Ljósberinn - 13.12.1924, Síða 1
Jem.s .,'if/ði: , Leyfiö börnunum að lcoma til mín og bannið þeim
það ekki, því xlíkum heyrir Gtiðs riki tilu. Mark. 10, 14.
IV. ár ; Reykjavík, 13. des. 1924 \ 50. bl.
Fagnaðartíðíndin og hin sorglega saga.
(Sunnudagaskólinn 14. des. 1924.)
Lestu: Jóh. 1, 6.-—18.
Minnistexti: Jóh. 1, 14 a.
Hann bjó með oss fullur náðar og
sannleika, og vér sáum dýrð hans,
dýrð sem eingetins sonar frá
föður.
„Hann kom til eignar sinnar og hans eigin menn
toku ekki við honum“.
Jlað eru ósegjanlega gleðirík tíðindi að J e s ú s
k om. Engillinn sagði líka við hirðana: „Sjá, eg boða
yður mikinn fögnuð“. — En það er átakanlega sorg-
leg saga þetta: „Hans eigin menn tóku ekki við hon-
um“. Um leið og þeir höfnuðu honum, höfnuðu þeir
sinni eigin farsæld.
En nú erum við, í heilagri skírn, vígð til að vera
hans menn. Veitum við honum þá viðtöku, þegar
hann nú kemur til okkar? Eða endurtekur hin sorg-
lega saga sig?
öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt
til að verða Guðs börn; þeim, sem trúa á nafn hans.
Og þeir sögðu með fögnuði: „Hann bjó með oss full-