Fréttablaðið - 21.10.2009, Blaðsíða 2
2 21. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
Jörundur, ertu byrjaður að
kalka?
„Já, kalkið er hafið.“
Nýtt fæðubótarefni, HAFKALK, er komið
á markað en það er unnið úr kalkþör-
ungum á Bíldudal. Jörundur Garðarsson
starfar hjá Íslenska kalkþörungafélaginu
á Bíldudal.
FISKVEIÐAR. Sjávarútvegsfyrirtæk-
ið Eskja á Eskifirði hefur leigt frá
sér 2.306 tonn af þeim 3.241 þorsk-
ígildistonni kvóta af bolfiski sem
fyrirtækið fékk til ráðstöfunar á
fiskveiðiárinu, sem hófst 1. sept-
ember 2009.
Miðað við meðalverð á kvóta-
markaði hinn 24. september síð-
astliðinn er heildarverðmæti kvóta
sem fyrirtækið hefur leigt frá sér
undanfarnar sjö vikur um 440
milljónir króna.
Skipin tvö sem Eskja gerir út
og skráð eru fyrir bolfiskkvót-
anum eru nóta- og togveiðiskip.
Þau stunda ekki veiðar á bolfiski,
eins og þorski, ýsu og ufsa, held-
ur aðeins á uppsjávarfiski, eins og
síld, kolmunna og loðnu.
„Við höfum verið að skipta afla-
heimildum í bolfiski yfir í upp-
sjávarheimildir og höfum auk þess
verið í millibilsástandi,“ segir Páll
Snorrason, framkvæmdastjóri fjár-
mála og rekstrar hjá Eskju. Hann
segir að fyrirtækið hafi skipt ufsa-
, karfa-, og grálúðukvóta fyrir síld-
arkvóta sem nótaskipin hafa veitt
úr norsk-íslenska síldarstofninum
í norskri lögsögu.
Kvóti í ufsa, karfa og grálúðu
nemur alls 940 tonnum af þeim
2.306 tonnum sem fyrirtækið
hefur leigt frá sér undanfarnar sjö
vikur. Verðmæti kvóta í þeim teg-
undum er um 80 milljónir af alls
um 440 milljóna viðskiptum. Að
auki hefur fyrirtækið m.a. þegar
leigt frá sér 1.108 tonn af 1.883
tonna þorskkvóta ársins.
Páll leggur áherslu á að þessi
viðskipti séu í fullu samræmi
við gildandi lög og reglur. Fyrir-
tækið hafi verið í ákveðnu milli-
bilsástandi frá því að togarinn
Hólmatindur var seldur úr landi í
lok árs 2007. Páll segir að ákvörð-
un stjórnvalda um að skerða
þorskaflaheimildir um 30 prósent
sumarið 2007 hafi kippt fótum
undan rekstri Hólmatinds og
rekstri frystihúss fyrirtækisins.
Eskja hafi leitað að nýju og hag-
kvæmara skipi í stað Hólma tinds
en bankahrunið og efnahagserf-
iðleikar hafi kippt fótunum undan
þeim hugmyndum í bili. Markmið
fyrirtækisins sé hins vegar að
hefja bolfiskveiðar á ný um leið
og aðstæður leyfa.
peturg@frettabladid.is
Hafa leigt frá sér
2.306 tonn af kvóta
Eskja á Eskifirði hefur leigt frá sér um 71 prósent af bolfiskkvóta fyrirtækisins
frá 1. september. Markaðsverðmæti um 440 milljónir króna. Framkvæmdastjóri
hjá Eskju segir fyrirtækið vera í millibilsástandi eftir sölu á togara árið 2007.
Verðmæti leigðs kvóta frá Eskju
Bolfiskkvóti Eskju er alls 3.241 þorskígildistonn. Af honum hafa 2.306 þorskígild-
istonn verið færð milli skipa. Þar af er þorskur, 1.108 tonn að virði 294,7 milljónir
króna. Færsla annarra tegunda er að magni 1.198 þorskígildistonn og er virði þess
142,8 milljónir króna. Samtals gera það 437,5 milljónir króna.
*mv. meðalverð á aflamarki 24.09.09, skv. fiskistofa.is
Í HEIMAHÖFN Jón Kjartansson SU-111 er annað tveggja skipa Eskju. Fyrirtækið leggur
nú áherslu á uppsjávarfisk en hyggst hefja bolfiskveiðar á ný þegar aðstæður leyfa.
