Fálkinn - 04.07.1966, Blaðsíða 35
^bankstt
Viftan
yfir
eldavéiina
Hreint og hressandi. Það er gaman að matreiða í nýtízku eldhúsi, har sem
loftið er hreint og ferskt. Það skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan,
hvetur hugmyndaflugið — og matarlykt og gufa sétjast ekki í nýlagt hár-
ið né óhreinka föt og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og
hreingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting. Með Bahco Bankett fáið þér raunverulega loft-
ræstingu, því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér
hún um eðlilega og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins í eldhúsinu og
næstu herbergjum. Soggetan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco
Bankett.
Hljóð. Þrátt fyrir soggetuna heyrist varla 1 viftunni. Bahco Bankett er
sennilega hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun á sium. Athugið sérstaklega, að Bahco Bankett þarfn-
ast engrar endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með
tímanum. Bahco Bankett hefur engar slikar, en heldur alltaf fullum af-
köstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr ryðfriu stáli. Bahco Bankett hefur hins vegar 2 stórar, varan-
legar fitusíur úr ryðfríu stáli, sem ekki einungis varna því, að fita setjist
innan í útblástursstokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan,
því að loftið fer fyrst gegnum síurnar. Fitusíurnar eru losaðar með einu
handtaki og einfaldlega skolaðar úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innhyggt Ijós og rofar. Lögun Bahco Bankett skapar 6-
þvingað svigrúm og sýn yfir eldavélina. Innbyggt ljós veitir þægilega lýs-
ingu og rofarnir fyrir ljós og viftu eru vel og fallega staðsettir.
Falleg, stilhrein og vönduð — fer alls staðar vel. Bahco Bankett er teiknuð
af hinum fræga Sigvard Bernadotte, eins og mörg fallegustu heimilistækin
i dag, og er sænsk úrvalsframleiðsla frá einum stærstu, reyndustu og ný-
tizkulegustu loftræstitækjaverksmiðjum álfunnar.
BAHCO ER BETRl. Það er einróma álit neytendasamtaka og reynslu-
stofnana nágrannarikjanna, að útblástursviftur einar veiti raunverulega
loftræstingu. Hagsýnir húsbyggjendur gera því ráð fyrir útblástursgati
eða sérstökum loftháfi. Þeir, sem endurnýja eldri eldhús, brjóta einfald-
lega gat á útvegg eða ónotaðan reykháf. Sú fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á boðstólum iétta og sterka,
hvíta plaststokka með beygjum og öðru tilheyrandi, sem hver og einn getur
raðað saman, án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rétt, veljið viftu, sem veitir raunverulcga’loftræstingu og heldur
alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust. Vcljið Bahco Bankett.
Komið, skrifið eða útfyllið úr-
klippuna og fáið allar upplýs-
ingar um Bahco Bankctt,
stokka, uppsetningu, verð og
greiðsluskilmála.
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndalista með öllum upplýsingum:
Nafn: ..........................................................
Heimilisfang: ...................................................
Föm
SÍMI 2442D. SUOURGÖTU !□
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. avríl:
Áður en þú tekur mikilvægar ákvarðanir
ættir þú að leita álits annarra meðlima
fjölskyldunnar, sem hefðu ýmislegt hagstætt
til málanna að leggja. Stutt ferðalög eru
heppileg og þú ættir að fagna heimsókn
vina þinna.
NautiO, 21. apríl—21. maí:
Það er ýmislegt sem bendir til að ferða-
lög muni verða hagstæð, sérstaklega ef
einhverjir skemmtilegir félagar taka einnig
þátt í þeim. Varastu þó að vekja of mikla
athygli, sem gæti hæglega verið misskilin.
Tviburarnir, 22. maí—21. júnl:
Verðir þú á ferðalagi, sem búast má við,
þá ættir þú að gæta sérstakrar varkárni
í mataræði að öðrum kosti yrði ferðin ekki
eins vel heppnuð og efni standa annars
til. Nýir möguleikar í fjármálum kunna að
skjóta upp kollinum.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Leggðu áherzlu á að ljúka nauðsynlegum
verkefnum, því þú mátt búast við að þu
fáir tækifæri til að sinna persónulegum
málefnum þinurn og vinna að hagstæðum
framgangi þess sem þig hefur lengi langað
til.
LjóniÖ, 2j. jiilí—23. át/úst:
Þú mátt búast við að fá nú uppfyllingu
vona og óska og fá tækifæri til að fram-
kvæma Það sem metnaður þinn hefur lengi
staðið til. Þó ættir þú að gæta þess að hafa
nóga hvíld og gæta heilsunnar.
Meyjan, 2h. ágúst—23. sept.:
Þótt heppilegt sé fyrir þig að treysta
þínum eigin hugmyndum, þá munu vinir
þínir og kunningjar verða þér sérstaklega
vinveittir og hjálpsamir og ættir þú að
þyggja ráðleggingar þeirra. Þú færð tæki-
færi til að auka vinsældir þínar.
Vogin, 2h, sept.—23. okt.:
Éf þér býðst tækifæri til að skifta um
starf þá er nauðsynlegt fyrir þig að at-
huga allar aðstæður vel, sérstaklega ef um
mikilvæga stöðu er að ræða. Ferðalög eða
sambönd við útlönd eru hagstæð þessa viku.
Drekinn, 2h. okt.—22. nóv.:
Þú munt verða upptekinn við að skipu-
leggja og fara í ferðalög þessa viku, svo Þér
geíst ekki mikill tími til að sinna öðrum
málum. Forðastu að blanda kunningjum
þinum of mikið í áform þin.
BoamaOurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þú þarft að nota þennan tíma til að
sinna sameiginlegum fjármálum því þetta
er hagstæður tími, scm skynsamlegt er að
nota vel. Búast má við að þetta kunni að
verða til þess að maki þinn eða félagi mót-
mæli harðlega en haltu þínu striki.
Steinpeitin, 22. des.—20. janúar:
1 þessari viku ætti vinnan að skipa fyrsta
sæti, en ef þú hefur tíma til þá er ekkert
á móti því að lyfta sér dólílið upp. Þér
mun allavega ganga bezt ef þú ert sam-
vfnnulipur og tekur tillit til vilja annarra.
Vatnsberinn, 21, janúar—19. fébrúar:
Éyddu ekki tímanum í að brjóta heilann
um málefni, sem eru langt frá þínum verka-
hring. Notaðu frekar timann til að endur-
skoða starfsaðstöðu þína. Þú ættir að um-
gangast sem mest þér yngra fólk.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Þú munt leggja mikla áherzlu á að
skemmta þér sem bezt þessa viku enda er
það hagstætt. Þó gæti farið svo að deilur
innan fjölskyldunnar kæmu í veg fyrir hag-
stæðan árangur. Fyrir þá sem ókvæntir eru
er von um skemmtilegt ástarævintýri.
FALKINN
35
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavík.
F 22