Ljósberinn - 01.09.1954, Side 10

Ljósberinn - 01.09.1954, Side 10
«2 LJDSBERINN LJÓSBERINN _____________________________ Barna- og unglingablaö með myndum. — Útgefandi Bókagerðin Lilja, — Ritstjóri ÁstráSur Sigursteindórsson, kennari. — Utanáskrift: Ljósberinn, Pósth. 276, Rvík. Áskriftarsími 7811. Kemur út sem svarar 12 siðu blaði á rnánuði, þar af tvöfalt sumarblað og þrefalt jóla- þlað. Áskriftargjald kr. 20.00. Gjalddagi 15. apríl. Prentaður í Félagsprentsmiðjunni h.f. r v. GETRAUNASAGA: J llrer i rti’ sehuw' > Mönnum var farið að leiðast í afmælisveizl- unni, og konungurinn tók eftir því, að sumir voru farnir að geispa í laumi. Hvað gat hann gert til þess að hressa upp á samkvæmið? Þá datt honum ráð í hug. Hann hallaði sér fram yfir borðið og sagði við unga stúlku, sem sat á móti honum: — Vildirðu nú ekki dansa fyrir mig og hina tignu gesti? —■ Ég veit ekki, svaraði stúlkan hikandi. Móðir hennar, sem sat við hliðina á henni, greip þá fram í fyrir henni og sagði: — Auðvitað dansar hún, þegar yðar hátign óskar þess. Konungurinn reis á fætur, klappaði saman lófunum og tilkynnti skemmtiatriðið. Stúlkan sté út á gólfið og sveiflaði sér létti- lega um í fjörugum dansi. Allra augu fylgdu henni í augljósri aðdáun. Nú hvarf allur svefnhöfgi af gestunum. — Þetta var dásamlegt, sagði konungurinn við stúlkuna, er hún settist niður. Ég skal launa þér ríkulega. Enginn mun geta sagt, að ég skeri launin við nögl mér. Ég skal gefa þér hvað, sem þú biður mig um, þótt það væri helmingur ríkis míns. Undrunarkliður fór um hóp gestanna, er þeir heyrðu þetta fávíslega loforð. Undrun þeirra gladdi konunginn, og hann endurtók heit sitt: — Þetta er ásetningur minn. Ég sver, að ég skal gefa þér hvað, sem þú biður mig um allt að helmingi ríkis míns. — Ég ætla að hugsa mig um, svaraði stúlkan og fór til móður sinnar. — Taktu nú eftir, hvíslaði móðir hennar, þú verður að biðja konunginn um höfuð ó- vinar míns. — Ó, mamma, það þori ég ekki. — Þú þorir það vel, og þú skalt gera þaö, svaraði móðir hennar, og heiftin brann úr augum hennar. Stúlkan gekk aftur út á gólfiö og sté nýjan dans. — Ég hef ekki gleymt loforði mínu. sagði konungurinn, er dansinum var lokið. Hvers óskar þú þér? — Ég óska þess, að þú gefir mér höfuðið af óvini móður minnar, svaraði stúlkan. Konungurinn brá litum. •src)Ye)Y«)Yc)Ye>Yc)^ rá&end[in(|ax Allmargir eiga enu eftir að greiða áskrift- argjaldið. Nokkrir hafa ekki sinnt póstkröf- um, sem þeini hafa verið sendar, og hafa þær því komið aftur ógreiddar. f Reykjavík og víðar hefur verið erfitt að hitta fólk með reikningana í sumardreifingunni. Nú vild- um við hiðja alla þá, sem eftir eiga að greiða áskriftargjaldið, að gera það sem fyrst. Allir þeir, sem eiga ógreitt blaðið í Reykja- vík og annars staðar þar, sem innheimtu- menn eru á ferðinni, eru vinsamlega beðnir að greiða blaðið strax og þeir fá reikning- ana. Aðrir eru beðnir um að snúa sér til litsölumanna eða senda greiðsluna lieint til afgreiðslu blaðsins. ★ Þaö skal eiui tekit) fram, oð iirsögn er bundin i’ifí áramót og skat lierast skriflega til afgreiöslunnar, enda sc viö- komandi skuldlaus vifí blafiiT). ★ Myndasagan Davíð konungur endar í þessu blaði. Kemur hún væntanlega út sér- prentuð.áður en langt um líður. 1 næsta blaði hefst í hennar stað ný myndasaga, er nefnisl Jóhannes Markús. Er hún um lærisveininn, sem skrifaði Markúsarguðspjall og segir frá ýmsu er hann sá og lieyrði um Jesúm og lærisveina hans. Sú inyndasaga er, eins og su fyrri, lánuð Ljósheranum af sænska harnablaðinu „Frainát og uppát“. ★ Síöau sumarblaöiö kom úl liafa Ljós- beranum bætzl 'iO nýir áskrifendur. Von- um viö, aö sóknin haldi áfram og aukist meö haustinu. Geriö allt, sem þiö getiö til þess aö útbreiöa blaöiö i/kkar. — Mér fyndist, að þú ættir aö óska þér einhvers annars, mælti hann. Allra augu hvíldu á konunginum, og hann þorði ekki að ganga á bak orða sinna í viður- vist boðsgestanna. — Vissulega mun konungurinn standa við loforð sitt, sagði móðir stúlkunnar svo hátt aö allir heyrðu. Konungurinn hikaði andartak. Því næst gaf hann liðsforingja merki. Liðsforinginn gekk út, og innan stundar var góður þjónn Drottins leiddur út til lífláts. Komið var með höfúö hans á fati inn í veizlusalinn og fengið stúlk- unni. Það fór hrollur um hana. Hún bandaöi frá sér og vísaði til móður sinnar. Móðir hennar glotti við og hrósaði sigri. * * * * Hver var hinn myrti maður? Hver átti sök á dauða hans? Var það konungurinn, unga stúlkan eða móðir hennar? Hvað hétu aðal- persónurnar í þessari sögu? Ef þú kannast ekki við söguna, geturðu fundið lausnina í Mark. 6, 14,—29.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.