STJÓRNSÝSLA Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær
ítarlega viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs
inflúensu og stofnaði neyðarstjórn sem tekur til
starfa ef og þegar neyðarástand skapast. Viðbragðs-
áætlunin hefur þegar tekið gildi.
Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri er formaður
neyðarstjórnarinnar en auk hans sitja í henni bæj-
arritari, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og sviðs-
stjóri félagsmálasviðs.
Neyðarstjórnin, sem sett var á fót að tilmælum
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, getur í neyðar-
tilfellum tekið ákvarðanir og stofnað til útgjalda
umfram það sem segir í fjárhagsáætlun, svo sem
vegna kaupa á björgunarbúnaði, matvælum og öðru
slíku, enda þoli afgreiðsla þeirra enga bið, eins og
segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Áætlunin er aðgengileg á heimasíðu Kópavogs-
bæjar; kopavogur.is. Áherslur hennar eru að styrkja
sóttvarnir á vinnustöðum, tryggja fræðslu til
starfsmanna um sóttvarnir og viðbrögð við veikind-
um, meta aðgerðir til að mæta auknum forföllum á
vinnustöðum, undirbúa aðgerðir vegna lokana ef til
þeirra kemur, kortleggja þá starfsemi sem nauðsyn-
legt er að haldist órofin verði faraldurinn skæður
og gera áætlun um aðgerðir til að tryggja rekstur
þeirrar starfsemi. - bþs
Ítarleg viðbragðsáætlun vegna svínaflensunnar hefur tekið gildi í Kópavogi:
Neyðarstjórn komið á fót
FRÁ KÓPAVOGI Bæjaryfirvöld hafa tekið í gagnið viðbragðs-
áætlun vegna svínaflensunnar.
VIÐSKIPTI Ráðgjafarfyrirtækið
Kroll Associates skilar á næstu
vikum skýrslu um hugsanleg
undanskot eigna og óeðlileg-
ar millifærsl-
ur hjá Glitni
í aðdraganda
bankahruns-
ins, samkvæmt
upplýsingum
frá skilanefnd
Glitnis.
Skilanefnd
Glitnis réð
Kroll seint í
maí og stóð upphaflega til að
skila skýrslunni í byrjun hausts.
Kroll sérhæfir sig í fjármála-
brotum og leit að eignum, sem
komið hefur verið undan. Það
hefur þefað uppi ýmsar eign-
ir, svo sem þær sem Saddam
Hussein, einræðisherra Íraks,
og Imelda Marcos, ekkja Ferd-
inands Marcos, fyrrverandi for-
seta Filippseyja, komu undan
áður en þeim var steypt af
valdastóli. - jab
Styttist í skýrslu Kroll:
Skoðar hugsan-
leg undanskot
SADDAM HUSSEIN
STJÓRNMÁL Siðareglur borgarfull-
trúa í Reykjavík voru staðfestar
á fundi borgarstjórnar í gær.
Allir borgarfulltrúar nema
Ólafur F. Magnússon greiddu
atkvæði með reglunum og skrif-
uðu undir þær.
Markmið þeirra er að skrá
og skilgreina þá háttsemi sem
kjörnir fulltrúar vilja sýna af
sér við öll sín störf. Í þeim er
meðal annars fjallað um starfs-
skyldur kjörinna fulltrúa, vald-
mörk, hagsmunaárekstra, gjafir,
fríðindi og trúnað. Með undir-
skrift lýsa borgarfulltrúar yfir
að þeir ætli að hafa reglurnar að
leiðarljósi í störfum sínum. - bþs
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Siðareglurnar
teknar í gagnið
EFNAHAGSMÁL Ofsagt er að skuld-
ir þjóðarbúsins séu komnar fram
yfir endanleg mörk sem ekki verð-
ur við ráðið þegar skuldabyrðin
er skoðuð í alþjóðlegum saman-
burði.
Þetta segir í tilkynningu efna-
hags- og viðskiptaráðuneytisins
frá í gærkvöldi þar sem hafnað
er fullyrðingum um að skuldirnar
séu óviðráðanlegar. Hafa þær mið-
ast við skuldir sem nema 240 pró-
sent af landsframleiðslu.
