Fálkinn - 12.07.1965, Blaðsíða 18
riUGSYH
• Tigrisdýrin
Framh. af bls. 9.
alla leið heim úr borginni. Bush,
hugsaði ég, hver sem þú ert, þá
ætla ég að finna þig og það
fljótt, því ég þoli þetta ekki öllu
lengur.
Góða nótt, Bush. Sofðu rótt.
VII.
Koleski hringdi klukkan hálf-
niu morguninn eftir. Mér fannst
vera miður dagur, svo lengi hafði
ég verið á fótum og beðið. Ég
sagði honum, hvað Miller og
hinir tveir hefðu sagt mér.
„Bush,“ sagði hann. „Er það
allt og sumt?“
Jafnvel mér fannst það ekki
ýkja mikið í kaldri morgunskím-
unni. En ég sagði: „Það er samt
eitthvað, ekki satt? Það er þó
nafn.“
„Ég ætia að spyrjast fyrir um
það í unglingadeildinni," sagði
hann.
„Viljið þér að ég komi niður-
eftir?“
„Nei, ég hringi til yðar. Og
Sherris, gerið mér greiða. Farið
nú ekki að leita uppi alla Busha
í simaskránni og berja upp hjá
þeim.“
„Ég mun ekki gera það,“ sagði
ég, „en það eru samt lí'kur til
að þessi Bush búi hérna megin
í borginni. Ég gerði að vísu regin
skyssu um daginn, með bílinn,
en hugmyndin var rétt. Þeir voru
á heimleið og óku þennan veg,
hingað."
„Ég ætla að hafa það hugfast.
Verðið þér heima, ef ég þarf að
náí yður?“
„Ég verð hér.“
Hann lagði á. Ég lagaði aftur
könnu af kaffi og saknaði Tracey
eins og hluta af sjálfum mér.
og hugsaði um, hve hljótt væri
í húsinu án barnanna. Ég leitaði
ekki að Bush-um í símaskránni.
Þess gerðist ekki þörf. Ég hafði
þegar leitað og samið iista yfir
þá, sem komu til greina, fleygt
honum og samið annan. Ég hafð-
ist ekki að. Ég bara beið í of-
væni.
Um ellefuleytið hringdi sim-
inn og það olli allt að þvi von-
brigðum, að það skyldi vera
Tracey. Þó aðeins andartak. Ég
sagði henni hvað væri að gerast
og fullvissaði hana um, að allt
væri í iagi með mig.
„Ég held ekki, að þeir láti til
skarar skríða út af þessu með
bílinn,“ sagði ég. „Ef þeir ætl-
uðu sér það, hefðu þeir komið i
gærkvöldi."
„Ég vona að það sé rétt hjá
þér. Heldurðu að þetta — þetta
nafn geti ieitt til einhvers?"
„Get ekki sagt um það enn. Ég
er að bíða eftir símtali núna.“
„Láttu mig vita,“ sagði hún,
einhvern veginn litil og fjarlæg.
„Strax og ég get.“
Hún hringdi af. Ég skoðaði
huga minn um, hvort ég hefði
ánægju af að kvelja hana. Ég
gat neitað þvi hreinskilnislega.
Ef til vill var ég að reyna að
fá hana til að játa, áður en upp
kæmist. Ég vonaði, að hún gerði
það.
Koleski hringdi ekki aftur fyrr
en eftir hádegi.
„Það getur verið að þér hafið
heppnina með yður,“ sagði hann.
„Unglingadeildin hefur einn
dreng á skrá, sem heitir Bush.
Everett Bush, Shenangovegi
10710. Það er yðar megin í borg-
inni.“
„Já,“ sagði ég. „Ein af þessum
hálfleiðinlegu, nýju götum, u. þ.
b. mílu í vestur héðan." Ég reyndi
að tala rólega. En Koleski sagði:
„Verið ekki of vonglaðir, Sherris.
Þetta þarf ekki að vera sá rétti.
1 skýrslu hans er engin árás
nefnd. Hann hefur aldrei verið
sakaður um neitt alvarlegra en
smáþjófnaði og skemmdarverk,
og hann hefur aldrei verið á upp-
eldisstofnun. Svo ég segi eins
og er, þá var hann mjög sam-
vinnufús, játaði brot sitt fúslega,
lofaði að gera það ekki aftur og
var undir eftirliti í eitt ár. Það
er þó eitt í sambandi við það,
sem vekur athygli mína.“
„Hvað er það?“
„Reynslutími hans var útrunn-
inn 18. apríl.“
„Daginn eftir að þeir börðu
mig?“
„Já," sagði Koleski. „Þeir
hefðu getað verið að halda eitt-
hvað fleira hátíðlegt en afmæli
stóra piltsins."
Hann sagði mér að vera kyrr
og lagði á. Og ég beið. Það var
hitasvækja, og hver klukkustund
var tíu ár að líða.
Stundarfjórðung yfir tvö ók
Koleski bil sínum upp akbraut-
ina. Ég beið hans við dyrnar.
Kolsvartar brýrnar voru imykl-
aðar og hann var reiður á svip.
Með honum var ungur maður,
Davenport að nafni, frá unglinga-
deildinni, sem hafði haft eftirlit-
ið með Bush með höndum. Kol-
eski kynnti okkur eins og hann {
hataði o'kkur báða, og Daven-
port glotti. .
„Pete er vanur hóglífi," sagði
hann við mig. „Morðingjum, bóf-
um, bankaræningjum og svo-
leiðis rjómabollum. Hann hefur
ekki stangazt á við reiðu mömm-
urnar, þegar maður kemur og
hvessir augun á litlu englana
þeirra. Pabbarnir gefa manni
bara einstöku sinnum kjafts-
högg, en mömmurnar, — hú-ú!“
Koleski sagði: „Foreldrar
eldrar drengsins ætla að koma
Framh. í næsta blaði.
C.A.V. - LIÍCA8 - Girling
Allt í LIICAS rafkerfið
Allt í C. A. V. olíu- og rafkerfið
Allt í GIRLIIMG hemlakerfið
BLOS8I s.f.
Laugaveg 176 - Símar: 23285 og 37456
FÁLKINN