Stúdentablaðið - 01.12.1996, Qupperneq 15
DESEMBER 1996
15
' STÍIDENTABLAÐIÐ
m o I a r
HÁSKÖUERÉTTIR
Sérhvert
próf
rússnesk
rúlletta
Ef námsmaður veikist eða fellur á
prófi situr hann uppi með hundr-
aða þúsunda króna skuld á yfir-
drætti og verður að hætta í námi
til að greiða upp bankaskuldir. Ef
námsmaður féll þegar fyrra kerfið
var við lýði skuldaði hann á hinn
bóginn lánasjóðnum námsárangur
og fékk tækifæri til að skila honum
í upptökuprófi að hausti eða á
næsta námsári. Námsmenn þurftu
því ekki að hrekjast úr námi til að
geta greitt skuldir í bönkum, held-
ur gátu einbeitt sér að því að
vinna upp þann námsárangur sem
upp á vantaði. Námsmenn hafa
aldrei krafist þess að lán væru
veitt án þess að þeir skiluðu til-
hlýðilegum námsárangri.
Námsmenn mótmæla því hins
vegar harðlega að hvert einasta
próf sé eins og rússnesk rúlletta,
þar sem námsmenn eiga
fjárhagslega afkomu sína undir því
að hlekkjast ekki á. Það er sóun á
tíma og hæfileikum að vegna
smávægilegra mistaka eða veik-
inda þurfi námsmenn að hrekjast
út á vinnumarkaðinn til að greiða
bankaskuldir.
Fara hús
og nám
ekki
saman?
Endurgreiðslur af námslánum f
dag taka til sín helmingi hærra
hlutfall ráðstöfunartekna ungs
fólks sem er nýkomið úr námi
en endurgreiðslubyrðin fyrir
lagabreytingarnar á LÍN 1992.
Þetta veldur því að stórum hluta
ungs fólks er gert ókleift að
koma þaki yfir höfuðið að námi
loknu. Húsnæðisstofnun gerði
greiðslumat sem sýndi fram á
að fólk þarf að hafa háar tekjur
og búa yfir umtalsverðum
höfuðstól inni á banka til að
hafa möguleika á að koma þaki
yfir höfuðið miðað við núverandi
endurgreiðslubyrði.
'tl
BÓNUS
LJÓÐ
Tvær bækur Andra Snæs
Nýlega sendi ungskáldið og há-
skólastúdentinn Andri Snær
Magnason frá sér tvær bækur; Engar smá sögur og Bónusljóð. Á kápu fyrri bókarinnar, sem Mál og menning gefur
út, segir meðal annars um sögumar að þær séu skrifaðar af frásagnaigleði og djörfum húmor, þar sem söguhetjum-
ar takist á við tilveru sem lýtur óvenjulegum lögmálum og einkennilegir
hlutir gerast. Síðamefnda bókin er sérstaklega framleidd fyrir Bónusverslan-
imar og lýsa ljóðin guðdómlega gleðilegu ferðalagi í gegnum undraveröld
nútímastórverslunar. Sem dæmi um Bónusljóð: --------------------------------
- Það var víst hjartnæmt
þegar strákurinn frá
10-11
kyssti Júlíu á kassa 3
bak við
Svalafernurnar.
Tíminn er afstæður þegar
bækur eru annars vegar.
Sumar verða sígildar á meðan aðrar rykfalla í gleymsku.
Þekkingarleitin hefst hjá okkur í nútíma bókaverslun með fjölbreytt úrval fræðibóka,
handbóka og tímarita. Auk þess er sérpöntunarþjónusta okkar í tengslum við yfir 5.000 bókaforlög
víðs vegar um heiminn. Þú getur pantað bækur í verslun okkar, eða beint af heimasíðunni
htt p ://www.centru m. is/un i books/
hcksU^ /iudler\t^
Við Hringbraut • 101 Rvk. Sími 561-5961 Fax 562-0256