Ljósberinn - 13.12.1924, Blaðsíða 5
LJÓSBERINN
401
þau. Ætlast hann eklti til að við gerum eitthvað fyrir
>au? Hvað haldið >ið?
Kæru Ljósbera-börn! Nú ætla eg að biðja indæla litla
blaðið ykkar að flytja ykkur svo litla mynd af nokkrum
kínverskum drengjum blindum, sem kristniboðar hér hafa
tekið að sér. Norski kventrúboðinn, sem veitir litla heim-
ilinu þeirra forstöðu, hét mér að segja ykkur ofurlítið frá
þeim. Býst eg við að ykkur þyki gaman að.
„Hér í Gjundjó eru nokkrir blindir drengir, og koma
þeir nú að heilsa upp ó ykkur. Fyrst og fremst langar þá
til að þakka ykkur öllum, sem biðjið fyrir kínverskum
börnum; því ykkur er það að þakka, að þessum blindu
börnum líður nú svo vel og hafa eignast gott heimili. það
hefir heldur ekki verið árangurslaust það sem þið hafið
gert fyrir þó.