Mjölnir - 01.03.1934, Síða 3

Mjölnir - 01.03.1934, Síða 3
I. ÁRG. REYKJAVÍK, MARZ 1934. 1. TBL. Fylgt úr hlaði. IIér hefur göngu sína nýtt stíidentablað. Þau eru tvö fyrir, og mun því mörgum finnast nóg um, er það þriðja kemur. En það kemur ekki að ástosðu- lausu, lieldur af nauðsyn, sem málgagn nýrrar stefnu í þjóðfélaginu og innan Háskólans. — Ann- að blaðið, sem fyrir er, er máigagn Marxista. Það er einn þát.tur í lierferð þeirri, sem þeir hafa gert á skóla landsins, herferð, sem Háskólinn hefir ekki farið varhluta af. Hér verður ekki gerð nánari grein fyrir starfscmi þeirra þar, en þess má geta, að hún hefir verið lik og annarsstaðar, þeir hirða■ aldrei, hver meðul eru notuð, ef þeir ná fram sín- um málum, en þau stefna öll að einu marki, að leggja þjóðfélagið í rústir, til þess að geta komið á marxistísku einrœði. Þjóðerni, tunga og siðir hverrar þjóðar er þeim innantómt orðaglamur, sem þeir hafa að háði og spotti. Stúdentar, og raunar alluúr almenningur, hafa ekki gert sér íjósa starf- semi Marxista, þeir liafa ekki gert sér Ijóst, að hún er fólgin í því að grafa undan þjóðfélaginu á allan hátt og linna ekki fyr en þeir eru búnir að vinna á því að fullu. Þeir vinna eins og rottur, jafnt. og þétt naga þeir og Makka yfir hverjum skikanum, sem þeir leggja í eyði. Og þjóðfélagið hefir lát.ið þetta afskiftalaust, annaðhvort af því, aö það hefir ekki skilið hættuna, eða af einhverju misskildu meinleysi. Það þætti heimsk- ur maður eða í meira lagi meivilaus, sem spynni sjálfur snöruna um sinn eiginn háls. En það er einmitt þetta, sem þjóðfélagið er að gera með þvi að lofa Marxismanum að þróast innan sinna vé- banda, Það er að ala upp böðlana á sjálft sig. 1 öllum félagsskap stúdenta hafa Sjálfstœðis- menn farið með völd, Þeirra var því getan og skyldan að vinna á móti þessum ófögnuM. — Hvað hafa þeir gert? »Flotið sofandi að feigðarósix 1 mesta lagi hafa þeir rumskað, til þess að snúa sér á liina hliðina og sofa. óifram. Annaðhvort eru þeir svo sljóir, að þeir sjá ekki, hvert stefnir, eða svo deigir, að þeir þora ekki að taka á kýlunum. Eins er það ?' þjóðfélaginu. Þar liafa valdhafarrdr, til hvaða. flokks, sem þeir liafa talið sig, ekki sinnt öðru en góðum stöðum og feitum embœttum. Þeir hafa látið ágreiningsmálin afskiftaiaus eða tekið þau slikum vettlingatökum, að þau hefðu betur vei - ið óhreyfð. Þeir hafa ekki, þorað að taka á þeim eins og menn af ótta við, að éinhverjir kjósend- anna snerust á móti þeim; þá gat, verið, að þeir kœmust ekki í býtibúrið við Austurvöll við nœstu kosningar. — En nú fer að verða bre]fting á. Þjóð- in er farin að sjá óheilindi þeirra, sevi með völd- in fara, hún er búin að horfa á eftir svo mörgum loforðum ofan í gröfina, að hún er hœtt að trúa þeim. Hún sér, að fyrirkomulagið, sem þeir eru að lappa upp á, er farið að ganga úr sér, að ástand- ið nú er óviðunandi og versnar alltaf, og hún skygnist. eftir nýjum leiðum. Fólkið í landinu er að vakna, og eins og að líkum lætur er það œskan, sem vaknar fyrst, Hún er ekki orðin eins sam- dauna rotnuninni og gamla fólkið. — Hér hefir verið stofnaður »Flokkur Þjóðernissinna á IslandH af ungum mönnum. Ennþá er hann, hrópandans rödd í eyðimörkinrd, enda varla kondnn úr reif- um, en hann blœs út með liverjum degi, sem líður. — Það hefir löngum verið sagt, að stúdentar vceru áhugalau-sir um þjóðmál, og það mun vera alltof satt. En nú ætla þeir að vera með. Fyrsta sunnu- dag í sjöviknaföstu var stofnað meðal háskólastúd- ent.a »Félag þjóðernissinnaðra stúdent,a«. Fyrsti ávöxturinn af þessari félagsstofnun er biað þetta. Það á að vera málgagn þeirra og allra stúdenta, sem vinna á grundvelli Þjóðernissinna. Þeir ætla ekki lengur að standa óvirkir lijá og liorfa álengd- ar á, að öllu sé siglt í strand, Islenzkir stúdentar starfa við hlið yðar, íslenzk- ir alþýðumenn. Þeir vinna fyrir námi sínu með afli lianda sinna. Menntun sína vilja þeir nota í yðar þjónustu, þeir vilja berjast með yður hve- nær og á hvaða vettvangi sem er fyrir frelsi þjóðar- innar. Vilji þeirra er yðar vilji. Kraftur þeirra er yðar kraftur. — Islandi aUt!

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.