Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Síða 3

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Síða 3
DESEMBER 1996 3 STÚÐENTABLAÐIÐ HÁSRÓLAFRÉTTiR Námsráðgjöf Háskólans á tímamótum í tilefni af 15 ára afmæli Námsráð- gjafar Háskólans hefur verið gefinn út glæsilegur bæklingur um þá viða- miklu starfsemi sem námsráðgjöf er, en í fyrra veittu námsráðgjafar 3.722 stúdentum þjónustu sína. I bæk- lingnum kemur meðal annars fram að auk þess að geta farið í viðtal til námsráðgjafa geta stúdentar farið í svokallaða áhugakönnun þar sem teknar eru kerfisbundið saman upp- lýsingar um almennan áhuga sem tengist námi, störfum og fnstundum einstaklingsins. Utkoman felur ekki endilega í sér einhvem nýjan sann- leik heldur sýnir könnunin hvaða námsgreinar henta, hvaða starfsstétt- um einstaklingurinn á mest sameig- inlegt með og hvemig vinnuaðstæð- ur honum líka best. Niðurstöðumar vísa til fleiri en einnar starfsgreinar þannig að ekki fæst eitt algilt svar, en valkostimir liggja samt skýrar fyrir. Auk þessa geta námsráðgjafar hjálp- að stúdentum að breyta námsvenjum sínum, kveða prófkvíðann í kútinn sem og veitt þeim persónulega og sálfræðilega ráðgjöf, sem auðvitað er veitt í fyllsta trúnaði. Hagvangurmeð atvinnuráðgjöf Atvinnuráðgjöf stúdenta er spenn- andi valkostur fyrir stúdenta sem em að ljúka námi, en 1. september síð- astliðinn hóf hún formlega starfsemi sína. Gylfi Dalmann vinnur að at- vinnuráðgjöf stúdenta fyrir hönd Hagvangs og leiðbeinir hann stúd- entum til dæmis við að undirbúa at- vinnuumsóknir og atvinnuviðtöl og allt það sem stúdentar, sem em að þreifa fyrir sér á vinnumarkaðinum í fyrsta sinn, kunna að þurfa að vita. Það hefur komið í ljós að það er mjög mikilvægt fyrir stúdenta sem em að ljúka námi að búa sig undir framtíðina hvað atvinnu snertir í tíma en ekki daginn eftir brautskrán- ingu. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu Hagvangs þurfa fyrst að panta tíma hjá Hagvangi. Verkefnastyrkur Félags- stúdentaswpti stofnunar stúdenta tH Bandaríki‘ Verkefnastyrkur FS var veittur 28. október síðastliðinn og var það Hilmar Björgvinsson sem hlaut styrkinn að þessu sinni fyrir MS-rit- gerð sína, „Starfsemi sléttra vöðva í berkjum lungna". Hilmar lauk MS- próft 26. október síðasthðinn með fyrstu einkunn frá læknadeild Há- skóla Islands í heilbrigðisvísindum. Verkefnið var unnið á Lífeðlisfræði- stofnun H1 undir handleiðslu Stefáns B. Sigurðssonar, prófessors í lækna- deild. Verkefnastyrkur FS er veittur þrisvar á ári; tveir styrkir em veittir við útskrift að vori, einn í október og einn í febrúar. Nemendur sem skráð- ir em til útskriftar hjá HÍ og þeir sem em að vinna verkefni sem veita sex einingar eða meira í greinum þar sem ekki era eiginleg lokaverkefni geta sótt um styrkinn. Markmiðið með verkefnastyrk FS er að hvetja stúdenta til markvissari undirbún- ings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Styrkurinn nemur eitt hundrað þúsund