
auga á Albee, hljóp til hans,
og sagði í hrifningartón: „Ég
elska leikritið þitt. Mér finnst
það svo voldugt, svo grípandi,
svo sundurtætandi. Hvað finnst
þér?“
„Já,“ sagði Albee. „Mér
finnst það líka fyndið.“
FALKIIMN
kemur út á hverjum
mánudegi
FÁLKIIMIM
tlýgur út á hverjum
mánudegi
FALKINN