Fálkinn - 12.07.1965, Blaðsíða 32
Handknattleikur kvenna dró
að sér mikla athygli áhorfenda.
í honum tóku þátt þrjú lið, úr
Þingeyjarsýslu, Kópavogi og
Keflavík. Fyrsti leikurinn var
á milli Þingeyinga og Kópa-
vogsbúa og lyktaði honum með
jafntefli, 6 mörkum gegn 6, eft-
ir mikinn baráttuleik. Rokið
háði keppendum nokkuð, enda
fór, svo, að Þingeyingar, sem
léku undan vindi í fyrri hálf-
leik höfðu þá 4—1 en Kópa-
vogur réði hins vegar miklu í
þeim seinni.
Á stórum mannamótum sem
þessu eiga sér oft stað sviplegir
atburðir, og kom upp einn slík-
ur í liði Kópavogsbúa. Arndís
Sigurðardóttir, er átti að keppa
með liðinu lenti með fingurinn
í flökunarvél skömmu fyrir
landsmótið, og gat af þeim sök-
um ekki leikið með. En hún
mætti á mótið, stóð fyrir aítan
markið hjá liði sínu, og hvatti
það. Hún kvað það vera miklu
verra fyrir taugarnar að fylgj-
ast með svona utan við völljnn
heldur en að keppa sjálf með,
og hvað eftir annað sagðist hún
fá „tilfelli", þegar hurð skylli
of nærri hælum. En það leyndi
sér ekki, að hún var ánægð,
þegar liðinu tókst að rétta af
ófarirnar frá fyrri hálfleik. —
Fínt, stelpur, hrópaði hún, —
svona á þetta að vera.
í næsta leik kepptu svo Kefl-
víkingar og Þingeyingar, og
sigruðu Þingeyingar með 10
gegn 2. í handknattleik er
liðsmönnum venjulega skipt
inn á völlinn, svo keppendur
fái hvíld. Þegar Keflvíkingarn-
ir, sem biðu eftir að fara inn
á voru spurðir að því, hvort
ekki væri sárt að horfa á liðið
sitt tapa, svöruðu stúlkurnar
því til, að þær hefðu ekki átt
von á meiru, liðið væri samtín-
ingur, og hefði ekki æft mikið
fyrir mótið. Þingeysku stúlk-
urnar voru ánægðar í leikslok,
en sögðu þó að nú treystu þær
Keflvíkingum til þess að standa
betur í Kópavogsbúunum.
En allt kom fyrir ekki, þegar
Kópavogsbúarnir mættu Kefl-
víkingum skoruðu þeir 17 mörk
gegn 1 marki Keflvíkinga, og
voru því sigurvegarar mótsins.
Það var mikil gleði hjá liðs-
konum í leikslok, svo og hjá
Kjalnesingum þeim, sem mótið
sóttu, og tóku þeir liðskonurn-
ar og vörpuðu þeim hátt í Ioft
upp. Þjálfari Kópavogsliðsins
heitir Þórarinn Eyjólfsson, og
sagðist hann hafa þjálfað liðið
í mánuð fyrir mótið. Var hann
að vonum ánægður með árang-
urinn, — þær eru góðar, stelp-
urnar, bætti hann við.
Að lokum var rætt við Ester
Jónsdóttur, eina úr liði Kópa-
vogsbúa, og var hún spurð,
hvað henni hefði fyrst dottið í
hug, þegar hún var orðin sigur-
vegari. — Ja, ég veit ekki vel,
en þetta er náttúrlega agalega
gaman, sagði hún, og var greini-
lega öll í uppnámi.
Jurtagreining LANDSMÓTSMET IJMFÍ í FRJÁLSÍÞRÓTTLM
— Fullorðnir. —
1. Guðmundur Jónsson, HSK 39 stig
2. Viðar Vagnsson, HSÞ 38 — KARLAR:
3. Ari Teitsson, HSÞ 35 — 100 m 10.9 sek. Guðm. Vilhjálmsson UÍA 1952
4. Sturla Eiðsson, UMSE 32 — 400 — 53.3 — Rafn Sigurðsson UÍA 1955
5. Ágúst Eiríksson, HSK 28 — 1500 — 4:08.8 mín. Haukur Engilbertss. UMSB 1961
6. Guðmundur Benediktsson, UMSE .... 25 — 5000 — 15:30.3 — Haukur Engilbertss.UMSB 1961
32 fálkinn