Fréttablaðið - 21.10.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.10.2009, Blaðsíða 4
4 21. október 2009 MIÐVIKUDAGUR ESB á mannamáli! D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Bræðraborgarstíg 9 „Einsog leiftrandi spennusaga.“ Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Pétur Gunnarsson, Fréttablaðinu „Mikilvægt, áhugavert innlegg.“ Bjarni Harðarson D Y N A M O R E Y K JA V ÍK LOKSINS! MANNRÉTTINDI Að beiðni Mannrétt- indadómstóls Evrópu hefur dóms- mála- og mannréttindaráðuneyt- ið frestað áður ákveðinni frávísun hælisleitanda til Grikklands. Mað- urinn, sem er flóttamaður frá Afganistan, er einn fjögurra sem ráðuneytið ákvað í septemberlok að vísa til Grikklands. Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að maðurinn, sem fór í felur fyrir helgi þegar í ljós kom að senda ætti hælisleitendurna til Grikklands, hafði kært ákvörðun ráðuneytisins til Mannréttinda- dómstólsins á föstudag. Samdægurs barst beiðni frá dómstólnum um að fresta frávísuninni á grundvelli 39. greinar málsmeðferðarreglna dóm- stólsins. „Niðurstaða ráðuneytisins um að senda mál þessara fjögurra hælisleitenda til efnismeðferðar í Grikklandi er í samræmi við þau almennu viðmið sem gilda um mál af þessum toga og kynnt voru í júní síðastliðnum, það er að skoðað verði hvert tilvik fyrir sig og aðstæður viðkomandi einstaklings metnar áður en ákvörðun er tekin um end- ursendingu til Grikklands. Á grund- velli þessara sömu viðmiða hefur til að mynda mál fjölskyldu með ung- barn verið tekið til meðferðar hér á landi sem ella hefði farið til Grikk- lands,“ segir í tilkynningu. Dómsmálaráðuneytið segist fresta frávísun mannsins þar til niðurstaða liggur fyrir um hvort mál hans verði tekið til meðferðar hjá Mannréttindadómstólnum eða dómur í málinu gengur. - óká RAGNA ÁRNADÓTTIR Mótmælendur hafa beint spjótum sínum að dóms- málaráðherra, eftir að ráðuneyti hennar vísaði fjórum hælisleitendum sem hingað höfðu komið til Grikklands. Dómsmálaráðuneytið verður við beiðni Mannréttindadómstóls Evrópu: Frávísun hælisleitanda frestað LÖGREGLUMÁL Seta Baldurs Guð- laugssonar ráðuneytisstjóra í sam- ráðshópi á vegum Seðlabankans, sem fékk þær upplýsingar í febrú- ar í fyrra að bankakerfið riðaði til falls, er annað af þeim atriðum sem rannsókn sérstaks saksókn- ara á meintum innherjaviðskiptum Baldurs beinist að. Fjármálaeftir- litið ákvað að taka mál Baldurs upp að nýju eftir að upplýsingar tengdar þessum fundi bárust því, samkvæmt heimildum blaðsins. Baldur seldi hlutabréf sín í Landsbankanum í september í fyrra en hlutabréf í bankanum urðu verðlaus við hrunið fáeinum dögum síðar. Skömmu áður hafði hann setið fund um stöðu Landsbankans með Alistair Darling, fjármálaráð- herra Bretlands, og fleiri embætt- ismönnum í London. Fjármálaeftirlitið tók í kjölfar- ið til athugunar hvort Baldur hefði með sölu á bréfunum gerst sekur um innherjasvik. Í maí síðastliðn- um var honum tilkynnt að málið hefði verið látið niður falla. Stuttu síðar bárust FME hins vegar nýjar upplýsingar, sem sam- kvæmt heimildum blaðsins sneru að setu Baldurs í áðurnefndum samráðshópi. Var málið því tekið upp að nýju. Það er nú í lögreglu- rannsókn hjá sérstökum saksókn- ara. Baldur, þá ráðuneytisstjóri í fjár- málaráðuneytinu, sat í samráðs- hópnum ásamt ráðuneytisstjórum forsætis- og viðskiptaráðuneyt- anna, fulltrúum Seðlabankans og Jónasi Fr. Jónssyni, þáverandi for- stjóra FME, en hann lét af störfum í byrjun mars á þessu ári. Í mars í fyrra, rúmu hálfu ári fyrir bankahrunið, voru sam- ráðshópnum kynntar niðurstöður skýrslu sem fjármálakreppusér- fræðingurinn Andrews Grac- ie hafði unnið fyrir hérlend yfir- völd. Í febrúar síðastliðnum minnt- ist Davíð Oddsson á þá skýrslu í Kastljósi og sagði: „Við fengum til að mynda í febrúar einn færasta fjármálastöðugleikasérfræðing í Evrópu til að vinna fyrir okkur viðbragðsáætlun. Í þeirri áætlun gerðum við ráð fyrir því að banka- kerfið færi á hausinn í október.“ Í kjölfarið hóf samráðshópurinn að vinna að undirbúningi lagasetn- ingar, sem síðar varð grundvöllur neyðarlaganna. Það er því aðallega tvennt sem liggur til grundvallar lögreglu- rannsókninni á hendur Baldri; það að hann hafi fengið fyrrnefnda kynningu, og títtræddur fundur í London. stigur@frettabladid.is Baldur vissi af hrun- hættunni í febrúar Baldur Guðlaugsson sat í samráðshópi á vegum Seðlabankans sem var kynnt svört skýrsla um yfirvofandi bankahrun í febrúar í fyrra. Gögn um setuna þar liggja til grundvallar lögreglurannsókn á meintum innherjasvikum Baldurs. