Ljósberinn


Ljósberinn - 01.05.1937, Qupperneq 4

Ljósberinn - 01.05.1937, Qupperneq 4
LJÓSBERINN Hver er vinurinn? Sá fyrsti, sem kemur til vor, þegar heimurinn snýr við oss bakinu. Við- skiftabanki, sem endalaust kaupir af okkur víxla og borgar þá með trausti, samúð, leiðbeiningum, ást og ómetan- legri aðstoð. Sá, sem elskar báða, þig og sannleikann, og segir þér sannleik- ann, og gerir banu dásamlegan með hinum fögru og mjúku litum friðar- bogans, svo að þú elskar bann. Sá, sem þú getur trúað fyrir öllu, engu gleymir og allt varðveitir. Hlekkurinn í lífskeðjunni, sem aldrei brestur í bamóðum bylgjum og báskasjóum. Tindrandi vonarstjarna í svartnættis- myrkri lífsins, sá, sem skilur okkur og lætur okkur vita það, þegar allir aðrir þegja. Fegursti demanturinn í gimsteinahring vinanna, sem ljómar fegurst 1 niðamyrkrum mótlætis og sorga. Trúfastasti verndarinn á mæðu- stund. Obrigðult hæli, þegar stormarn- ir geysa. Friðarströndin, sem býður þér faðminn, þegar þú hefir liðið skip- brot. Sá, sem göfgar og eykur gleði þína og tekur á sínar berðar byrðar sorga þinna og synda. Sá, sem er ein- ber einlægni, hreinskilni og trúfesti, og svik voru ekki fundin í hans munni. Jesús Kristur, frelsari þinn, vill vera þér slíkur vinur. V í s a . Hver grœðir hjartans kvíða? Hver kœtti menn grœtta? Hver sótt hindrar liœtta? Hver snauðan vann dauða? Jesús huggar, hryggð lógar. Hann grœddi sorgmœdda. Hann lífi heilsu gefur. Hann snauðan vann dauðann. Ií. P. Til Jóns Helgasonar, ritstjóra Ljósberans. Ég lít yfir Ljósberans þœtti og Ljósberans athuga múl, og les út úr línu og drœtti, um listrœna, barnelska sál. Ég les þar um lífsglaða drenginn, sem lærði við meistarans hönd að stilla og hreyfa þann strenginn, er staðfestir alvörubönd. Ég les þar um œskunnar yndi, og ungdómsins brennandi þrár, um óskir, sem leika í lyndi og leitandans vonbrigði sár. Ég lcs þar um brosandi borgir, sem byggjast og hrynja í senn, um gœfu og geigvœnar sorgir, er gagnkvœmt fá uppalið menn. En allt það, sem les ég og lœri, er Ljósberans athuga mál, jbað gegnlýsir guðsneistinn skœri, frá göfugri öldungsins sál. lh)í syndugum Samverji er hann, ])á sér þeirra reikula gang og j'relsarans bróðurhug ber hann, þá börnin sér tekur í Jáng. Hann leiðbeinir œskunnar anda, hann umlíðan vekur og sátt. Hann leysir úr vegferðarvanda, og vitnar um kristindómsmátt. Hann frœðir um kœrlcikans keðjur, er kvíslast frá manni til manns, og því flyt ég þúsunda kveðjur og jfakkir og óskir til hans. Um páskana 1937, María Rögnvaldsdóttir. Mér er ekki um það gefið að flytja lof um sjálfan mig, því að allt starf mitt er á annan veg en ég vildi. En kvæði þetta, sem hér birtist, og er stílað til mín, er svo þrungið af vináttu og skilningi á liðnum æfidegi mínum, að ég læt Ljós- berann flytja það, með því að það berst inér í hendur nálægt merkilegum tímamótum í æfi minni, sextugsafmælinu. 128

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.