Fálkinn - 12.07.1965, Qupperneq 28
Hafsteinn Þorvaldsson.
Bjarni Bjarnason:
— en séra Matthías sagði þetta við
strákana: Sjálfsagt að reyna, strákar
mínir, sjálfsagt að reyna ...
Sigurður Greipsson:
— tækninni hefur fleygt fram, og nú
getum við flutt sundlaugina með okkur
í poka ...
í landsmótsnefnd áttu sæti Ár-
mann Pétursson, Björn Sigurðson,
Hermann Guðmundsson, Hermann
Sigurjónsson, Stefán Jasonarson
og Hafsteinn Þorvaldsson, sem var
framkvæmdarstjóri mótsins. Eins
og að líkum lætur lögðu þessir
menn fram gífurlega vinnu við
allan undirbúning. Auk fram-
kvæmdarstjórastarfsins hafði Haf-
steinn með höndum stjórn viki-
vakasýningar á mótinu. Hafsteinn
er nú lögregluþjónn á Selfossi.
Allur aðbúnaður á Laugarvatni
var til fyrirmyndar og frétta-
mönnum útvarps og blaða sköp-
uð ágæt skilyrði, enda hefur
fréttaflutningur frá mótinu beint
athygli allra landsmanna að hinu
þróttmikla starfi UMFÍ og sann-
fært þá um „að æskufólk hinna
dreifðu byggða er tápmikið, stór-
huga og félagslega þroskað“ eins
og segir í ávarpi frá landsmóts-
nefnd.
Séra Eiríkur Eiríksson:
— æskunni þarf að lærast að skemmta
sér af eigin framtaki ...
Stefán Jasonarson:
— ef við treystum æskunni, þá svíkur
hún okkur ekki ...
Sveit USAH Þóra Jónsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir 5. Sveit UMSK Petrína Ágústsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Hildur Sæmundsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir .... 56.5 —
Sveit HSK Guðný Gunnarsdóttir, Ragnheiður Pálsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Þuríður Jónsdóttir 6. Sveit UMSE Katrín Ragnarsdóttir, Ragna Pálsdóttir, Hafdís Helgadóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir ..., ,... 56.7 —
falkinn