Stúdentablaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 6
I
6
STÍIÐENTABLAÐIÐ
s t ö f f
DESEMBER 1996
MYNDBOND
Sugar, Barb og Ta
Vonir og vænting
I " B | ' I I ■ ' I
þriggja tubuljoska
Það olli mér töluverðum heilabrotum hvaða þijár „góðu“
myndir ég ætti að fjalla um í þessum pistli og ég var mikið að
velta þessu fyrir mér um helgina er ég stóð í óralangri biðröð
fyrir utan óneíhdan skemintistað í miðbænum. Ég á það til að
standa alltof lengi í svona röðum og ákvað því að hefja kurteis-
legar kvikmyndasamræður til að drepa tímann. Eftir skamma
stund höfðu umræðumar umbreyst í ískrandi rifrildi, mér var
sagt að þegja, ég væri fáviti, örviti, óviti þegar að kvikmyndum
kæmi og þar fyrir utan væri
ómögulegt að skilgreina
góða kvikmynd og hananú.
Fínt. Ég stóð áfram í röð-
inni, helblá með hænurass-
hárgreiðslu og naglakul, og
fylgdist með súperpæjum í
pínukjólum streyma inn og
út um dymar á Fyrirheitna
staðnum. Og það varð
ljós(k)! Ljóskur-dúkkuleg-
ar þokkagyðjur, malandi
kisulórur með kattmjúka
rödd og dillandi hold. Kjör-
ið viðfangsefni. Marilyn
Monroe og Paniela Ander-
son. Platínudrottningin og
plastpían. Some like it hot
og Barb Wire.
Some like it hot er
bandarísk gamanmynd frá
I959. Marilyn leikur þar
Sugar Kane, drykkfelldan
hljóðfæraleikara í djasshljómsveit sem samanstendur af fimmt-
án blondínum og tveimur karlmönnum í „draggi". Dísæt trítlar
Sugar um á pinnahælum í glimmerkjólum og dreymir
kandíflosdrauma um að giftast blíðlyndum milljónamæringi
með gleraugu.
Barb Wire er aftur á móti framtíðarhasarmynd gerð í ár.
Pamela er þar harðskeytt viðskiptakvendi og hausaveiðari sem
þeysir um á mótorfák íklæddd latexlífstykki með basúkkuna á
öxlinni, plaffandi niður mann og annan.
Það eru 45 ár á milli þessara tveggja mynda og mikill munur
á kvenpersónunum. Sugar fellur stöðugt í faðm rangra manna,
lætur ljúga sig fúlla með viskífleyginn í sokkabandinu, rallhálf
og vamarlaus bíður hún eftir prínsinum. Hún höfðar til vemd-
artilftnningar karlmannsins, er álíka agressíf og [xittablóm og
með svipað gáfnafar og ekki er hægt að segja að hún sé svöl.
Það á Barb aftur á móti að vera, allhressilega. Hún er sjálfstæð
kvenffelsisgella með sprengingar við hvert fótmál. Hún bjargar
heimínum, sprengir fitu-
bollur í loft upp og kveður
ástina sfna pent í stað þess
að falla í fang hans með titr-
andi tár á hvarmi. sprungin
af harmi. ITún erpæja. Barb
er Sjálfstæð kona.
Það virðist aldeilis hafa
orðið „viðhorfsbreyting“
eða hvað?
Persóna Barb er byggð á
teiknimyndafígúru. Gyðj-
urnar eiga það sameiginlegt
að vera ljóshærðar, að hríf-
ast af efhislitlum fötum og
stílettuhælum og svo sést
töluvert í barminn á þeim
allan tímann. - Reyndar svo
rnikið á Pamelu að eftír að
horfa á myndina fékk ég
skelfilega maitröð þai' sem
geirvörtumar duttu af mér,
hvað sem það kann að
merkja. Kvikmyndin Barb Wire vekur mann lii umhugsunar:
„Hvernig getur hún andað? Af hverju eru þau í tígrisfelubúning-
um? Sér hún út úr lubbanum? Ætli hún sé að fela tálkn eftir
buslið í Baywatch? Er Guð til? Af hveiju í andsk. er ég að hoifa
á þessa mynd?“
Ég verð að segja að Some like it hot er miklu skemmtilegrí
mynd en Barb Wire. Þó að Sugar sé vamarlaus kventuska á fá-
vitamörkunum, þá var Marilyn svo heillandi að það vó upp á
móti ölluin göllum. Pamela hefur álíka mikinn sjarma og um-
ferðarslys, svo ég vitni í Hitch hiker's guide eftir Douglas Ad-
ams. Hún á bara að þegja og vera berrössuð!
Ég var beðin að skrifa um þrjár kvikmyndir. Sem fulltrúa
risastórrar stéttar þar sem framslæð, Ijóshærð léttúðarkvendi
koma mikið við sögu valdi ég Töiyu, en hún er aðalpersónan í
Blondinen fra Danmark. Raunsætt drama um samskipti kynj-
anna á vinnustað; aðalstjarnan Tanja og þrjár samstarfsstúíkur
hennar vinna trúnað yfirmanns síns. í hulstrinu stendur:
„Danske Tanja hai' taget sexverdenen
med storm. Med hendes lange ben, de
perfekte bryster og skandinaviske
udseende er hun typen pa et fotomodel.
Her spiller hun sammen med tre andre
blondincr og sin store, sorte og stygge
ehef Roy.“ Þetla er fyrsta og síðasta
„erótíska" kvikmyndin sem ég sé í
heild sinni. Mikið svakalega cr leiðin-
legt að fylgjast með atburðarásinni.
Eftir að ffwd-takkinn vtu- fundinn upp
skil ég ekki hvað menn eru að rembast
við að klambra santan söguþræði,
Henregud.
Guörún Dögg Guðmundsdóttir
rússneskunemi
FERHIHGARHTMD
MANAÐARlNS
Dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson er fermingarbarn
mánaðarins
„Ég held að ég hafi verið fjórtán ára þegar ég fermdist með systur minni, sem var þrettán ára, og það
hlýtur að þýða að ég hafi verið fermdur árið 1967. Séra Garðar Svavarsson fermdi mig í Laugames-
kirkju. Það voru þama tvær eða þrjár stúlkur sem féllu í yfirlið, sem er reyndar mjög algengt, en að
öðm leyti var fermingin ekki eftirminnileg. Það var haldin einhver veisla eftir athöfnina en ég man
nú ekkert hvað ég fékk af gjöfum. Ég tók þessi fræði ekkert sérlega inn á mig. Hins vegar kenni ég
það - og stend við það - í fyrirlestrum mínum að homsteinar borgaralegs þjóðfélags em þrír;
eignarrétturinn, íjölskyldan og í þriðja lagi annaðhvort trúarbrögð eða sterkar siðferðis-
skoðanir. Ég er ekki í þjóðkirkjunni núna, ég hef skráð mig úr henni, en ég er ekki heldur heiðinn. Ég er í öðmm trúarsöfn-
uði og greiði kirkjugjöld mín til kaþólsku kirkjunnar. Ég tel að hún sé eina almenna raunvemlega kristna kirkjan, þannig
að ef menn vilja sýna ræktarsemi og virðingu við kristnina þá eiga þeir að vera í þeirri kirkju."