Ljósberinn - 13.12.1924, Page 7
LJÓSBERINN
403
Til athugunar.
Kœru böm!
J>ið búist vist mörg við að fá einhverjar jólagjafir og
hlakkið til. Og það er eðlilegt. — En gaman væri nú að
muna eftir „kinverska drengnum" ykkar. Hann væri þakk-
látur, þó þær væru smáar jólagjafirnar, sem þið færðuð
honum. Munið, að í Kína eru ósköp mörg börn, sem aldrei
hafa heyrt talað um frelsarann. Fyrir þau er aldrei kveykt
á jólatré og enginn gleður þau með jólagjöfum, — fyr
en kristniboðarnir flytja þeim boðskapinn um frelsarann,
sem fæddist á jólunum.
Kæru, litlu vinir! Munið nú eftir „kínverska drengn-
um“ fyrir jólin. Og gleymið ekki því, að með gjöfunum
ykkar — hve smáar sem þær eru — eruð þið að styðja að
útbreiðslu ríkis Jesú Krists — vinna að þvi, að mörg fleiri
jólaljós verði tendruð.
B æ n.
Ger mig að aflstöð anda þíns,
þú ástvinurinn hjarta míns,
að kraftur sá mér komi frá,
sem kalin græði. vetrarstró,
sem styðji þá, sem striðið heyja,
sem styrki þá, sem ætla að deyja.
Ó, ýertu ávalt, aðstoð min,
þvi ekkert megna eg án þin.
----o-----