Ljósberinn


Ljósberinn - 06.04.1929, Qupperneq 1

Ljósberinn - 06.04.1929, Qupperneq 1
Dæmisögur Jesú. Sunnuclagaskólinn 7. apríl 1929. Lestu; Mark. 4, 25—32. Lærðu: Fil. 1, 6. »Ég fulltreysti einmitt pví að hann, sem byrjaði í yður góða verkið inuni fullkomna Jiað« . Jesús er að segja lærisveinum sínum dæmisögur og líkingar. Hvað er liann að gera peim skiljan- legt með þeim? Með líkingunum segir liann að til þess að hann geti fullkomnað góða verkið í sálum þeirra, þá verði þeir að geyma það í góðu hjarta, til þess að Jiað geti borið ávöxt. Ávaxti þeir það ekki, þá verði það frá þeim tekið. Biðjuin Jesú að hjálpa okkur til að ávaxta það. »Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera«, Bá segir hann dæmisögu til að sýna, hvernig góðir sáðmenn eigi að sá sæði lians, orði lians. Peir eiga að fela Drotni vöxtinn og bíða eftir því með trú og þolinmæði að það korai upp sem þeir hafa sáð. »Vong'laður sáðmaður vakir og sefur, vöxtinn frelsarinn sæðinu gefur«. Síðast lýsir Jesús því í dæmisögu, hvernig fagnaðarerindi Krists breiðist út um heiminn «yflr lönd yfir höf«. »Hve gleðileg verður sú guðsríkis öld«. Rekkjuvoðin. Bóndi nokkur átti föður á lífi og hafði hann hjá sér. Hann var orðinn gamall og þar af leiðandi ógn skapstirður og vandfarið með hann. Bóndinn gat ékki umborið föður sinn, og var oft vondur við hann. Faðir hans óskaði sér þá, að hann gæti komist á elliheimilið þar í bænum. Hann bjóst við, að þar gæti iiann fengiö þá aðhlinningu, sem honum væri þörf á. Bá losnaði hann við harðúð og aðfinningar sonar síns; það gerði honum eillidagana óbærilega. Sonur 'hans tók þessu feginsamlega, og lét ekki á sér standa að verða við óskum hans, og lét flytja hann á heim- iliö samdægurs. En ekki var heldur alt á boðstólum á elliheimilinu, sem gamla manninn langaði til að fá. Par fjekk

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.