Fálkinn - 18.01.1965, Page 38
Ermabönd.
Axlastykkið.
KVEN PEYSA
með útprjónuðu axlastykki
X BRÚNT
O GULT
□ HVÍTT
Efni: Nál. 550 g brúnt, 50 g gult og 50 g hvítt
gróft ullargarn.
Prjónar nr. 4 og 5. Hringprj. nr. 5. 19 1. = 10 cm.
Bakið: Fitjið upp 87—95 1 á prj. nr. 4 og prjónið
4 cm brugðningu (1 sl., 1 br.). Sett á prj. nr. 5
og prjónað slétt prjón, aukið út um 1 1. hvorum
megin með 4 cm millibili 4 sinnum Þegar síddin
er 38—40 cm eru felldar af 4 1. hvorum megin fyrir
handveg og því næst 1 1. hvorum megin í annarri
hverri umf., þar til síddin er 43—45 cm. Nú eru
27—31 1. í miðjunni geymdar og hvor hliðin
prjónuð fyrir sig. Fellt
af við handveg eins
og áður. Prjónað að
síðustu 4 1. að miðju,
snúið og prjónað til
baka. Haldið áfram að
minnka um 4 1. í
hverri umf. að miðju,
þar til 4 1. eru eftir.
Allar 1. settar á hjálp-
arprjóninn. Hin bilin
prjónuð eins.
Framstykkið: Prjónað eins og bakið, þar til
síddin er 38—40 cm. Þá eru 23—27 1. í miðjunni
geymdar. Fellt af fyrir handveg 4 1. hvorum megin.
Tekið úr og snúið eins og á bakinu.
Ermar: Fitjið upp 40—42 1. á prj. nr. 4 og
prjónið 6 cm brugðningu (1 sl., 1 br.). Sett á prj.
nr. 5, tekið jafnt út í 1. umf. svo 49—51 1. séu á.
Ermaröndin prjónuð samkvæmt skýringamynd og
síðan slétt, aukið út um 1 1. hvorum megin í 6.
hverri umf., þar til 69—73 1. eru á. Þegar síddin
er 42—44 cm eru felldar af 4 1. hvorum megin
og því næst 1 1. hvorum megin í annarri hverri
umf., þar til handvegurinn er jafn langur og á
framstykkinu. Prjónið þannig, svo að ermin verði
hærri við bakið: prjónið að 6 síðustu 1. snúið, takið
1 1. lausa fram af, prjónið út umf. Prjónið að
síðustu 12 1. snúið, takið 1 1. lausa fram af, prjón-
ið út umf. Haldið áfram á þennan hátt að prjóna
6 1. minna alls 4 sinnum, jafnhliða tekið úr í ann-
arri hliðinni sem fyrr. Lykkjurnar geymdar.
Hin ermin prjónuð öfugt við þessá.
Axlastykkið: Allt sett saman á hringprjón nr. 5.
Prjónið 2 umf. með brúnu og takið úr, svo að 222 —
240 1. séu á prjóninum. Nú er mynstrið prjónað.
Tekið úr í öllum þeim umf., sem mérktár eru með
bókstöfum. f umf. A eru teknar úr 30 1. á umf.
190—210 1. á. í B, C, D eru allar þær 1. sem
merktar eru með öfugu V prjónaðar saman. Eftir
Framhald á bls. 40.
Kastið ekki
stökum nælon-
sokkum. Sjóðið
þá saman augna-
blik, þá verða
þeir eins á litinn
og auðvelt er
að fá samstæðu,
sem að minnsta
kosti er ágæt
til hversdags-
notkunar.
RITSTJORI:
KRISTJAM
STEmr.RÍM$DÓTTIR