Ljósberinn - 01.01.1942, Blaðsíða 17

Ljósberinn - 01.01.1942, Blaðsíða 17
LJÖSBERINN 15 annars Ijómandi fallegan rauðan brúðu- kjól, sem Karen virtist hafa mesta dá- læti á. Loksins kom brúðan sjálf einnig í Ijós, en hún var þannig útlítandi, að auðséð var, að geymslan var ekki upp á það ákjósan- legasta, og Karen litla varð alveg frá sér við að sjá elsku brúðuna sína bæði rykuga og alla kruklaða. Nú átti Lísa litla eng- an kjól. Elsa reis nú upp aftur og burstaði af sér rykið; hún hugsaði sig um dálitla stund. »Heyrðu, Karen, áttu ekkj einhverjar fallegar dulur, svo gætum við saumað brúð- unni nýjan kjól«. Karen komst alveg á loft. »Jú, uppi á skápnum er kassi fullur af dulum. Mamma er vön að sauma úr honum. Þú getur bara klifrað upp á stól og, tekið kassann ofan«. Elsa náði sér í stól, steig upp á hann og náði ofan kassanum. I honum var meira að segja dálítil karfa með saumnálum, skærum og fingurbjörg og mislitu silki. Til allrar hamingju fundu þær loks stóra rauða pjötlu af sama tagi og í kjólnum, sem hafði eyðilagst. »Það er afgangur af afmæliskjólnum mínum í fyrra«, sagði Karen litla. Elsa settist þegar úti við gluggann, og Karen kom með brúðuna sína. Elsa tók kunnáttulega mál af henni, sneið efnið og þræddi saman og mátaði, og Karen litla horfði á hana., bjarteygð og áhugasöm. Elsa hamaðist við saumamennskuna í fulla klukkustund, en þá var líka kjóllinn búinn. Saumsporin hefðu auðvitað getað verið eilítið smærri, og saumarnir ofur- lítið beinni, en Elsa var ekki að fást um þess háttár smámuni, og svo var að sjá, sem kjóllinn væri mátulegur. Hún hélt brúðunni á millí hnjánna, steypti kjólnum yf;ir höfuðið á henni og festi hann og lagfærði með títuprjónum. Hún var svo önnum kafin við þessi störf sin, að hún gleymdi öllu umhverfis sig. Eiginlega var hún ekki sérlega gefin fyr- ir að leika með brúður, en hún hafði gam- kn af að sauma brúðukjóla. Hún var svo niðursokkin í vinnu sína, að hún tók ekkert eftir., að hurðin var opn- uð gætilega og lokað jafn hægt eftir of- ur litla stund. En rétt á eftir hitti pabbi hennar frú Ström úti í garðinum. »Heyrið þér mig, frú Ström. Þér nefnd- uð hérna um daginn, að Stígur væri ágæt- is strákur og svo gúður við Karenu litlu, og þér voruð alveg hreykin af guðsyni yð- ar. Hafið þér ekki gaman af að sjá, hvaö drengurinn aðhefst rétt núna?« »Það er vonandi ekkert að?« spurði frú Ström kvíðin. »Nei«, sagði læknirinn hlæjandi, »það eru svo sem engin strákapör, sem hann hefir fyrir stafni — komið þér nú með mér, en við skulum ganga hægt«. Þau læddust nú gegnum borðstofuna, og læknirinn opnaði hurðina á ný mjög var- lega. »Lítið þér nú á«, hvíslaði hann. Elsa sat ennþá með brúðuna á milli hnjánna, hún var nú búin að færa hana í kjólinn — en nú stóð á hattinum — Elsa var að bera silki-slaufu við hann öðru meg- in til að sjá, hvernig það færi Lísu-brúðu. »Nei, nú liefi ég aldrei séð annan eins dreng!« sagði frú Ström steinhissa. »Það er heldur enginn drengur«, sagði læknirinn, það er telpa! Sjáið þér nú til ... Elsa«, kallaði hann allt í einu. »Já, pabbi«, var svarað glaðlega að inn- an, »bíddu augnablik«. Hún festi silkislauf- una með títuprjóni og stóð svo upp með brúðuna í hendinni. En! er hún leit framan í föður sinn, sem var alvarlegur á svip, en gat þó varla var- ist hlátri, varð hún allt í einu blóðrjóð í frajnan, og var að sjá, eins og hana lang- aði mest til að fela sig einhvers staðar. En er öll sund voru lokuð, stóð húr. graf- kyrr og rugluð og var eins og fábjáni á svipinn. Frú Ström horfði spurnaraugum á þau bæði, og læknirinn rak nú upp skellihlátur. »Við þessu hafðirðu víst ekki búist, Elsa! Jæja, nú er víst bezt, að þú segir frú Ström

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.