Ljósberinn - 01.01.1942, Side 7

Ljósberinn - 01.01.1942, Side 7
LJOSBERINN 5 ið hún, sem öllu hefir bjargað, þegar sa-- síminn hefir slitnað. Menn sáu það fljótlega, eftir að farið var að nota loftskeyti á stóru skipunum, hvílíkt feykna gagn gat að þeim orðið. Þegar þessi stóru skip urðu fyrir óhöpp- um, kom það fyrir, hvað eftir annað, að með loftskeytum var hægt að kalla á hjálp og fá hana svo fljótt, að skipunum varð bjargað með öllu sem á þeim var, lifancli og dautt. Og þegar stórslys urðu, svo að skip sukku á skammri stundu, gátu loft- skeytamennirnir náð til annara skipa og gefið þeim nákvæmar leiðbeiningar um, hvar bátanna væri að leita með fólkinu, sem í þá hafði bjargast. Þetta varð til þess, að upp frá þessu urðu hrakningar skip- brotsmanna miklum mun skemmri en áð- ur var, og bjargað varð nú þúsundum mannslífa, sem myndu h'afa farist ef ekki hefðu verið loftskeytatækin og kjarkmikl ■ ir loftskeytamenn. En þess ber að geta, að oft var mikil raun loftskeytamann- anna. Sjómennirnir iétu sér fátt um fhn- ast fyrst þegar þessar »brúður«, sem þciv nefndu svo, birtust á skipsfjöl. Þeir voru jafnvel hæddir, þessir ungu menn, — »sem ekkert höfðu annað að gera á skipinu, en að flatmaga í fínum og hlýjum klefa og lesa reifara«. En það kom annað iiljóð í strokkinn, þegar fór að spyrjast um af- rek loftskeytamannanna. Á hættustund voru það oft þeir, sem björguðu skipum og mannslífum. Nú voru það t v c i r menn, sem síðastir yfirgáfu sökkvandi skip. Áður hafði það verið e i n n maður, — skipstjórinn. Nú var það skipstjórinn o g loftskeytamaðurinn, eða öllu heldur loftskeytamaðurinn og skipstjórinn. Því að það kom ekki ósjaldan fyrir, að skip- stjórinn varð að bíða eftir loftskeytamann- inum, — skipið komið að því að sökkva en loftskeytamaðurinn að reyna að ná í samband við önnur skip fram á síðasta augnablik. Og það kom líka fyrir, að loft- skeytamenn sýndu þá hetjudáð, að fórna lífi sínu til þess að bjarga öðruin manns- lífum. Þeim gekk ef til vill illa að ná sam- bandi og gera skiljanlegt hvar skipið væri o. s. frv. Þeir sátu þá við tækin og hömuðust á þeim meðan þau voru nothæf, en þegar þeirra starfi var lokið, eða áhöld- in orðin ónothæf var ef til vill um sein- an að fara að standa upp og reyna að bjarga sér. Þeir sátu þá kyrrir, þessir hug- prúðu menn, og sukku »í myrkvan mar«, — en minning þeirra lifir. Þær eru óteljandi, sögurnar um drengi- lega og hugprúða framkomu loftskeyta- manna á neyðarstundum. Og eflaust kunna íslenzkir sjómenn margar slíkar sögur um sína loftskeytamenn, því að loft- skeyti voru komin í flest íslenzku skipin, þegar styrjöldin hófst, og íslenzkir loft- skeytamenn hafa! reynzt hetjur, cigi síður en aðrir sjómenn vorir. En nú er lítið

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.