Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 26

Stúdentablaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 26
26 DESEMBER 1996 STÚÐENTABLAÐIÐ m o I a r Hugrún Hrönn Ólafsdóttir spjallaði við Armann Jakobsson sem hefur nýlokið mastersgráðu í íslenskum bókmenntum. Ritgerðin hans nefnist: I leit að konungi og Ármann fékk einkunnina 10 fyrir hana. Trúi ekki á ofurmenni Leitin að Guði, tilvistarkreppa og til- gangsleysi eru við- fangsefni Douglas Coupland i smá- sagnasafninu Life after God. „You are the first generation raised without reli- gion“ eru nokkurs konar einkunnar- orð bókarinnar og jafnramt vinnutilgáta höfundarins. Sögurnar, sem sumar tengjast innbyrðis, segja frá per- sónum sem allar eiga í bölvuðu basli með sjálfar sig, berjast við tómleikatilfinningu og leita logandi Ijósi að einhverju sem getur fyllt upp í það tóm. Er það Guð? spyr Coupland, sem annars er þekktastur fyrir bókina „Generation X“. Sjálfur hefur hann sagt í við- tölum að hann sé orðinn hundleiður á þeirri kynslóð og vilji fara að snúa sér að öðrum verkefnum. Reyndar virðist hann ennþá vera að fást við X-kynslóðina en núna talar hún ekki um gallabuxur og skyndibita, heldur sjálfan Guð. Bókin fæst í Bóksölu stúd- enta og kostar 975 krónur. The Art of Fiction skiptist í fimm- tíu kafla og virðist ætluð fyrir þá sem eru að fikta við að skrifa og svo þá sem vilja stunda netta bókmennta- fræði um leið og þeír lesa. Hver kafli samanstendur af skáldsögubroti þar sem eitthvert eitt stílbragð er ráðandi og svo greiningu Lodge á þeim texta og hverju höf- undurinn nær fram með þessum stíl sínum. Meðal þess sem Lodge fjallar um er; hvernig er óvitlaust að byrja skáldsögu, tíðar orða- endurtekningar, töfraraunsæi, sjónarhorn, íronía og kaflaskiptingar. Og um það bil fjöru- tíu atriði í viðbót. David Lodge, sem er virtur bókmenntafræðingur og rithöfundur, er lík- lega þekktastur hér á landi fyrir skáldsöguna Lítill heimur sem kom út í þýðingu Sverris Hólmarssonar hjá Máli og menningu fyrir þremur árum. The Art of Fiction fæst í Bóksölu stúdenta og kostar 1.328 krónur. J a y Mclnerney vakti mikla athygli í Bandaríkjunum með fyrstu skáld- sögu sinni Bright Lights, Big City. Lesendur elskuðu hann jafnmikið og gagnrýnendur fyrir- litu hann. Síðan komu út bækurnar Ransom og Story of my Life, sem báðar voru skotnar niður af krítíkerum en seldust og seldust. Næst kom Brightness Falls og er fyrsta skáldsaga Mclnerneys sem hin grimma gagnrýnendaklika í New York reif ekki í sig. I' bókinni dregur Mclnerney saman níunda ára- tuginn í Bandaríkjunum. Timabil sem oft er kallað Reagantíminn og þá í neikvæðri merk- ingu, þvi þetta eru árin sem kókaðir uppar fóru hamförum um amerískt viðskiptalíf. Það dæmi endaði svo með verðbréfahruninu í október 1987. En á meðan á þessu stóð hrönnuðust heimilisleysingjarnir upp á götun- um og HlV-veiran lét fyrst kræla á sér fyrir al- vöru. Aðalpersóna bókarinnar er ungur og metnaðargjarn bókaútgefandi sem reynir að yfirtaka virtasta bókaforlagið í Bandaríkjun- um með hjálp nokkurs konar Donalds Trump. Inn í það fléttast svo skáldaklikur New York- borgar og taugaveiklaðir rithöfundar. Þeir sem hafa gaman af Fitzgerald ættu að hafa gaman af að lesa þessa bók, en Mclnerney hefur verið sakaður um að stæla hann grimmt, jafnt í skrifum sinum sem öflugu næturlífi. Brightness Falls kom út 1992, fæst I Bóksölu stúdenta og kostar 1.049 krónur. Hvað finnst þér um að fá þessa einkunn? Ég er auðvitað mjög ánægður með einkunnina, ekki síst þar sem tveir færustu vísindamenn í miðaldabókmenntum sáu um að gefa mér hana, þau Ásdís Egilsdóttir