Iðnneminn - 01.05.1977, Side 8
VIÐTAKANDI:
smMwm
r
[
Hefur þjóðin
efni á verkfalli?
Viðtal við
samningamenn
— Hverjar eru helstu breytingar
á kröfum iðnnema frá fyrri samn-
ingum?
Aðal breytingarnar felast í því
að þau tvö kerfi sem iðnnemar
hafa fengið kaup sitt greitt eftir,
eru sameinuð í eitt. Þannig að um
verði að ræða kaupgreiðslu til iðn-
nema allar vikur ársins, minna
kaup er þeir eru í skóla og svo
meira er þeir vinna. í annan stað
er gerð krafa um samninga um
kjör verkskólanema og nema úr
iðjubrautum Fjölbrautaskóla, en
þetta er í fyrsta sinn sem reynt er
að semja um heildarkjör fyrir
þessa nema. Svo eru ýmsar minni
kröfur sem of langt mál yrði að
tlja upp.
— Teljid þið líkur á því að þœr
nái fram að ganga?
Hallgrímur G. Magnússon
Slíku er alltaf erfitt að svara, en
það sem ræður árslitum um það,
er hversu mikil pressa er lögð á
atvinnurekendur bæði af okkar
hálfu og af hálfu sveinasamtak-
anna.
— Hvert er álit ykkar á því að
iðnnemar fái sjálfir samningsrétt-
inn í hendur?
Iðnnemahreyfingin hefur náð
nokkuð langt með að ná þeim
mannréttindum sem samnings-
rétturinn er og af hálfu ASÍ er svo
litið á að við séum fullgildir aðilar í
samningum. Atvinnurekendur
hafa þó ekki formlega viðurkennt
þennan rétt okkar að undantekn-
um fáum meistarafélögum. Við
teljum að viðurkenningin sé aðeins
spurning um tíma og að því muni
koma að við fáum fullan samn-
ingsrétt.
— Hvernig finnst ykkur ASÍ
forystan hafa staðið sig í fyrri
samningum?
Slíku er erfitt að svara, enda fer
árangur samningaviðræðna eftir
aðstæðum hverju sinni. En við
trúum ekki öðru en að flestir þeir
sem fara með umboð verkafólks á
þessu sviði reyni eftir megni að ná
fram því sem hægt er hverju sinni.
Einnig teljum við, að þegar á að
meta árangur af starfi forystu-
manna verkalýðshreyfingarinnar í
kjaramálum, verði að taka með í
Sveinn Ingvason
reikninginn hversu fast hinn al-
menni launþegi styður við sína
menn.
— Hvaþa breytingar teljið þið
að þurfi að gera á núverandi
formi samningaviðrœðna, með
það fyrir augum að koma í veg
fyrir löng og dýr verkföll?
Það er sama hvaða form yrði
tekið upp í þessu sambandi, það
kemur ekki í veg fyrir verkföll. Á
meðan verkalýðurinn verður að
sækja sjálfsögð réttindi sín, rétt-
indi til að lifa mannsæmandi lífi, í
hendur atvinnurekenda og óvin-
veitrar ríkisstjórnar, verður hann
að nota þau vopn sem að gagni
kunna að koma hverju sinni, og
þar á meðal verkfallsvopnið.
— Hvað teljið þið að ASÍ megi
slá mikið af kröfunum til að koma
til móts við vinnuveitendur?
Ekkert. Spurningin er sú hver er
máttur verkalýðshreyfingarinnar
til baráttu.
Jónas Sigurðsson
— Teljið þið þjóðina hafa efni á
verkfalli?
Spurningin er frekar sú, hvort
verkafólk geti lifað af þeim sultar-
launum sem það hefur í dag, hvort
frekar fámennum hópi á að líðast
að skammta verkafólki réttmæta
eign þess úr hnefa, hvort atvinnu-
rekendum eigi að líðast það að
reka verkalýðshreyfinguna út í
verkföll.
Skrifstofa Iðnnemasambandsins
er opin mártud.—föstud. frá kl
13.00 til 17.00 og á þriðjudögum og
fimmtud. frá kl. 19.30 til 20.30.
Iðnnemasamband íslands
Njálsgötu 59,
simar 14410 og 14318.
Félag járniðnaðarnema
Auðarstræti 17.
Skrifstofutími á fimmtud. frá kl.
20.00—21.00. Sími: 10988.
Félag bókagerðarnema
Hverfisgötu 21.
Skrifstofutími á mánud. frá kl.
20.00—21.00.
Félag nema í húsgangaiðn
Auðarstæti 17.
Skrifstofutími á mánud. frá kl.
20.00—21.30. Sími: 17390.
Félag nema í byggingariðnaði
Auðarstræti 17.
Skrifstofutími á fimmtud. frá kl.
20.00—21.00. Sími: 16970.
Félag nema í rafmagnsiðn
Freyjugötu 27.
Skrifstofutími á miðvikud. frá kl.
20.00—22.00. Sími: 23888.
Félag iðnnema á Akureyri
Glerárgötu 20.
Skrifstofutími á fimmtud. frá kl.
20.00—22.00. Sími: 22489.