Fálkinn - 28.03.1966, Qupperneq 43
APPELSfNUR
MÁ NOTA
TIL MARGS
APPELSÍNU-
APRÍKÓSUMARMELAÐI.
Appelsínur og apríkósur fara vel
saman og úr þeim er hægt að búa til
ferskt marmelaði. Þar eð það er hrátt
er það vítamínauðugt.
% kg apríkósur 1 barnaskeið rot-
750 g sykur varnarefni
6 appelsínur (Betamon).
Aprikósurnar lagðar í bleyti yfir
nótt. Appelsínurnar þvegnar vel, flysj-
aðar og börkurinn saxaður ásamt aprí-
kósunum einu sinni í hakkavél. Þetta
hrært með safanum úr 6 appelsínum og
sykrinum, þar til hann er uppleystur.
Rotvarnarefninu hrært saman við. Sett
í hrein glös, bundið yfir. Geymist um
mánaðartima á köldum stað.
FLJÓTLAGAÐ
APPELSÍNUMARMELAÐI NR. I.
6 appelsínur 1 kg sykur
2 sítrónur i/2 msk. rotvarn-
nál. % 1 vatn arefni
Appelsínur og sítrónur þvegnar vel
og skornar í 4 hluta eftir lengdinni og
því næst í næfurþunnar sneiðar. Ávext-
irnir látnir liggja í vatni yfir nótt.
Kjörnunum haldið til haga, látnir í
grisju, sem sett er með ávöxtunum (f
þeim er hleypir). Sett í pott og soðið
nál. 40 mínútur. Sykri hrært saman
við, soðið áfram í nál. 10 mínútur.
Slökkt undir pottinum, rotvarnarefn-
inu hrært út í. Marmelaðið látið í glös,
bundið strax yfir.
FLJÓTLAGAÐ
APPELSÍNUMARMELAÐI NR. II.
6 appelsínur 800 g sykur
3 sítrónur y2 msk. rot-
4 dl vatn varnarefni
Ávextirnir þvegnir vel, saxaðir gegn-
wm hakkavél. Soðið með vatninu í 15
mínútur. sykri bætt út í, soðið í 45
mmútur í viðbót. Rotvarnarefninu
hrært út í. Látið strax í glös, bundið
strax yfir.
SYKRAÐUR
APPELSÍNUBÖRKUR.
Sykraðan appelsínubörk er gott að
nota i kökur f stað súkkats, einnig í
ábætisrétti og svo til skrauts.
Nctið þykkan börk, þvoið hann vel
og skerið 1 ræmur. Sett í skál, hulið
með köldu vatni og látið standa í 24
klukkustundir. Þá er börkurinn tekinn
upp úr vatninu og vigtaður. Notið síðan
sama magn af sykri (notið kristalls-
sykur ef til er). Sykurinn settur í þykk-
botnaðan pott, ásamt helmingnum af
vatninu, suðan látin koma upp, hrært
í á meðan. froðan veidd vel ofan af.
Börkurinn settur út í, soðinn þar til
hann er meyr. Sett í glös. Getur geymzt
nokkuð lengi.
Einnig er gott að geyma rifinn appel-
sínubörk og nota síðan sem krydd í
kökur. Rífið aðeins það yzta gulrauða
af berkinum á finu rifjárni, blandið
því rifna saman við sama magn af sykri
og setjið í lítil glös, sem siðan er bund-
ið yfir.
APPELSÍNUKREM.
„Orange Curd“ kalia Englendingar
það og þeir bera það fram með tei og
ætla ofan á ristað brauð, skonsur og
annað hliðstætt. Það er einnig ágætt
sem fylling í kökur.
Kremið er búið til úr 100 g af smjöri,
100 g af sykri, safa úr 4 appelsínum,
rifnum berki af 1 appelsinu, 1 msk.
sítrónusafa og 5 eggjum.
Smjörið sett í skál, linað dálítið.
Skálin sett í vatnsbað — þ. e. a. s. ofan
á pott með vatni i, öllu öðru hrært
saman við pvoin ^evtt saman fvrst.
Þeytt þar til það er samfellt, við væg-
an hita. Rötvarnárefni hrært saman
við ef vill.
APPELSÍNUÁBÆTIR.
Skerið flysjaðar appelsínur í þunnar
sneiðar, hellið yfir þær dálitlu sherryi.
Sett í lögum í skál ásamt útbleyttum,
soðnum steinalausum sveskjum. Hellið
góðu eggjakremi yfir, kryddið það með
appeisínusafa. Skreytt með þeyttum
rjóma, appelsínubátum og ristuðum
möndlum.
APPELSÍNU-
MAKKARÓNUÁBÆTIR
Skerið 6 appelsínur í þunnar sneiðar,
athugið að hreinsa allt það hvíta af
appelsínunum. Raðið sneiðunum á flatt
fat og stráið dálitlum sykri yfir Sett
í skál með 8—10 stórum makkarónum
og 3 dl þeyttum rjóma. 3—4 msk af
sherryi dreift á milli laga. Þarf að bíða
um 1 klst., áður en það er borið fram.
Skreytt með dáiitlum aukarjóma og
gróft söxuðu suðusúkkulaði.
TERTUKREM.
Þeytið 4 eggjarauður, þar tii þær eru
léttar og ljósar ásamt 3 msk. af flór-
sykri. Hrærið 1 dl af appelsínusafa og
2 msk. af sherryi saman við, Bræðið
2 matarlímsblöð og hrærið saman við.
Framh. á bis. 41
FALKINN
43