Ljósberinn - 01.08.1940, Side 31

Ljósberinn - 01.08.1940, Side 31
LJÓSBERINN 147 víst einu sinni, en losnaði fljótlega aftur. Pegar við komum út á Höfn, fóru. þeir pabbi og Ari að útvega bíl til ferðarinnar, en við krakkarnir fórum að taka upp nest- ið. Þeir fórii fyrst til Öskars Guönasanar og báðu hann að flytja okkur og gekk það vel, svo spurði hann hvað krakkarnir væru margir og kom þá í 1 jós, að þeir komust ekki allir í einn bíl. Þá var farið til Páls Einarssonar og kom hann svo líka. Páls- bíllinn var opinn og á honum voru allir stærstu og duglegustu krakkarnir, sem sízt gat orðið kalt, en vindur var tals- verður. Við fórum. svo af stað og sungum alla leiðina. Þegar við komum upp á Ai- mannaskarð, fórum við að skcða okkur um, en útsýnið var heldur slæmt, Nú lang- aði okkur til að koma dálítið lengra upp í Lónið og afréðum því að halda áfrarn. En þegar við komum á móts. við Syðra- Fjörð, stoppuðum við aftur og datt okkur þá í hug að fara út á Papós. Gengum við svo þangað. Sáum við þar tættur af verzl- unarhúsunum, sem voru þar einu sinni. Við sáurn lika helli, sem er rétt. fyrir aust- an Syðra-Fjörð. Við fórum svo aftur til bilanna. Snerum við nú aftur og stopp- uðurn á Skarðinu og var þá sæmilegt út- sýni, en ekki samt svo að við sæjum ör- æfajökul. Við, sem vorum á Páls-bílnum, gengum svo niður Skarðið, en fórum aft- ur á bílinn, þegar koanið var niður á slétt. Fórum við svo aftur út á Höfn, og þegar þangað var komið, borðuðum við það, sem eftir var af nestinu okkar, og vorum þar að spóka okkur nokkra stund. Síðan fórum við á »trillunni« út í Álaugarey. Skoðuðum við húsin þar og leizt okkur heldur vel á þau, Svo sigldum við aftur í land og skömmu seinna fórum við heim. Kl. 7v á sunnudagskvöldið vorum við komin heim. Ingunn Sigr. Sigurjónsdóttir. Fuglarnir okkar. I vor, þegar allir fuglarnir flugu unr loftið bláa og vorsólin sendi geisla sína niður til þessara vorgesta okkar, þá þótti okkur litlu stúlkunum sárt, það sem ég segi frá hér á eftir. Einu sinni fórum við að smala úr engjunum og fundura þá vængbrotinn fugl í hóhna utan við túnið. Þá var nýbúið að leggja síma um sveitina og hafði hann flogið á vírinn.. Við fórum með hann heim og létum hann inn í vafn- ingsviðinn á völvuleiðinu, þvi að við héld- um að þar væri bezta skjólið handa hon- um og bezta vörnin gegn ránfuglum. En morguninn eftir var hann farinn. Þann dag vorum við að raka ljá uppi á túni. Þá var koJlað á okkur í kaffi. En þegar við komum út aftur, sáum við lóu. Hún reyndi að fljúga, en gat það ekki, af því að hún var líka vængbrotin. Við létum hana líka á leiðið, en daginn eftir var hún farin, Þann dag fundum við aftur hinn fuglinn. Eg veit ekki hvaða fugl það var, en ég hugsa að það hafi verið sendlingur. Nú er kominn vetur og allir fuglarnir farnir og þá hafa þessir fuglar dáið, af því að þeir gátu ekki flogið tii annara landa. Ég vildi að þeir hefðu viljað vera hjá okkú'r. Þá hefðu þeir ef til vill lifað, en þeir hefðu ekki verið eins frjájsir eins og hinir fuglarnir fleygu. Kri'stín Kristjánsdóttir. Skrítlur. Leikhúsgestur (við sessunaut sinn): »Þessi kona. sem leikur aðalhlutverkið, er lélegasta leikkonan, sem ég hef nokkurn tíma séð«. Sessunauturinn: »Svo? Finnst vður |iað 't Þetta er konan mín«. Leikhúsgesturinn: »Ég á við — hm — hlutverkið er svo erfitt, vegna þess að höfundur leiksins hlýtur að vera einhver fábjáni eða asni«. Sessunauturinn: »Höfundur leiksins? Það er nú ég«. Gunni: »Ég var að hugsa um að ferðast austnr í sýslur, en vcrð víst að hætta við það, því ég hef heirt, að þar liafi orðið vart við einhverja illkynjaða pest nýlega«. Nonni: »Hennar vcgua er þér óhætt að fara, því að þó þú sért nú dálítið satiðarlegur, þá býst ég ekki við að þú fáir þá sjúkdóma, sem þar eru að ganga. Þeir heita nefnilega fjárkláði og bráðapest.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.