Ljósberinn - 01.01.1942, Síða 13

Ljósberinn - 01.01.1942, Síða 13
L, JÖSBERINN 11 ar-broddstafur með rendum hnúð úr beini, — eftirlíking af broddstöfunum, sem ferðamenn notuðu í ferðalögum á vetrum, og þá fyrir skíðastafi iíka, en þó að staf- urinn væri ekki stór, var hann talsvert Jengri en ég. En ég varð sex ára þennan dag. Og í bögglinum voru nýir snjósokk- ar, væn ullarpeysa og prjónahúfa, — með öðrum orðum allur útbúnaðurinn, eins og þurfa þótti í þá daga. Hvort ég varð glaður? Ég er búinn að segja það, -- ég varð alveg yfir mig glað- ur. Og ég fór víst fljótlega að liugsa til hinna drengjanna, sem engin skíðin attu, eða eldd annað en — tunnustafi. Tunnu- stafi! Ég hugsaði strax til þeirra með fyr- irlitningu. Og nú gæti ég farið langt upp í breldeur með »stóru strákunum«, sem áttu sltíði. Það yrði sjón að sjá mig skálm- andi upp eftir með þeim, með broddstaf- inn, í stóru peysunni og með skotthúfunii. »En hvernig er veðrið«. Pabbi stóð hjá rúminu mínu og horfði á mig. »Ég hélt að þú myndir nú segja eitthvaö annað fyrst'?« sagði hann brosandi. Og ég mundi það þá samstundis, að í öllum fögnuðinum hafði ég gleymt að þaldra fyrir gjafirnar. Þetta kemur svo oft fyrir, því miður. Ég rétti upp hendurnar og pabbi laut ofan að mér og ég ltreisti höfuðið á hon- um eins og ég gat: »ÞakIra þér fyrir slríð- in og allt saman, — elslm pabbi minn«. Ög hann óslraði mér til hamingju — og svo hljóp ég yfir í rúmið til hennar mömmu og gerði henni sömu skil. En svo kom það á daginn, að veðrið var svo vont, að »eldd var hundi út sigandi«, — hvað þá að lítill drengur, fengi að fara út, þó að Iiann ætti sltíði. Og þá lækkaði loftvogin innan í mér. Ég hekl að ég hafi fyrst farið að skæla. Þetta voru svo marg- fökl vonbrigði. Fyrst og fremst það, að fá eltki tækifæri til að reyna skíðin strax. Og svo það, að fá ekki tækifæri til að láta aðra dást að þeim, — og síðast en ekki sízt: að fá ekki tækifæri til að sýna sig í »gallanum« og á skíðum! En allan þennan dag varð ég að vera inni. Og sorgirnar gleymdust brátt, því að pal)bi hjálpaði mér til að hafa gaman af sltíðunum inni. Og ég var víst með þau í fanginu lengst af, allan daginn, og um allt húsið. Daginn eftir var sunnudagur. Þá var bjart veður og gott sltíðafæri. Og skömmu eftir að albjart var orðið fóru drengirnir og piltarnir að þyrpast upp í brekkurnar, — og eftir nokkrar umræður milli pabba og mömmu, fékk ég að fara líka. Mamma hjálpaði mér í »gallann« en pabbi var að leggja mér ýms heilræði á meðan. Ég man nú lítið af þeim, annað en það, að ég skyldi nú ekld fara langt upp í brekkur, fyrsta kastið, en reyna heldur að sækja á. Og hann taldi mömmu trú um, að það væri engin hætta á því, að ég færi mér að voða. Mér er sagt, að það hafi verið brosleg sjón að sjá til mín, þegar ég skálmaði upp grundirnar og »til fjalls« þennan morg'- un. En ég man bað að ég var býsna drjúg- ur með mig: Tvíhenti stafinn og reyndi að taka sem lengst sporin. Það var örstutt upp undir brekkurnar. Þegar þangað var komið, þyrptust dreng- irnir utan um mig til þess að skoða sltíð- in. Og þetta átti nú við mig, — því að það var ekki af því dregið, að þetta væru vel smíðuð skíði, — og pabbi minn hafði smíðað þau. Eirihver sagði nú að vísu að þetta væru 1 jómandi falleg b r ú ð u- skíði. Mér fannst hálfgert óbragð að því, — og fór að stika ypp í brekkuna. Ein- hverjir pilta voru mér samferða, sem töldu mér trú um, að nú væri mér svo sem óhætt, ég hefði verið svo duglegur (að detta?) á tunnustöfunum, og það væri eitt- hvað annað að hafa svona fín skíði und- ir fótunum. Og mér fannst vera mikið sati í þessu. Og ég var, eins og áður er sagt, 1 ákaflega rogginn þennan morgun. Ég var kominn nokkuð langt upp í ; brekkuna, þegar mér datt í hug að lítalM

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.