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra hefur ekki fundið lausn á máli Baldurs Guðlaugssonar, sem nú gegnir starfi ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu. Að hennar sögn er málið enn í skoðun. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það hins vegar almenn skoðun þing- manna stjórnarflokkanna að algjörlega ótækt sé að Baldur sitji áfram á meðan hann sætir lögreglurannsókn af þessu tagi. STJÓRNARLIÐAR TELJA BALDRI EKKI SÆTT BALDUR GUÐLAUGSSON Með Baldri í samráðshópnum sátu aðrir ráðuneytisstjórar, fulltrúar Seðlabankans og for- stjóri FME. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 21° 11° 11° 16° 14° 16° 11° 11° 24° 15° 24° 20° 30° 9° 15° 17° 10° Á MORGUN Strekkingur NV-til, annars mun hægari. FÖSTUDAGUR 10-15 m/s V-til, annars víða 5-10 m/s. 8 6 3 2 1 2 3 4 6 7 6 8 9 6 4 7 6 10 9 9 80 8 7 3 4 6 4 7 4 11 HLÝNANDI VEÐUR Það verður víða blautt á landinu í dag, síst þó vestan- lands. Væta norð- austan og austan til fram eftir degi og sunnanlands síð- degis. Svipað veður á morgun og léttir heldur til suðvest- an til. Á föstudag verður ákveðnari norðanátt einkum vestanlands með kólnandi veðri. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNMÁL Ríkisstjórn Íslands fordæmdi, á fundi sínum í gær, skilyrðislaust það ofbeldi sem felst í því að ráðist sé gegn frið- helgi og einkalífi fólks. Skemmd- arverk á heimilum fólks eru þannig fordæmd. Forsætisráðherra vísaði sér- staklega til máls Rannveig- ar Rist, en líkt og Fréttablaðið greindi frá skvettist sýra, sem einhver hafði hellt yfir bíl henn- ar, í andlit hennar. Ríkisstjórnin hvetur til samstöðu á meðal fólks til að stöðva slíkar aðfarir. Rétt- ur fólks til mótmæla er skýrt viðurkenndur í minnisblaðinu, en fólk er hvatt til friðsamlegra mótmæla. - kóp Ríkisstjórn Íslands: Fordæmir skemmdarverk MÁLNINGU SLETT Ríkisstjórnin fordæmir mótmæli sem beinast gegn friðhelgi og einkalífi fólks. Skemmdarverk á heimil- um eru fordæmd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Qatar Holding, fjárfest- ingararmur stjórnvalda í araba- ríkinu Katar, íhugar að selja hluta af bréfum sínum í Barclays, næststærsta banka Bretlands. Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal segir Qatar Hold- ing ætla á móti að auka við hlut sinn í breska stórmarkaðnum Sainsburys, jafnvel leggja fram yfirtökutilboð í verslunina. Félagið keypti bankahlutinn seint í nóvember í fyrra eftir hrun á fjármálamörkuðum. Í kjöl- farið leituðu stjórnendur Barclays eftir líflínu í Miðausturlöndum. Verðmæti hlutarins hefur hækkað um rúm þrjátíu prósent síðan þá og er reiknað með að fjárfestingarsjóðurinn hagnist um 630 milljónir punda, jafnvirði tæpra 130 milljarða króna, á við- skiptunum. - jab Arabar vilja selja bankahlut: Íhuga kaup á stórmarkaði SAINSBURYS Fjárfestingararmur stjórn- valda í Katar gerði yfirtökutilboð í breska stórmarkaðinn Sainsburys á vordögum 2007 en hafði ekki erindi sem erfiði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Hringnum nær lokað Samfellt slitlag er komið á milli Reykjavíkur og Egilsstaða um Norð- urland. Aðeins vantar að ljúka átta kílómetra kafla í Berufirði til að unnt verði að keyra hringinn um Ísland á malbiki. SAMGÖNGUMÁL LÖGREGLAN Síðustu daga hafa meira en hundrað ökumenn verið staðnir að hraðakstri á Suðurgötu í Reykjavík, milli Skothúsvegar og Vonarstrætis og á annan tug þeirra verið sviptur ökuleyfi. Þrír voru sviptir ökuréttindum þar til bráðabirgða í fyrrakvöld en 30 km hámarkshraði er á kafl- anum. Óku þeir á 66-69 kílómetra hraða. - bþs Fjöldi tekinn fyrir hraðakstur: Margir gefa í á Suðurgötunni STJÓRNMÁL Starfshópur um aðgerðir til að jafna betur stöðu kynja í sveitarstjórnum leggur meðal annars til að lögfest verði jafnt hlutfall kynja á framboðs- listum. Þá er lagt til að ráðist verði í hvatningarátak og haldin námskeið fyrir konur um þátt- töku í sveitarstjórnarstarfi. Kristjáni L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra voru í gær afhentar tillögur starfshóps- ins sem Sigrún Jónsdóttir veitti formennsku. Hyggst ráðherrann fara yfir þær og hrinda í fram- kvæmd þeim ábendingum sem unnt þykir, eins og segir í frétt frá ráðuneyti hans. - bþs Fleiri konur í sveitarstjórnir: Jafnt hlutfall kynja á listum GENGIÐ 20.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 222,9004 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,5 123,08 200,99 201,97 183,32 184,34 24,624 24,768 21,992 22,122 17,658 17,762 1,3548 1,3628 195,59 196,75 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.