Ljósberinn


Ljósberinn - 20.05.1933, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 20.05.1933, Blaðsíða 6
134 LJOSBERININ gnægða og gleði, sem hún hafði oft hugsað um og heyrt sagt frá, en aldrei séð sjálf, því Dísa litla kúasmali hafði aldrei komið í sýslumannshúsið fyr. »Hvernig vissirðu, að Rúna var hérna uppi?« spurði Soffía. »Stúlkan í eldhúsinu sagði mér aö •fara upp,« svaraði telpan. »Bíddu annars augnablik, telpa mín,« sagði Soffía, »á meðan ég skrepj; snöggvast ofan í eldhúsið, ég kem að vörmu spori upp aftur.« »Það er mikið að þ'ú sézt,« sagði eld- hússtúlkan við Soffíu, þegar hún kom inn í eldhúsið. »Ég er fyrir löngu búin að sjóða silunginri á kvöldborðið og skera brauðið, aíhýða kartöflurnar og En Soffía greip framm í fyrir henni og spurði í hálfum hljóðum: »Hvar er frúin?« »Frúin!« endurtók eldhússtúlkan, »Eins og ég viti, hvar frúin er! Ég tel víst, að hún sé inni i einhverri stof- unni. En blessuð farðu nú að koma matnum inn. Sýslumaðurinn fer að koma þá og þegar, og þú veizt, að hann vill fá matinn á réttum tíma.« »Ég skal koma undir eins,« sagði Soffía. »Ég þarft aðeins að skjótast upp til hennar Rúnu litlu fyrst.« Dísa stóð í sömu sporum fyrir fram- an dyrnar, þegar Soffía kom aftur. Hún hélt báðum höndum utan um berja- baukinn, og virti vandlega fyrir sér það, sem fyrir augun bar. »Farðu rétt sem snöggvast inn til hennar,« hvíslaði Soffía. »En hlessuð, góða, hafðu ekki hátt!« Soffía lauk hurðinni upp, og ýtti Dísu með hægð inn fyrir dyrnar. Rúna reis upp við olnboga, þegar hún heyrði umganginn, en þegar hún sá Dísu, settist hún alveg upp, rétti fram báðar hendur og hrópaði: »Dísa!« Glaðværðin í rómnum bar vott um, hve fegin hún varð. »Dísa! Sæl! Ertu með berin?« Dísa ’gekk inn gólfið, hægt og hljóð- lega, eins og fyrir hana var lagt, og leit'jafnframt eftir því, hvort íslenzku skórnir skildu nokkur spor eftir á speg- ilskygðum gólfdúknum. »Sæl, Rúna!« sagði hún og rétti Itúnu hendina. Disa tylti sér framan á stólinn, sem Rúna bauð henni til sætis í; það var svo falleg sessa í stólnum, að hún þorði ekki að setjast í hann; kjóllinn hennar var kannske ekki nógu hreinn til þess. »Hérna eru herin,« sag’ði hún og rétti Rúnu berjabaukinn. »þau eru reyndar ekki orðin vel góð ennþá, en eftir svo sem viku verða þau orðin ágæt, og þá skal ég færa þér meiri ber.« Rúna tók lokið af bauknum og horfði ofan í hann. »Nei, hvað þú hefjr týnt mikið af berjum handa mér, Dísa,«. sagði hún, »kæra þökk! —- en — ætli ég megi borða berin - Soffía?« sagði hún og leit á Soffíu. — »Af því .hún frænka sagði, að berin væru óholl enn- þá.« »Uss!« sagði Dísa. »Ekki hefir mér orðio ilt af þeim. önnur eins ósköp og ég er búin að borða af þeim!« »Ég er annars alveg hissa, hvað ber- in eru orðin góð,« sagði Soffía, er hún hafði bragðað á berjunum, »og þau eru hrein og' vel týnd hjá Dísu litlu. Ég skil ekki annað, en að þér sé alveg óhætt að bragða þau; þú skalt samt ekki borða mikið af þeim í einu. Nú skrepp ég ofan snöggvast. Dísa má vera hjá þér þangað til ég kem aftur, en þið meg'ið ekkert láta heyrast til ykkar.« »Ö, hvað ég er fegin að þú komst, Dísa,« sagði Rúna allshugar fegin. »Mér leiddist svo að þurfa að hátta svona snemma.« »Já, en því þurftirðu þess?« spuröi Dísa,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.