krónum. Háskóli (slands gerðist nýlega aðili að bandarískum nemenda- skiptum ISEP (International Stu- dent Exchange Program). Um 22 bandarískir háskólar eru aðilar að samtökunum og gefst nú nem- endum HÍ í fyrsta sinn tækifæri til að taka hluta af námi sínu við bandarískan háskóla. Fyrirkomu- lag nemendaskiptanna er þannig að nemandinn borgar skóla- gjöld/innritunargjöld í heimaskóia sínum, umsóknargjald 225 Bandaríkjadalir, og gjald sem ætlað er til greiðslu fæðis og hús- næðis bandarísks námsmanns á (slandi. íslenskir nemendur fá í staðinn húsnæði og fæði/fæðis- peninga í Bandaríkjunum. Umsækjendur um ISEP-nem- endaskipti þurfa að taka TOEFL, enskupróf fyrir útlendinga. Næsti umsóknarfrestur fyrir TOEFL rennur út 25. nóvember næst- komandi fyrir próf sem verður 11. janúar. Þeir nemendur sem hafa hug á að sækja um fyrir skólaárið 1997- 1998 þurfa að taka TOEFL-prófið eigi síðar en 11. janúar og skila inn umsókn til Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins fyrir 15. janúar 1997. Nánari upplýsingar á Al- þjóðaskrifstofu háskólastigsins, Neshaga 16. Jafnrétti til náms? Við gildistöku lánasjóðslaganna 1992 fækkaði námsmönnum um liðlega þúsund. Af þessum hópi fækkaði barnafólki mest. í heild hefur námsmönnm fjölgað eitth- vað frá breytingunni en fjöldi bar- nafólks staðið í stað. Þá hefur námsmönnum í námi erlendis ekkert fjölgað frá því fækkunin mikla varð 1992. [ stuttu máli fækkaði þeim námsmönnum mest 1992 sem þurftu helst á lánunum að halda og þeim hefur ekki fjölgað aftur. Þetta vekur alvarlegar spurningar um hvort það ríki jafnrétti til náms. Hraðbanki í anddyri Stúd- entaheimilisins Þegar gengið er inn í Stúdenta- heimilið má á hægri hönd sjá þennan líka fína hraðbanka. Hraðbankinn hefur þótt nokkuð afskiptur undanfarið og er því stúdentum og öðrum, sem kunna að þurfa á peningum að halda, hér með bent á gripinn. Stúdentum neitað um afslátt af græna kortinu Græna kortið hefur ekki fengist í Bóksölu stúdenta síðan í haust en frá 1992 hafa stúdentar getað keypt það í bóksölunni á afslætti. Á síð- asta skólaári seldust t.d. um átta þúsund kort í bóksölunni. SVR og AV hafa ekki að svo stöddu viljað endurnýja samkomulagið við bók- söluna en vonir standa til að samningar geti tekist. i leVVW»K® l/a . Va\uT ** M- u\ar She«'Ned' ■Vottenh8n'' ■ rntaw mwmS S " 0.0 SgSl8a a ai ■ ®Ss 0 o 0 0 G7 a h ® ® B ® b a o a b 5 P ■ fiWf a m w b m f S ■ £3 0 ® BQ0a 0 ■ amZSSSæ " .0 aa ■ U iOOkr U 4001, SOOkr O ’ 000 fcr Q Í.000 M AB-.00 j ^nit 392—5L^W8Ón9Ut as a fxi nn upphæó Leikskráin inniheldur leiki vikunnar, og liggur frammi á sölustöðum Lengjunnar. órva\sde'W £.vfópu^eP^n' ~'r"'385 a.o° o-50 5 5,18 >0 3'5q 2,20 45 2,00 ,80 fl 285 3. 1,6° 23eJ ®Q '3° 88 33 3 Velkomin oð netfangi WWW. TOTO. IS ' eng V.deitóhv. i. de'id Orvaiede'111 ;her C'W Ú'iiA mí"net 3 loiki, m«*6.e,k,a9si4.m ihe.see edon 8»d*u,n tótonV'"a iMetP°°' ' ,ca9° X/iidnoo'

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.