Bent er á að vergar skuldir
landsins lækki við hrun viðskipta-
bankanna þar sem stór hluti skulda
afskrifist í þrotabúum þeirra. Þá
segir að hlutfall skulda af þjóðar-
framleiðslu sé að líkindum veru-
lega ofmetið vegna gengisfalls og
tímabundins samdráttar lands-
framleiðslu. Reikna megi með að
krónan styrkist og landsfamleiðsla
vaxi að nýju.
Á það ber einnig að líta, segir
í tilkynningu efnahags- og við-
skiptaráðuneytisins, að flest
grannríki standa frammi fyrir
lífeyrisskuldbindingum í fram-
tíðinni sem hafa ekki verið fjár-
magnaðar. Íslenska ríkið eigi hins
vegar í reynd varasjóð utan efna-
hagsreiknings sem er óskattlagt
framlag í lífeyrissjóð en það fé og
ávöxtun þess mun bera skatt við
útgreiðslu. Hrein eignastaða ríkis-
ins sé því í reynd töluvert betri ef
litið sé til lengri tíma en hún virð-
ist við fyrstu sýn. - bþs
Efnahagsráðherra hafnar fullyrðingum um að erlendar skuldir séu óviðráðanlegar:
Skuldastaðan víða verri en hér
SKULDIR ANNARRA RÍKJA
Dæmi um vergar skuldir um áramót í
hlutfalli við verga landsframleiðslu
Austurríki 202%
Belgía 269%
Kanada 52%
Danmörk 173%
Írland 884%
Holland 282%
Sviss 261%
Bretland 341%
Þýskaland 141%
Noregur 105%
Heimild: Efnah.- og viðsk.ráðun.
ALÞINGI Fjármálaráðherra
hlaut ekki stuðning stjórnar-
andstöðunnar við ósk sinni um
að Icesave-málið yrði tekið til
umræðu á þingi í gær.
Þingsköp kveða á um að líða
þurfi tveir sólarhringar frá því
mál er lagt fram á þingi og þar til
það er tekið til umræðu. Tillaga
um afbrigði frá þeirri reglu naut
ekki stuðnings tveggja þriðju
hluta þingheims eins og lög gera
ráð fyrir.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins sögðu
þingi og þjóð sýnd óvirðing með
að taka málið til umræðu án til-
hlýðilegs undirbúnings. - bþs
Ósk um afbrigði á Alþingi:
Flýtimeðferð á
Icesave hafnað
VÍSINDI Stjörnufræðingar til-
kynntu á dögunum að þeir hefðu
komið auga á 32 plánetur utan
sólkerfis okkar. Alls hafa því um
400 plánetur fundist á Vetrar-
braut jarðar.
Pláneturnar eru mismunandi
stórar, allt frá því að vera fimm
sinnum þyngri en Jörðin upp í að
vera fimm til tíu sinnum þyngri
en Júpíter. Plánetur með minni
massa eru úr bergi, eins og jörð-
in, en þær þyngri eru gaskennd-
ar. Meiri líkur eru á að líf kvikni
á plánetum úr föstu formi heldur
en í gashjúp. - bs
Merkileg uppgötvun:
Fundu 32 nýjar
reikistjörnur
ALÞINGI Ekki liggja fyrir upplýs-
ingar um hve mikill hluti aflans
sem veiddist í strandveiðum sum-
arsins fór til
vinnslu í þeim
höfnum sem
landað var í.
Sjávarút-
vegsráðherra
upplýsir þetta í
svari við fyrir-
spurn Einars K.
Guðfinnssonar.
Búist er við
að upplýsingarnar liggi fyrir
undir lok næsta mánaðar.
Einar bar fram nokkrar spurn-
ingar um veiðarnar. Meðal ann-
ars kemur fram að af þeim 595
bátum sem fengu veiðileyfi lönd-
uðu 554 bátar afla. - bþs
Strandveiðar sumarsins:
Óljóst hvar afl-
inn var unninn
JÓN BJARNASON
Ráðgjafarstofa fyrirtækja
Ellefu þingmenn úr öllum flokkum
hafa endurflutt tillögu á Alþingi um
að sett verði á fót Ráðgjafarstofa
fyrirtækja, sambærileg Ráðgjafarstofu
um fjármál heimilanna.
ALÞINGI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SPURNING DAGSINS