Ljósberinn - 01.01.1942, Qupperneq 19

Ljósberinn - 01.01.1942, Qupperneq 19
LJOSBERINN 17 Frá yngstu lesendunum. FYRSTI SNJÓKARLINN. Það var hérna á laugardaginn, þegar ég var nýkominn úr skólanum, og snjórinn var sem mestur, að Gísli bróðir minn kom til mín og bað mig um að byggja með sér snjófiús. Ég var auðvitað strax til í það. Fórum við nú út og sóttum skófiur og fórum að hlaða vegg. Gekk það nú greið- lega í fyrstu. En þegar veggurinn fór að hækka, fór að hrynja úr honum, og hvern- ig sem við fórum að, gat aldrei tollað í skörðunum. Fór, svo að lokum að víð hætt- um við hið fyrirhugaða snjóhús. Þess í stað byrjuðum við að »velta«, og ætluðum við að búa til snjókarl, ef það skyldi takast. Þegar kúlan var orðin hæfilega stór, hætt- um við að »velta« henni og' settum hana þar sem snjókarlinn átti að standa. Síðan byrjuðum við á annari og settum hana upp á hina fyrri, og að endingu bjuggum við til hausinn. Þá var aðeins eftir að mynda andlitið. Ég fór inn, og sótti stóra gulrót, og setti hana fyrir nef. Síðan fékk ég kolamola fyrir augu og munn, og stakk síðan upp í hann langri pípu. Þá mundi ég eftir því, að pabbi átti gamlan halt- Sótti ég hann og setti á hausinn á karli. Þarna var þá kominn allra myndarlegasti karl, með stórt og mikið »kónganef«, og fínan hatt og svo langa pípu í munninum. Um kvöldið háttuðum við og sofnuðum eftir vel unnið dagsverk. É'g svaf vel og dreymdi; mig marga drauma. — Á sunnudagsmorguninn um 10 leytið vaknaði ég. Ég klæddi mig í snatri og fór út og — — — þegar ég kem út, verð- ur fyrstur fyrir mér karlinn. Hann var þá mjög farinn að hallast og, mikið bráðn- aður. Það var nefnilega komin hláka, og hafði rignt um nóttina. Pípan var dottin niður og hatturinn var farinn af hnakk- anurn, en hafði runnið fram á nef og hékk þar. Annað augað var líka dottið úr og þú hefir sagt það!« Elsa leit upp á föður sinn, og henni vöknaði um augu. Frú Ström lagði ástúðlega handlegginn um hálsinn á henni: »Þér getið.verið viss um það, læknir, að úr því Elsa brást eigi bróður sínum, þá bregst hún heldur ekki föður sínum«. Elsa leit þakklátum augum á hana, og er þær fóru út úr stofunni, stakk Elsa hendinni inn undir handlegginn á frú Ström, og síðan voru þær óaðskiljanlegar, það sem eftir var tímans, þangað til Elsa fór. »Það vildi ég, að þér væruð Emma frænka!« sagði Elsa mörgum sinnum. Það varð einnig samkomulag um það að enginn annar á heimilinu skyldi fá neitt að vita um þessa. »umskiftinga« til þess að gera það eigi erfiðara, en orðið var. Framh.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.