Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Page 14

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Page 14
H DESEMBER 1996 ---------- STUDEHTABLAÐIÐ m o I a r 11.00 Messa í Háskóla- kapellunni - kaffi og kökur í boði guðfræði- nema á eftir 13.00 Minni Jóns Sigurðssonar í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu 14.00 Dagskrá í Háskólabíói. Yfirskrift: Lánasjóður íslenskra námsmanna a. Formaður SHÍ býður fólk velkomið b. Ávarp rektors HÍ c. Ræðumenn d. Ávarp formanns stjórnar Hollvina- samtakanna Háskólakórinn syngur Stúdentaleikhúsið með létta spretti Bjóddu veðrinu birginn í Francital hUfðariatnaði Hann er vatnsheldur, lipur og með góðri öndun. Tilvalinn í gönguferðir, j við skíðaiðkun og auðvitað í skólann. A Jakki kr. 12.990 - Buxur kr. 8.480 Snorrabraut 60 • Slmi 561 2045 „Það sem ég hef verið að gera er að búa til svokallaða agenta eða gervifólk í sýndarveruleika," segir Helga Waage sem starfar sem forritari hjá OZ, en starfsfólk Oz vinnur meðal annars að sýndarveruleikaforriti; OZ virtu- al, sem ér notað til þess að skoða þvívíddarheima á Inter- netinu. „Gervifólkið hefur kannski þann tilgang helstan að hafa ofan af fyrir fólki en getur líka aðstoðað það. Dúkkurnar hafa sinn líkama og það er enginn sjáanlegur munur á þeim og öðrum í sýndarveruleikanum, en þeim er stjórnað af gervifólki. Þú getur talað við þær eins og þú getur talað við aðra notendur og svo geta sumar þeirra svarað með hreyfingum eins og að hoppa,“ segir Helga. Nú þegar eru tveir karakterar tilbúnir, Adam og Theresa, og hafa þeir sín sérkenni: „Adam og Theresa hafa bæði sína heimasíðu þar sem hægt er að nálgast þau. Theresa er dúkka sem heldur að hún hafi verið lokuð þarna inni í 2.000 ár en Adam hjálpar fólki um OZ virtual. Karakterarnir sem við erum að búa til geta allir svar- að persónulegum spurningum eins og flest fólk og svo eru þeir sérhæfðir,“ segir Helga, en í desember verða tvær nýjar per- sónur kynntar: „Önnur er heim- spekingur - getur vitnað í heim- spekinga - en hin er suðurríkja- blondína sem er að leita sér að ríkum eiginmanni. Auk þess erum við með annan karakter í gangi, en hann vinnur í plötubúð,“ segir Helga. Þess má geta að enskunemarnir Halldóra Tryggvadóttir, María Pétursdóttir og Unnar Örn Harð- arson gerðu þekkingargrunn Ther- esu að BA-verkefni sínu og nutu við það leiðsagnar Martins Regal og Matthews Whelpton. fh ere i

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.