Ljósberinn - 01.01.1942, Page 14

Ljósberinn - 01.01.1942, Page 14
12 LJÖSBERINN við. Og þá leizt mér satt að segja ekki á blikuna. Ég var ábyggilega kominn miklu hærra, en pabbi hafði ætlast til, — hvað þá mamma, og það lá við, að mér hrysi hugur við því að renna mér niður. En ég var á s k í ð u m, og það var allur mun- ur. Og ég var ákaflega mikið upp með mér, af skíðunum og útbúnaðinum öllum. »Pú ert þó ekki að hug'sa um, að fara að renna þér héðan?« sagði einnvei hæðn- islega. Og nú fór um mig hrollur. Þeir ætluðu þó ekki að fara mar.a mig til að fara hærra, strákarnir? Hverníg myndi mér ganga að standast það? Til allrar hamingju var því afstýrt, því að einn pilturinn tók alveg af skarið og sagði: »Þú skalt ekki vera að fara lengra, Tiddi minn! Ég kalla þig góðan, ef þú stendur þetta. Og þú skalt ekki anza því, þó að strákarnir séu að mana þig til að fara hærra«. Þetta þótti mér vænt um. Ég var nú samt svo mikið flón, að mér fannst, að það vera allt undir því komið, að nú var ég á skíðum en eltki ólukkans tunnu- stöfunum, •— mér væri eiginlega allt stætt. Og ég fór nú að búa mig undir, að renna mér niður brekkuna. Þeir hjálpuðu mér strákarnir og voru óvenju vikaliðugir. Eg hélt að það væri af því, að nú væri ég orðin svo mikil persóna, af því að ég átti skíði. En það var víst allt annað, sem fyr- ir þeim vakti. Þeir voru nefnilega að hlakka til að sjá mig detta. Og þá ánægju fengu þeir. Skíðafærið var ágætt, — nýfallinn þétt- ur og háll snjór, ofan á harðfenni. En það var víða grunnt niður á harða snjó- inn. Það var haldið við skíðin, og mér var hjálpað á þau. Allt í lagi! Og svo rann ég af stað. Undur hægt fyrst. En svo fór hraðinn að smáaukast. Mér fór að vökna um augu, — og svo fór ég að riða, og svo — ja, svo missti ég víst bæði ráð og rænu og jafnvægið. Það kom á mig ein- hver hnykkur og ég tókst á loft og kom niður á andlitið, eða öllu heldur á nefið, því að þar fann ég fyrst til. Og þarna lá ég, skælandi og spriklandi, — en skíðin héldu áfram, niður brekkuna. Þegar ég var að reyna að standa upp, sá ég að þaö var blóð í snjónum. Og þá herti ég skæl- urnar um allan helming. Ég hafði ein- mitt dottið, þar sem grynnstur var nýi snjórinn, og hruflað mig á nefinu og enn- inu á hjarninu, sem undir var. Ég hafði farið glaður og borubrattur að heiman. En það var eitthvað annað að sjá mig þegar ég kom nú í augsýn for- eldra minna, sem komu út í dyrnar, aö taka á móti mér: Hann var ekkert hreyk- inn, drengurinn, sem þarna kom: niður- lútur, háskælandi og blóðugur í framan. Pabbi hljóp til móts við mig, bar mig undir hendinni heim, — og skíðin í hinni hendinni. Og þar beið útbreiddur faðmur mömmu. Mikið var þá gott, eins og allt af, þegar eitthvað var að, að eiga þar skjól. Meiðslin voru ekki mikil, — stór skráma á nefinu og tvær eða þrjár minni á enn- inu. En það hafði blætt talsvert, af því að frost var mikið. En þessi fyrsta skíðaferð mín kenndi mér tvær eða þrjár lexíur, sem mér var víst bent á, þá samstundis. T. d. hvað gamla máltækið þýðir, þetta: »Aldrei er flas til fagnaðar«. Nú, og svo hafði ég ekki hlýðnast því, sem mér hafði verið »uppálagt«, — ég hafði ætlað mér miklu meira en ég var »maður« til. Og svo loks þetta: Það er aldrei holt að vera um of hreykinn. Það hefnir sín allt af. Og þao hafði hefnt sín alveg hroðalega á mér. Það skildi ég. Þess vegna var nú þessi fyrsta skíðaför mín mér að nokkru gagni þó að hún væri ekki glæsileg. En síðar átti ég margar ánægjustundir á skíðum, með góðum leikbræðrum. Framh.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.