Ljósberinn - 09.09.1922, Side 2
282
LJÓSBERINN
með rafmagni, en járnið héldi ekki segulkraftinum
nema rétt á meðan rafmagnsstraumurinn verkaði
á það.
Morse varð nú alveg hugfanginn af þessari ný-
lundu og fór að velta því fyrir sér þar á skipinu,
hvernig hægt væri að búa til ritvél, sem gert gæti
punkta og strik á pappírsræmu eftir föstum regl-
um, svo að af því mætti gera stafróf og senda
skeyti með rafmagnsstraumi eftir símaþræði lang-
ar leiðir, til annarar vélar, sem tæki við skeytinu.
Hann fór nú að gera uppdrætti af þessum út-
búnaði öllum að skipverjum ásjáandi. þegar hann
kom úr þessari för, fór hann að búa til ritsíma
eftir teikningu sinni, og í nóvember 1835 var hann
fullgerður, svo að hann gat sýnt hvernig vélin
gæti ritað. Frh.
----o----
Iðnin er auðnu móðir.
Bóndi nokkur bláfátækur lá fyrir dauðanum-
Hann vissi, að hann skildi ekkert eftir handa börn-
um sínum, hvorki peninga né aðra fjármuni. Hon-
um datt þá í hug ráð til þess að lokka börnin sín
til að vinna, svo að þau hefðu alt af nóg fyrir sig
að leggja. Hann kallaði þau því öll að rúmi sínu
og sagði: „Eg á ekkert innanstokks handa ykkuL
börnin mín, eins og þið sjálf vitið; en í aldingarðin-
um mínum hérna fyrir utan hefi eg falið alt það,
sem eg hefi getað aflað mér um dagana; þar meg'
ið þið leita að því“.