Ljósberinn - 01.02.1947, Page 12

Ljósberinn - 01.02.1947, Page 12
32 LJÓSBERINN Nú var kirkjuklukkunum hringt og þá gekk hið prúða lið aftur til hallarinnar í skrúðfylkingu og gengu prestar fram með fylkingunni, en kallari fór fyrir og ruddi skrúðfylkingunni braut með stafn- um sínum. Þegar gengið var í kirkju, gall við lúðrablástur á móti fylkingunni, klerkar sungu, reykelsi ilmaði; varð Har- aldur konungur og föruneyti hans hug- fangið af undrun. Þegar Haraldur konungur hélt aftur heim til Danmerkur, þá slóust nokkrir munkar í för með honum; áttu þeir að halda guðsþjónustur fyrir konung og halda svo áfram, þar sem Ebo hafði byrjað. Ansgar var einn í tölu þessara munka. VI. Bernska Ansgars. Ansgar var borinn og barnfæddur í Norður-Frakklandi árið 801. Móðir hans var guðrækin, en hann missd hana fimm ára gamall. Skömmu síðar kom faðir hans liomun í skóla; þar átti hann að læra að Iesa. En meira kvað þar að iðjuleysi hans og bernskubrögðum en námi, eins og títt er á þeim aldri. En á þeim árunum sem hann gaf þess- um æskubrestum lausan tauminn, dreymdi hann eina nótt, að hann væri staddur þar, sem leðja mikil var fyrir og sleipt mjög; hugðist hann með naum- > indum komast upp úr því feni. En skammt þaðan þóttíst hann sjá yndis- fagra braut; á þeirri braut sá 'hann konu eina prúða, sem drottning væri, ganga fram í heilagri prýði og vegsemd. Henni fylgdu margar konur aðrar og ein þeirra var móðir hans. Óðara en hann sá hana, ætlaði hann að hlaupa til hennar, en átti bágt með að komast upp úr feninu. Kvennasveitín færðist nær. Hann þótt- ist vita fyrir víst, að sú konan, sem hon- um virtist vera fyrir þeim öllum, væri engin önnur en María mey, móðir Guðs sonar. Nú þótti honum hún segja við sig: „Sonur, viltu komast til móður þinnar?“ Hann þóttist svara: „Já, það þrái ég svo lijartanlega“. Konan tók þá aftur til máls og sagði: „Ef þú vilt eiga vist með okkur, þá verðurðu að forðast allan hégóma og leggja niður öll bernskubrögð, því að ekk- ert, sem er innihaldslaust, getum við látið nærri okkur koma. Sá, sem liefur yndi af slíku, getur ekki komist í samfélag við okkur“. Eftir þessa draumvitrun fór Ansgar að sýna meiri alvöru í dagfari sínu; sat hann nú stöðugt að lestri og Iagði þar að auki stund á aðrar námsgreinar. Furðaði skóla- bræður hans stórlega á hinum snöggu stakkaskiptum, sem hann hafði tekið. Framh. I REIKNINGSTÍMA. Kennarinn var að spyrja Óla litla. „Setjum nú svo, Óli minn, að þú sért í sokk á vinstra fæti og farir svo í hægri sokkinn, í hve mörg- um sokkum ertu þá?“ „Ég er aldrei í sokkum“, svaraði Óli. „Hugsum okkur, að pabbi þinn cigi eitt svín í svínastíu og svo kaupir hann annað svín í viðbót og setur það í stiuna hjá hinu — hvað eru þá mörg svín í stíunni?“ „Pabbi á cngin svín“, svaraði Óli litli, mjög áhuga- samur. „Jæja, en ef þú ótt eitt epli og mamma þín gefur þér annað epli, hvað liefurðu þá?“ „Magaverk“. Veslings kennarinn ákvað að gera eina tilraun enn. „En ef lítill fátækur drengur á eina köku og þú gefur honum aðra, hve margar á hann þá?“ „Ég borða mínar kökur alltaf sjálfur“, Þá gafst kennarinn upp.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.