Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Page 24

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Page 24
24 h t DESEMBER 1996 STUDENTABLÁÐiÐ a n d r i ( vor var þess minnst með pomp og prakt að 25 ár eru liðin frá heimkomu handritanna. Af því tilefni voru höfuðdýrgripir þjóðarinnar, Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða, hafðir til sýnis. Víkur nú sögunni annað. Til Islands koma árlega yfir 200.000 erlendir ferðamenn og flestir hafa ein- hvem grun um að hér leynist eitthvað sem kallast Sagas. 90% þeirra koma þó hingað í stuttar ferðir vegna náttúrufeg- urðarinnar. Þeir hoppa upp í rútu og keyra út á hringveginn með regluleg- um stoppum í hamborgarasjoppum eftir að hafa staldrað við og tekið mynd af stærsta og dýrasta djásninu, hamborgarastað allra hamborgara- staða, Mekku íslenskrar majones- menningar sem er auðvitað perlan (í óvirðingarskyni hef ég perluna með litlum staf). Glæsilegar um- búðir utan um ekki neitt, tákn fyrir það holrýrrú sem íslensk menning skilur eftir í hugum ferðamanna. Reyndar er víst ætl- unin að eyða 8 milljónum í disn- eygoshver fyrir utan perluna svo eitthvað sé að sjá þar og verður hann víst miklu stærri og flottari og raunvemlegi en Geysir. En hvað skilur þessi ferð eftir annað en fjöll í minningunni og kokkteilsósu í blóð- inu? Hvers er þessi útlendingur vísari um hvað það er að vera íslendingur? Gætum við ekki alveg eins verið enskumælandi þjóðgarðsverðir á japönskum bílum? íslendingar keppast við að sýna að við séum heimsborgarar með því að troða hamborgurum ofan í fólk en lítil áhersla er lögð á að sýna þeim það sem virkilega skiptir máli, það sem gerir oss að þjóð, menningar- arfinn sjálfan, enda er þorri íslendinga jafn grunlaus um hann og aðrir útlend- ingar. Gleymd eru landsins fomu kvæði. N Síðasta sumar komu um 1.700 manns til að skoða menningar- arfinn í Ámastofhun, flestir erlendir ferðamenn en alltaf slæðist einn og einn íslendingur með. Það er inn- an við 1% af heildarfjölda ferða- manna. Restin fer í Ferstiklu eða Hlíðarenda. Það verður að teljast mjög alvarlegt mál ef merkileg- asta framlag fslendinga til heimsmenningarinnar fer fyrir ofan garð og neðan, okkar Móna Lísa, okkar Mozart (reyndar höf- um við Björk), okkar Shakespeare (þótt hann komist ekki með tæmar þar sem Njála hefur hælana). Ég var að fárast yfir þessu við vini mína en enginn þeirra skildi hvað ég var að fara. Þeir höfðu ekki hugmynd um hvað væri geymt í Konungsbók eða Flateyjarbók og ég gekk út á strætin og hrópaði út í nóttina hvort einhver vissi hvað leynd- ist í þessum fomu bókum. ENGINN vissi. Kannski þyrfti japanskur kaup- sýslumaður með Wagneræði (tónlist Wagners er að mestu leyti byggð á hetjukvæðum Konungsbókar) að bjóða nokkra milljarða í Konungsbók Eddukvæða til að fólk rankaði við sér og skildi hvflík verðmæti við emm með í höndunum. Miðað við rýmið sem eytt er í að sýna ekki neitt í perlunni verð- ur að segjast eins og er að það er sorglegt að sjá hvemig búið er að menningararfmum. Sýningarað- staðan í Ámastofnun er ekki nema rúmir fimmtíu fermetrar og þar ríkir kyrrð og fegurð. Fallegar myndir prýða veggi og handrit liggja í köss- um. Nýlega var ráðinn starfsmaður til að sjá um sýn- ingamar. Þar hefur allt færst til betri vegar, ítarlegri upplýsingar em komnar í kassana og mikið líf í leið- sögninni. Áður var látið nægja að skrifa. AM 566 a 4 to. Skinnhandrit. Skrifað á ofanverðri 15.öld. Það er hægt er að fá mjög góð- ar upplýsingar hjá safnverði, en um leið og fleiri en tíu manns em inni verður ljóst að miklu meiri umgjörð þarf um arfmn og fleiri starfsmenn. Þetta ætti að vera fyrsti og jafnvel eini staðurinn sem fólk skoðar á landinu. Fólk á að koma hing- að og fá beint í æð tilfinninguna fyrir allri listinni, ástinni, hatrinu, sæmdinni, hefndinni, blóðinu og dauðanum en umfram allt tilfmninguna fyrir LÍF- INU. Hvað það er og hvað það var að vera íslendingur. Það er erfitt að koma slíku að á 50 fermetra svæði fyrir fleiri en fimm í einu. Menn- ingararfurinn er svo yfirfullur af ást og ofbeldi og furðum og feg- urð að hann á skilið miklu stærri og aðgengilegri umgjörð og þá væri hægt að vekja áhuga fleiri en nú er hægt, bæði hjá ís- lendingum og útlendingum. Ekki 1.700 heldur 170.000. Ferðamenn sem hingað koma em flestir vel menntað- ir, bakpokaskríllinn er að mestu leyti háskólafólk sem hefur kynnt sér land og sögu. f geymslum Ámastofnunar em heilu sólarhringamir af rímnasöng til á spólum. Af hveiju em ekki gefin út sýnishom á geisladiskum? Það er hræ- ódýrt og textinn gæti fylgt með. Ef rím- umar eiga ekki að deyja út endanlega verður þetta að gerast, gott íslenskt miðaldarapp með ofbeldistextum ætti að ná til einhverra. Utlendingar myndu

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.