Ljósberinn - 01.02.1947, Qupperneq 11

Ljósberinn - 01.02.1947, Qupperneq 11
LJÓ SBERINN 31 Ur sögu kristniboðsins v. SkírSur Haraldur Gormsson Danakonungur. Alstaðar kvað við af orustugný nor- rænna víkinga. En meðan á þeim hergný stóð, var munkur einn frá Frakklandi á ferðinni um Norðurlönd, hóg\rær og kyrrlátur, og boðaði fagnaðarboðskap friðarins. Og hann vann meiri sigur en hinar hraustustu hetjur í víkingaliðinu; en sig- ur sinn vann -hann hvorki með sverði né blóðsúthellingum, heldur með miklum alvöruorðum og fórnandi kærleika. Það var hann, sem sigraði hjörtu víkinganna, boðaði Norðurlandaþjóðunum kristni, kenndi þeim nýja lifnaðarháttu og beindi þeim að allt öðru marki en þær höfðu sett sér áður. Þessi munkur var Ansgar (Ásgeir), sem kallaður hefur verið postuli Norð- urlanda. Ríki Frakkakeisara náði þá allt norð- ur að ánni Egðu á Jótlandi. Keisurunum lék mikill hugur á að útbreiða kristnina; en þeir kunnu, því miður, ekki allt af réttu tökin á því. Karl keisari hinn mikli hafði þröngvað Söxum með valdi til að taka kristni og láta skírast. Sonur hans, Lúðvík hinn guðrækni, hafði í hyggju að seilast enn lengra norðureftir, til hinna herskáu nágranna sinna, Dana; en það varð þeim til hamingju, að hann gerði það á annan veg en faðir hans; hann sendi ekki hersveitir á hendur þeim, lield- ur kristniboða. Fyrstur þeirra kristniboða var Ebo frá Reims (á Frakklandi). Honum varð að sönnu all-lxtið ágegnt, en þó nokkuð. Hon- um tókst meðal annars að fá Harald Gormsson Danakonung til að fara á fund Frakkakeisara; hafði keisarinn þá aðset- ur í Ingelheim hjá Mainz; átti Haraldur að taka þar skírn. Skip skriðu svo að hundi-ðum skipti undir livítum seglum upp eftir Rínfljót- inu; var Haraldur konungur á fremsta skipinu. Konungi var fagnað í höll keis- arans með hinni mestu pi'ýði. Sagði kon- ungur keisara, að Ebo hefði boðað sér kiústni, sagt, að guðir hans væru hégómi, að einn Guð hefði skapað himin og jörð og veitt heiminum náð fyrir son sinn Jesúm Ki'ist. Hai'aldur konungur var skírður í hinni veglegu kirkju hins heilaga Albans í Mainz. Keisarinn sjálfur skrýddi hann hvítavoðunum og varð guðfaðir hans og tók liann sér í sonar stað í andlegmn skilningi, en keisarafrúin Júdit varð guð- móðir hans, en Lótar keisarasonur varð guðfaðir að syni konungs, en stórmenni keisara urðu guðfeður konungsmanna. Að lokinni skírn gekk konungur í hvítavoðunum til hallar; skrýddi keisari hann þá purpurakápU, er alsett var gull- borðum og gimsteinum, gii'ti lxann sverði sínu um lendai', setti gullkórónu á liöfuð honum og bjölluskó á fætur honum.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.