Stúdentablaðið - 01.12.1996, Side 19
DESEMBER 1996
19
STÚDENTABIAÐIÐ
s a g a n
kosið. Þetta var dálítil sýning. Þeir
sem kusu fengu svaka flotta límmiða
í barminn: „I voted”-stöðutákn.
Um kvöldið var okkur svo boðið á
kosningavöku hjá menningar-
stofnuninni. Þar var múgur
og margmenni, ótrúlegt
magn af rennandi og föst-
um veitingum, sjónvörp á
tveimur tungumálum, Inter-
nettenging og gáfulegar sam-
ræður af öllum toga. Strax um tíu-
leytið voru úrslit orðin fastnegld og
upp úr því fóru menn að tygja sig.
Við vorum þó ekkert á því að fara
heim í háttinn og skiptum því liði og
héldum á kosningavökur. Hluti
hópsins fór á Hilton þar sem DNC-
nefndin (Democratic National
Campaign) var með vöku sína en af-
gangurinn af liðinu ákvað að skella
sér til ungra demókrata á Holiday
inn á Capital Hill. Á báðum stöðum
var sama sigurstemmningin; allir í
góðu skapi að ræða bjarta framtíð
með annað augað á sjónvarpsskján-
um. Þegar svo sjálft goðið mætti á
skjáinn var veiað, klappað og blístr-
að á milli þess sem menn hlustuðu af
andakt.
Daginn eftir hófst dagskráin um
um morguninn, en vegna dularfullra
veikinda sem gerðu vart við sig strax
þá um nóttina voru það einungis hin-
ir huguðu og hraustu sem komust á
Hilton til að ræða um úrslitin, -
aðrir notuðu morguninn til að
jafna sig. Flugið okkar var þá
strax um kvöldið, svo nú fór
hver að verða síðastur að
skoða það sem ekki hafði
náðst í vikunni og kaupa minja-
gripi handa fólkinu í frostinu heima.
Deginum var annars misgáfulega
varið, en metið átti þó án efa Lilja
Dögg, sem „leið” inn í eftirmiðdag-
inn með þær fréttir að hún hefði séð
Clinton þegar hann kom út á svalim-
ar á Hvíta húsinu til að ávarpa mann-
fjöldann. Það var ekki laust við að
hún væri öfunduð af okkur hinum
slappari, en við vorum þó hæstá-
nægð með að hafa átt fulltrúa við
hyllingu aðalmannsins.
Við héldum heim í eftirmiðdag-
inn, slöpp og þvæld en reynslunni
ríkari, pínulítið örg yfir að þurfa að
halda heim í frostið og ritgerðaskilin
en stóránægð með ferðina. Þegar lit-
ið er um öxl er þetta einhver óvenju-
legasta vika sem við höfum lifað. ■
F ullveldisf agnaðurinn
endurvakinn
- mætum öll
Fullveldisfagnaður verður haldinn á
Hótel Sögu laugardaginn 30. nóvember
næstkomandi. Að fagnaðinum standa
Hollvinasamtök Háskóla íslands,
Stúdentafélag Reykjavíkur, Félag íslenskra
háskólakvenna, Stúdentaráð Háskóla íslands,
Félag prófessora og Félag háskólakennara.
Miðaverð til stúdenta
er 3.900 krónur. Miðapantanir eru á
skrifstofu Hollvinasamtakanna,
sími 5514374, bréfsími 5514911
og netfang sigstef@rhi.hi.is
Kolbeinn Ottarsson Proppé sagnfræðinemi:
Þetta er náttúrlega fáránleg
spurning, það er ekki hægt að
velja einn sögulegan atburð og
segja hann merkilegri en allt
hitt. En kannski fyrir utan það
að við misstum rófuna og
fórum að ganga þá myndi
ég sennilega segja að
franska stjórnarbyltingin
hafi verið með merkilegri
atburðum sögunnar.
t Vegna þess að þegar kónginum var steypt af stóli og hann síðan hálshöggvinn þá hætti full-
■ veldið að vera hjá konunginum og færðist til fólksins. í kjölfar þess þurfti að skilgreina
■L fólkið, spurningin Hvað er þjóð? vaknaði. Krafa var gerð um eina þjóðtungu
A og slíkt, áður hafði engu máli skipt á hvaða tungu þegnar konungs eða
A keisara töluðu. Menn fóru að skilgreina sig sem eina þjóð og þá kviknaði
A þjóðernisvitund hjá fólkinu sem síðar leiddi af sér þjóðernishyggju og
þjóðernisbaráttu, sem ég myndi áætla að væri sá faktor sem hefur haft
A hvað mest áhrif í heiminum á síðustu tveimur öldum.
Merkilegasti
sögunnlar
Háskólastúdentar
Munið ódýru
jólafargjöldin
hjá okkur
Stokkhólmur 29.960
Lúxemborg 30.110
Amsterdam 30.160
Hamborg 30.200
London 30.360
Kaupmannahö fn 30.600
Osló 31.220
Ferðatímabil 15. desember til 31. desember
Lágmarksdvöl 7 dagar
Hámarksdvöl 30 dagar
FERÐASKRIFSTOFA
STÚDENTA