og Bjarni Guðna- son. Og ekki síst vegna þess að þau eru mjög spör á þessa einkunn og hafa aldrei gefið hana fyrr, svo ég viti til. En 10 er auðvitað bara ein ein- kunn af mörgum og hún þýð- ir fyrst og fremst aðeins betra en 9,5 en er ekki eitt- hvert viðundur. Ertu kúristi? Ekki í þeim skilningi að ég liggi meira en aðrir menn yfir bókum. Ég lærði aldrei neitt heima fyrr en í menntaskóla, eins og margir aðrir, og seinustu tíu árin hef ég aldrei lært meira en 6-8 tíma á dag, ekki einu sinni fyrir próf, þannig að ég held að ég sé tiltölulega lítill kúristi miðað við marga. Það var meira að segja stundum þannig að ég var frír í bíó kvöldið fyrir próf en þá gátu aðrir ekki komið með því þeir voru að læra. Ég reyni frekar að hafa álagið jafnt yfir veturinn, það er líka yf- irleitt ekkert unnið með því að læra lengur en 6-8 tíma á dag. Um hvað er þessi ágæta ritgerð? Ritgerðin fjallar fyrst og fremst um hugarfar Islend- inga á miðöldum, eins og það birtist í miðaldabók- menntum þeirra, og nánar tiltekið um konungshugtak- ið. Það sem ég er kannski að reyna er að nota fyrirbærið konung til að varpa ljósi á konungasögurnar, sem hefur ekki verið gert áður með ís- lensku konungasögurnar. Það hefur reyndar verið gerl er- lendis með þarlendar kon- ungasögur en engar þeirra eru alveg sambærilegar við þær íslensku. Notaðirðu allar íslensku kon- ungasögurnar við rannsókn þína ? Ég notaði þær sem margir telja íslenskar - í sumum lil- vikum er reyndar talsverður efi á því hvað sé íslenskt og hvað sé norskt sem dæmi - og þær sem voru skrifaðar árið 1262. Þá fengu íslendingar konung og þá lagðist konunga- sagnaritunin niður að mestu. Ætlarðu að gefa ritgerðina út á bók? Já, það er stefnt að því og það eru samningaviðræður í gangi núna. Hefurðu gert eitthvað annað en að lœra? Já, ég hef verið mjög virkur í félagsmálum. I menntaskóla var ég ármaður skólafélags MS, sem merkir, sé það þýtt á mál annarra skóla, foringinn, nánar tiltekið einn af þremur í stjórn. Síðan hef ég sinnt félagsmálum fyrir íslenskunema; ég var í þrjú ár í skorarnefnd, tvö ár í námsnefnd, tvö ár í deildarráði og í fimm ár fulltrúi á deildarfundum. Ég sat líka í Stúdentaráði á tímabili og svo er ég áhugamaður um bæði stúdentapólitík og núna á síðari árum um aðra póli- tík, einkum um framgang vinstrihreyfingarinnar í landinu. Þú ert þá vœntanlega vinstrisinnaður? Já, það er alveg óhætt að segja það, ég er mjög vinstrisinnaður. Hvað ertu að gera núna ? Núna er ég að vinna sem óbreyttur starfsmaður Há- skólans og hef verið að aðstoða kennara minn við biskupasagnaútgáfu og tek síðar við að aðstoða annan kennara. Auk þess hef ég kennt svokallaða stoð- kennslu norrænum nemend- um sem fá kennslu í móður- máli einn tíma á viku sam- kvæmt Nordplus-áætluninni. A hvaða máli kennirðu? Ég kenni á semí-dönsku. Ég held að það gangi ágæt- lega, að minnsta kosti kvarta nemendurnir ekki mikið - nema náttúrlega ég hafi ekki skilið það. Ætlarðu í doktorsnám? Ég er að hefja doktorsnám um þessar mundir en vegna vinnunnar hef ég farið hægt af stað. Ég ætla að reyna að taka doktorspróf á vegum Háskóla íslands en nema hluta þess erlendis. Norður- löndin eru ofarlega á blaði en England og Þýskaland koma einnig til greina. Ertu ofurmenni? Sem vinstrimaður trúi ég ekki á ofurmenni.B astríðan mín... Arna Grétarsdóttir guðfræðinemi: 108. Davíðssálmur lýsir best mínum ástríðum: „Hjarta mítt er stöðugt, Guð. Ég vil syngja og leika. Vakna þá sála mín, vakna þá harpa og gígja. Ég vil vekja morgunroðann.11 - Þetta er mitt hugðarefni; tónlistin og Guð.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.